Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
AIR OPTIX® COLORS
Linsur í lit
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Krabbameinssjúklingar á Suður-
landi geta nú hitt krabbameins-
lækni, sótt lyfjagjafir og verið í
læknandi meðferð í sinni heimasveit.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
(HSU) hefur í rúmt ár rekið göngu-
deild fyrir krabbameinssjúklinga en
lyfjameðferðum hefur þó verið fjar-
stýrt frá Landspítalanum. Þetta
breyttist um lok síðasta árs þegar
HSU réð til sín Sigurð Böðvarsson,
sérfræðing í krabbameinslækn-
ingum. Hann er nú yfirlæknir
göngudeildar á sjúkrahússviði spít-
alans. Hugmyndin er að sögn Sig-
urðar að efla þjónustu við krabba-
meinssjúklinga á svæðinu sem eru í
eftirfylgni eftir geislameðferðir og í
lyfjagjöfum. Enn þarf þó að sækja
skurðaðgerðir og geislameðferðir í
Reykjavík. Sigurður segist þó von-
góður um að hægt sé að stækka
göngudeildina og bæta þjónustuna á
Suðurlandi frekar á næstu árum.
Frá Wisconsin til Selfoss
Sigurður starfaði um árabil við
krabbameinslækningar í Wisconsin-
ríki í Bandaríkjunum. Hann kláraði
sérnámið sitt í Madison í Wisconsin,
en starfaði síðar á Green Bay Onco-
logy í Green Bay Wisconsin. Áður
var Sigurður í um níu ára skeið sér-
fræðingur í krabbameinslækningum
við Landspítala. Hann hefur einnig
áralanga reynslu af meðferð krabba-
meinssjúklinga, rannsóknum,
kennslu og stjórnun. Þá var hann
um tíma formaður Læknafélags
Reykjavíkur. Herdís Gunnarsdóttir,
forstjóri HSU, segir í tilkynningu á
vefsíðu spítalans það vera mikinn
feng að fá Sigurð til starfa hjá HSU.
„Hugmyndin er að efla þessa
þjónustu við krabbameinssjúklinga
og að þeir geti komið hingað í lyfja-
gjafir og eftirlit. Spara þeim þannig
sporin við að þurfa að keyra yfir
heiðina. En oft er þetta þannig að
fólk er að koma í meðferðir þar sem
það fær lyf í æð, kannski einu sinni í
viku, aðra hverja viku eða þriðju
hverja viku,“ segir Sigurður. „Þetta
er svipuð þjónusta og er búin að
vera árum saman, á Akureyri, en
þar er krabbameinsgöngudeild.
Fyrir norðan er verið að reyna að
koma í veg fyrir að fólk þurfi að
fljúga í bæinn og hér að fólk þurfi
ekki alltaf að vera að keyra yfir
heiðina. Færa þjónustuna þannig
nær fólkinu,“ segir Sigurður.
Aukin þörf fyrir þjónustuna
Sigurður segir þörfina á þjónustu
fyrir krabbameinssjúklinga á Suð-
urlandi vera mikla þar sem um 30
þúsund manns búa á svæðinu, en
einn af hverjum þremur ein-
staklingum fær krabbamein á lífs-
leiðinni.
„Sem betur fer eru lyfin að verða
betri. Oft er um að ræða fólk í lækn-
andi meðferð eða fólk sem við vitum
að við læknum ekki og erum við þá
að reyna að halda krabbameininu
niðri. Það getur gengið vel, jafnvel
árum saman. En þú þarft að koma í
þessar meðferðir og fá lyfin, oft í
æð. Stundum eru til töflumeðferðir
en þá þarftu að koma inn í blóð-
prufur einu sinni í mánuði, en mikið
af þessum lyfjum er gefið í æð svo
þú þarft að koma. Og þá þarftu að
koma vikulega og eða aðra hverja
viku og fá lyfin þín,“ segir Sigurður.
Lyfin eru ennþá blönduð í apótekinu
á Landspítalanum og send austur.
Frá árinu 2014 hefur verið göngu-
deild á HSU en það var aðallega fyr-
ir sjúklinga í nýrnaskilun. Síðar
byrjaði fólk að koma í lyfjameðferð
sem var fjarstýrt frá Landspítala.
Sigurbjörg Jónsdóttir, sem hefur
verið hjúkrunarfræðingur á HSU
um árabil, segir nýrnavélarnar hafa
ýtt á eftir þessum breytingum.
„Við byrjuðum með nýrnavél-
arnar og alls konar lyfjagjafir. Blóð-
skilunin var upphafið og það var
pressa frá sjúklingum sem voru bú-
settir hér á Suðurlandi. Svo bara
vatt þetta auðvitað upp á sig, alls-
konar lyfjagjafir, og svo byrjaði
formlegt samstarf við Landspít-
alann fyrir um ári,“ segir Sigur-
björg.
„Það hefur ekki verið neinn
krabbameinslæknir hérna fyrr en
núna,“ segir Sigurður. „Fólk fór því
og hitti sinn krabbameinslækni á
Landspítala og þar var sett upp
meðferðarplan, en núna ættu þeir
sem vilja að geta hitt mig hér. Ég
hef sagt við fólk að það séu allir vel-
komnir sem vilji. Sjálfsagt eru ein-
hverjir sem hafa verið í löngu sam-
bandi við sinn lækni á Land-
spítalanum, kannski árum saman,
og vilja halda því áfram. Það er líka
allt í lagi,“ segir hann.
Sigurður hóf störf 1. desember sl.
og er þjónustan í núverandi mynd
því nýhafin. Hann segir fróðlegt að
sjá hvernig heimamenn taki í hana.
Sævar Sigursteinsson er einn af
þeim sjúklingum sem nú geta sótt
lyfjameðferð á HSU. Hann segir
þetta mikla búbót. „Ég var klukku-
tíma hvora leiðina, í bæinn og heim,
og hálftíma að leita af bílastæði. Það
sparast tveir og hálfur tími í akstur.
Það munar um það,“ segir Sævar.
Sigurbjörg segir að sjúklingar séu
almennt að taka mjög vel í þessar
breytingar, enda hafa margir verið
að keyra til Reykjavíkur árum sam-
an. „Það getur verið hundleiðinlegt
á veturna að fara yfir fjallið,“ segir
Sævar. „Þetta er rosalegur tíma-
sparnaður. Fyrst og fremst þægindi
fyrir sjúklinginn,“ segir Sigurbjörg.
Aksturinn austur getur einnig verið
erfiður eftir margra klukkutíma
lyfjameðferð og segist Sigurbjörg
muna eftir einum sjúklingi sem
þurfti alltaf að leggja sig hjá Rauða-
vatni áður en haldið var af stað
heim.
Ekki ólíklegt að læknum fjölgi
Á HSU er nú m.a. starfandi
hjartalæknir, meltingarfæralæknir,
kvensjúkdómalæknir, háls-, nef- og
eyrnalæknir og lungnalæknir. Sig-
urður segir hugmyndina að reyna
byggja upp þjónustuna þannig að
það þurfi ekki alltaf allir að fara í
bæinn. Spurður hvernig hann sjái
göngudeildina eftir ár og hvort
læknum muni fjölga á deildinni segir
hann það ekki ólíklegt.
„Ég vona bara að allir sem vilji fái
góða þjónustu hér, góða læknisþjón-
Þjónustan
færð nær
fólkinu
Krabbameins- og lyfjameðferðir nú
aðgengilegar sjúklingum á Suðurlandi
Yfirlæknir Sigurður Böðvars-
son á nýju skrifstofunni með
Búrfellið í bakgrunni.
Í lyfjameðferð Sævar
Sigursteinsson ásamt
Sigurði, Sigurbjörgu
Jónsdóttur og Þorgerði
Þorkelsdóttur.
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
Anddyrishitablásarar
Til í öllum helstu lengdum (1m - 1.5m - 2m)