Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta var hressilegur fundur. Það voru þrír eða fjórir mjög mótfallnir þessum áformum en almennt voru mjög góðar undirtektir meðal íbúa,“ segir Gísli Halldór Hall- dórsson, bæjarstjóri í Árborg. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá hafa verið uppi hug- myndir um byggingu alþjóða- flugvallar í Flóanum, nánar til tekið þar sem heitir Stokkseyrarmýri og Brautartunga. Sveitarfélagið boð- aði landeigendur á áhrifssvæði flugvallarins til fundar á þriðju- dagskvöld vegna þessara áforma. Á fundinum var farið yfir kosti og galla við þessa framkvæmd. „Við töldum nauðsynlegt að fá fram sjónarmið þeirra sem helst yrðu fyrir áhrifum af flugbraut sem sett yrði niður þarna. Það var vel mætt, alla vega 50 manns sem er gott miðað við að þetta var ekki op- inn fundur. Þarna voru fulltrúar þessara áhugamanna um byggingu flugvallarins auk fulltrúa frá Eflu verkfræðistofu sem kynntu þessar pælingar og tóku svo við at- hugasemdum og söfnuðu í sarpinn. Viðbrögðin voru almennt jákvæð- ari en ég átti von á,“ segir Gísli. Gísli segir líklegt að næstu skref í málinu verði tekin í bæjarráði eða bæjarstjórn í næstu viku. Þá verði ákveðið hvort Árborg gefi út stuðn- ingsyfirlýsingu við forskoðun á kostum og göllum við framkvæmd- ina. „Það verður nokkurra ára ferli að skoða þetta. Ég held að þeir bjartsýnustu í spám geri ráð fyrir að opna flugvöll 2024. En þó að Ár- borg leggi blessun sína yfir þessa forskoðun yrði Árborg ekki beinn aðili að framkvæmdinni. Sveitarfé- lagið hefði hvorki aðkomu að fjár- mögnun forskoðunarinnar né fram- kvæmdinni sjálfri nema er snýr að skipulagsmálum og ef halda þarf íbúakosningu. Þetta yrði bara mór- alskur stuðningur.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Forveri Flugvöllinn í Kaldaðarnesi nýttu Bretar í fyrstu eftir hernámið 1940. Nú er til skoðunar að byggja nýjan flugvöll skammt frá. Íbúar spenntir fyr- ir alþjóðaflugvelli  Fundur með landeigendum í Árborg Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við leggjum áherslu á karlaheilsu í ár og veittum því veglegan styrk til gæðaverkefnis sem ætlað er að bæta þjónustu við karlmenn með krabba- mein í blöðruhálskirtli,“ segir Sig- urður K. Karlsson, formaður Lions- klúbbsins Njarðar. Hann segir klúbbinn fjármagna styrki til góð- gerðarmála með málverkauppboð- um á árlegum Herrakvöldum. „Blöðruhálskrabbamein greinist í 200 karlmönnum á ári. Árlega fara rúmlega 100 karlar í brottnám á blöðruhálskirtli eða geislameðferð til lækningar. Helsta áhætta slíkrar meðferðar eru stinningarerfiðleikar eða þvagleki. Meðferð við útbreidd- um sjúkdómi er aðallega í formi hormónahvarfsmeðferðar hvar meinið er bælt niður. Dugi það ekki til má beita lyfjameðferð sem komið hefur til á síðastliðnum árum. Marg- ir karlar greinast með blöðruháls- kirtilskrabbamein sem aldrei fer á það stig að þarfnast meðhöndlunar,“ segir Eiríkur Jónsson, yfirlæknir á þvagfæraskurðdeild Landspítalans. Hann segir mikilvægt að gera góða grein fyrir hópnum í heild og ráða hverjum og einum heilt um við- brögðin. Þau geta verið allt frá því að fylgjast með upp í það að fjar- lægja kirtilinn. Nákvæm skráning er forsenda bestu meðferðar hverju sinni og hvernig við komum út í sam- anburði við nágrannaþjóðir okkar. Eiríkur segir að styrkur Njarðar fjármagni bæði tækjakaup sem og hlutastarf Jóns Arnar Friðrikssonar þvagfæraskurðlæknis. Jón Örn muni m.a. ráðleggja um skráning- arform, ferli og gæðavísa er varði þá sem fara í læknandi meðferð sem og langtímaárangur. Einnig hvernig við komum fram í norrænum saman- burði sem og hvort misræmis gæti í þjónustu vegna aldurs, búsetu eða annars bakgrunns. Eiríkur segir að verkefnið sé samstarfsverkefni þvagfæraskurðdeildar Landspítala og Krabbameinsskrár Krabba- meinsfélags Íslands sem hófst 2017. Skráningin sé að sænskri fyrirmynd sem notuð hefur verið í 20 ár og leitt til bættrar og samræmdrar þjónustu fyrir þá sem greinast með blöðru- hálskrabbamein. Eiríkur segir að samanburður við önnur lönd sé mik- ilvægur og tilgangur með því að afla þekkingar á krabbameininu sé að tryggja gæði meðferðar til samræm- is við það sem gerist í öðrum lönd- um. Karlaheilsa í forgangi hjá Lionsklúbbi Njarðar  Gefa tæki og fjármagna hlutastarf til gæðaverkefnis Herrakvöld Helgi Jóhannesson stýr- ir málverkauppboði á Hótel Sögu. Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10,1 kg Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Eitt mesta urval landsins af BARNAKERRUM • MUl)COU ® a,,atzaN BARNAKERRUR BARNAKERRUR BABY ZEN YOYO+ Kiktu a netverslunina Fifa.is Frab�rt urval af kerrum, vognum, st6lum a.FL Kiktu via og fadu raaleggingar. Via hofum 35 ara reynslu i solu a barnavorum fifa �=�.v� a/It fyrir born in Simi: 562 6500 Opi&: Manud. til fiistud. 10-18 - Laugard. 11-15 „Þeir sem fá blöðruhálskirt- ilskrabbamein vilja helst losna við meinið með öllum tiltækum ráðum enda krabbameinsgrein- ing líkleg til að vekja ótta. Það er þó ekki alltaf nauðsynlegt. Mikilvægt er að geta greint og meðhöndlað þá snemma sem þess þurfa en jafnframt hlífa þeim við meðferð sem ekki þurfa hennar við. Of mikil inn- grip eru jafn slæmt og of lítil,“ segir Eiríkur Jónsson þvag- færaskurðlæknir. Hann segir jafn mikilvægt að skrá ná- kvæmlega á hvaða stigi sjúk- dómsins menn greinast, veitta meðferð og árangur hennar í bráð og lengd. Skráning mikilvæg BLÖÐRUHÁLSKRABBAMEIN Landsréttur hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður, sem dró upp hníf og ógnaði starfsmönnum fyrirtækis í Reykjavík, sæti gæsluvarðhaldi til 28. janúar. Maðurinn er einnig grunaður um að hafa framið fjöl- mörg önnur brot. Lögreglu barst tilkynning klukkan sex að morgni sunnudags- ins 30. desember um mann sem vitni kom að er hann hafði brotist inn í bifreið umrædds vitnis. Sá leiddi manninn í afgreiðslu fyr- irtækis til þess að hringja á lög- reglu en þegar þangað var komið dró maðurinn upp hníf og hótaði starfsmönnunum að skera þá á háls og drepa fjölskyldur þeirra. Þá sagðist hann ekki ætla í fang- elsi aftur. Maðurinn lagði síðan á flótta en skildi eftir bakpoka með fatnaði og ýmsum munum sem stolið hafði verið úr bílum á svæðinu. Hann var síðan handtekinn klukkan 18 sama dag og gekkst við því við yfirheyrslur að hafa brotist inn í bíl og stolið þaðan 2.000 krónum í smámynt. Bakpok- ann sagði hann sinn en kannaðist hvorki við að hafa hótað starfs- mönnum né að hafa dregið upp hnífinn. Lögregla hefur til meðferðar tólf önnur mál sem maðurinn ligg- ur undir rökstuddum grun um að hafa framið. Sætir gæsluvarðhaldi til loka janúar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.