Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
ustu og góða hjúkrunarfræðinga.
Við eigum að hafa öll þau lyf sem
skráð eru í landinu. Þörfin fyrir
þessa þjónustu mun líklegast aukast
því það eru alltaf fleiri og fleiri sem
greinast með krabbamein og þeir
sem greinast lifa lengur og fólk er
oft í meðferð árum saman. Þá er
ekki ólíklegt að þjónustan vaxi,“
segir Sigurður.
Lyfjameðferð á göngudeildinni er
nú í boði á þriðjudögum og fimmtu-
dögum. Sjúklingar í nýrnaskilun
koma á mánudögum, miðvikudögum
og fimmtudögum. „En ef þessir dag-
ar fyllast þá verðum við bara að
bæta við degi, kannski verður það
þannig að við verðum með meðferðir
alla fimm daga vikunnar það verður
bara að koma í ljós,“ segir hann.
Eins og staðan er núna er göngu-
deildin afar lítil í eldri hluta spít-
alans, en til stendur að bæta aðstöð-
una á komandi árum.
„Það stendur til að endurnýja allt
saman og breyta og endurbyggja.
Þetta er í raun bara eitt herbergi
sem við erum með. Mér skilst að það
sé vilji í heilbrigðisráðuneytinu til að
færa þessa þjónustu nær heima-
byggðinni og að það sé stefnan
núna. Þetta er dæmigerð þjónusta
þar sem þú ert í meðferð árum sam-
an og þá er náttúrlega þægilegt að
fá hana í sinni heimabyggð í staðinn
fyrir að vera alltaf að fara yfir fjall-
ið,“ segir Sigurður að lokum.
Morgunblaðið/RAX
Sjúkrahús Aukin
þjónusta er nú í boði á
HSU á Selfossi.
Á MORGUN FÖSTUDAG 11. JANÚAR
OPNUM VIÐÁ NÝ EFTIR BREYTINGAR
Velkomin í stærri
og betri Vínbúð
á Dalvegi
Við tökum vel á móti ykkur!
Bílaumboðið Askja flytur sölu og
þjónustu fyrir Kia bíla í nýtt og sér-
hannað húsnæði á Krókhálsi 13 í
Reykjavík. Umboðið hefur verið í
húsi Öskju á Krókhálsi 11 undan-
farin ár. Sérstök opnunarhátíð verð-
ur haldin á laugardag, 12. janúar, á
milli klukkan 10 og 16.
Kia-húsið er sérhannað fyrir bíla-
umboð og um 4.000 fermetrar að
flatarmáli. Þar verður sýningarsalur
fyrir nýja bíla, aðstaða fyrir for-
greiningu, söluskoðanir, hraðþjón-
ustu og fullkomið bílaverkstæði með
18 vinnustöðvum. Til stendur að
hafa 30 rafbílastæði við húsið fyrir
viðskiptavini og starfsfólk en Kia er
leiðandi í sölu rafbíla.
Einnig verður boðið upp á bíla-
þrif, hjólbarðaþjónustu og hjól-
barðahótel, hraðþjónustu, glerhúð-
unarmeðferð fyrir lakk og
framrúðuskipti. Sérstök tilboð verða
á nýjum bílum og þjónustu fyrir við-
skiptavini í tengslum við opnunina.
Við flutning Kia-hluta Öskju verð-
ur rýmra um söludeild fólksbíla
Mercedes-Benz og eins verkstæði
fyrir Mercedes-Benz fólks- og at-
vinnubíla. gudni@mbl.is
Nýtt hús Kia-bíla
opnað á laugardaginn
Ljósmynd/Kia
Kia Umboðið flytur að Krókhálsi 13 og verður opnunarhátíð 12. janúar.