Morgunblaðið - 10.01.2019, Síða 21

Morgunblaðið - 10.01.2019, Síða 21
verið minni heldur en núna í 40-50 ár,“ segir Viðar. Samkvæmt niðurstöðum kann- ana á vegum landlæknis reyktu 14% fullorðinna Íslendinga, árið 2012 en tæplega 9% samkvæmt könnun í fyrra og nær enginn munur var á heildartíðni daglegra reykinga milli karla og kvenna. Samkvæmt sölutölum ÁTVR hefur enn dregið úr reykingum og segir Viðar það gleðiefni. Veigamiklir þættir Í grein í Talnabrunni Embættis landlæknis í sumar voru sex lyk- ilatriði nefnd sem veigamikil í bar- áttu gegn reykingum hér á landi: Virk verðstýring, reyklaus svæði, upplýsingar um skaðsemi tóbaks í fjölmiðlum, bann við auglýsingum á tóbaki, viðvörunarmerkingar á tóbaksvörum og aðstoð við að hætta tóbaksnotkun. Þá nefnir Viðar að Íslendingar hafi í byrjun aldarinnar verið í far- arbroddi á heimsvísu við að leyf- isskylda sölu á tóbaki og á sama tíma hafi verið tekið upp sýni- leikabann á tóbaki á Íslandi. Auk þess hafa verið stundaðar hér á landi virkar forvarnir gegn tób- aksnotkun ungmenna í um hálfa öld. Dagur án tóbaks var fyrst haldinn á Íslandi árið 1979 en hef- ur verið haldinn árlega hér á landi frá árinu 1987. Áhyggjur af notkun ungra kvenna á tóbaki í vör Neftóbak er varla réttnefni lengur því stór hluti þess fer í vör notandans. Eftir að tóbaksgjald var samræmt í byrjun árs 2017 er nú greiddur sami skattur fyrir gramm af nef- eða munntóbaki og af öðru tóbaki. Þetta leiddi til verulegrar verðhækkunar, sem er talin hafa orsakað samdrátt í sölu neftóbaks 2017 þegar salan fór úr tæplega 40 tonnum í tæp 38 tonn. Salan tók síðan hressilega við sér aftur í fyrra og nam þá tæplega 45 tonnum. Viðar segist hafa áhyggjur af notkun ungs fólks á tóbaki í vör. Reyndar hafi dregið úr slíkri notk- un meðal karla á aldrinum 18-24 ára, en síðustu misseri hafi ungar konur farið að taka tóbak í vör í auknum mæli. Þannig mældist dagleg notkun 3% í aldurshópi 18- 24 ára kvenna. Þetta sé slæm þró- un og í Noregi sé hlutfall ungra kvenna sem noti tóbak í vör enn hærra en hér og mikið áhyggju- efni þar í landi. Árið 2018 var tíðni daglegrar notkunar á tóbaki í nef um 3% meðal karla, 18 ára og eldri. Mest var notkunin í aldurshópnum 45-54 ára eða tæplega 7%. Mun algeng- ara er að karlmenn á landsbyggð- inni noti tóbak í nef heldur en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Vaxandi fjöldi notar rafrettur Svo eru það rafretturnar en um sölu á þeim hafa gilt önnur lög- mál en í einkasölu ríkisins á tób- aki og áfengi. Notkun þeirra hef- ur aukist mjög síðustu ár og á vafalítið stóran þátt í minnkandi sölu á vindlingum. Dagleg notkun á rafrettum meðal 18 ára og eldri mældist um 5% í könnun Landlæknis í fyrra sem samsvarar því að um 10.700 manns hafi notað rafrettur. Árið 2015 notuðu um 1.700 manns raf- rettur daglega. Dagleg notkun á tóbaki í vör og dagleg notkun á rafrettum er algengari en dag- legar reykingar í aldurshópnum 18-34 ára. Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Jim SmartMorgunblaðið/Árni Sæberg Á niðurleið Stórlega hefur dregið úr reyk- ingum síðari ár. Tóbakshorn Hjá mörgum er neftóbakið ávallt við höndina. 1989 Ávísana- heftið var notað. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 Skil á upplýsingum vegna skattframtals Skila skal eftirtöldum uppl á rafrænu formi á þjónustusíðunni skattur.is Skilafrestur er til 20. janúar Launa- og verktakaupplýsingar Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur (þ.m.t. umsýslu- eða umboðsgreiðslur, s.s. í ferðaþjónustu o.fl.). Einnig allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota. Hlutafjárupplýsingar Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög og sparisjóðir. Stofnsjóðsupplýsingar Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Viðskipti með hlutabréf/afleiður og önnur verðbréf Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf/afleiður og öll önnur verðbréf. Innstæður Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar, eða hafa milligöngu um ávöxtun, vörslu eða aðra ráðstöfun fjármuna. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun. Sama á við um söluréttarsamninga. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi. Lánaupplýsingar Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga og lögaðila. Greiðslur fyrir leigu eða afnot Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum eða öðrum réttindum. Einnig þeir sem hafa í atvinnuskyni milligöngu um útleigu. Fjármagnstekjur Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur og tilgreina sundurliðun á móttakendur og þá staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða innheimtuaðila, t.d. lögmannsstofur. Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum (listi yfir þátttakendur) Skilaskyld eru öll hlutafélög og einkahlutafélög sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að þau uppfylli skilyrði fyrir því að kaup einstaklinga á hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt rétt til skattfrádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003. 2019 Nánari upplýsingar á rsk.is 442 1000 Þjónustuver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 rsk@rsk.is Sjá nánar auglýsingu ríkisskattstjóra nr. 1146/2018 í B-deild Stjórnartíðinda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.