Morgunblaðið - 10.01.2019, Side 25
hvar kostir búsetu á svæðinu verði
kynntir fólki. Slíkt hefur meðal ann-
ars verið gert í Ölfusi, en á síðustu ár-
um hefur fjöldi fólks flust í Þorláks-
höfn og sækir þaðan vinnu á
höfuðborgarsvæðið.
Í dag er verið að byggja nýtt íbúð-
arhúsnæði bæði í Sandgerði og Garði.
Þá er nýtt aðalskipulag í vinnslu, en
þar eru lagðar línur til langs tíma, svo
sem nýtingu á Miðnesheiði sem er að
stærstum hluta í eigu ríkisins og í
umsjón Cateco; Þróunarfélags Kefla-
víkurflugvallar. „Við þurfum að horfa
til langs tíma í skipulagsmálum, því
hvarvetna í löndunum í kringum okk-
ur eru jaðarbyggðir borganna að
styrkjast, sem svo kemur fram í
hærra fasteignaverði þar. Þetta
sjáum við til dæmis á því að milli ár-
anna 2017 og 2018 hækkaði fast-
eignamat eigna hér í Suðurnesjabæ
að meðaltali um 37%. Það að svo
miklar hækkanir komi fram gerist
ekki oft,“ segir Magnús.
Öflug útgerð
Sjávarútvegur og þjónusta eru
undirstaða atvinnu í Suðurnesjabæ.
Þar eru starfrækt nokkur öflug út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtæki, en
afurðir frá sumum þeirra eru fluttar
strax á vinnsludegi með flugi á mark-
aði í útlöndum. Þar nýtur svæðið og
fyrirtækin kostanna af Keflavíkur-
flugvelli og Leifsstöð, sem er innan
Suðurnesjabæjar. Skapa fasteigna-
gjöld þar miklar tekjur til sveitarfé-
lagsins, sem einnig fær útsvarið frá
þeim fjölda íbúa sem vinna við flugið.
Ríkið tryggi þjónustu
„Hjá sveitarfélaginu eru mörg
verkefni framundan,“ segir Magnús
Stefánsson. Unnið hefur verið að
nokkrum verkefnum við gatnakerfi
og til stendur að leggja göngu- og
hjólreiðastíg milli byggðakjarnanna.
Þá hafa í samvinnu við Vegagerðina
staðið yfir framkvæmdir við end-
urbyggingu Suðurbryggju í Sand-
gerðishöfn.
„Þó sveitarfélagið geri, að mínu
mati, vel við íbúana, þá vantar hér
vissulega ýmsa þjónustu og þar
stendur upp á ríkið. Hér er til dæmis
ekkert apótek eða heilbrigðisþjón-
usta; allt slíkt þurfum við að sækja í
Reykjanesbæ þar sem oft þarf að
bíða lengi eftir tíma hjá læknum. Nú
svo er Landsbankinn búinn að loka
útibúum sínum sem hér voru og sama
má segja um afgreiðslustaði Íslands-
pósts. Auðvitað er ekki langt að
sækja þessa þjónustu alla í nágran-
nabæi, en fólk á misjafnlega auðvelt
með að komast á milli, svo sem eldri
borgarar, íbúar af erlendu bergi
brotnir og ungmenni. Í allri opinberri
þjónustu þarf að tryggja jafnræði
meðal fólks og á þeirri kröfu munum
við hamra,“ segir bæjarstjórinn að
síðustu.
Suðurnesjabær
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
:
O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Garðskagi
Garður
Sandgerði
Hvalneskirkja
Stafnes
SUÐURNESJABÆR
R
E
Y
K
JA
N
E
S
B
Æ
R
Leifsstöð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Garðskagaviti Listaverk og ljósið
sem gefur sæfarendum von.
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
20–60%
afsláttur
af völdum raftækjum
meðan birgðir endast.
Rýmum fyrir nýjum vörum.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Ofnar.
Keramik–, span– og gashelluborð.
Veggháfar og veggviftur.
Gaseldavélar.
Kæliskápar.
LAGERHREINSUN
Í fjárhagsáætlun koma fram
áherslur bæjarstjórna í þjónustu við
íbúa. Úr Suðurnesjabæ má nefna að
fjárhæð hvatastyrks til barna og
unglinga í ár verður35 þúsund kr,
barnafjölskyldur njóta umönn-
unarbóta og niðurgreiðslu vegna
dagforeldra. Þá fá bæjarbúar frítt í
sund í Garði og Sandgerði og að-
gangur að bókasöfnunum er ókeyp-
is. Aldraðir og öryrkjar komast í lík-
amsrækt endurgjaldslaust.
Heildartekjur Suðurnesjabæjar
árið 2019 eru áætlaðar um fjórir
milljarðar kr. og útgjöld 3,4 millj-
arðar kr. Að teknu tilliti til afskrifta
og vaxta verður útkoman um 150
millj. kró. í plús.
Eignir sveitarfélagsins í árslok
2019 eru áætlaðar 8,1 milljarður kr.
en skuldir 4,1 milljarður kr. Áætlað
er að skuldahlutfall í árslok 2019
verði 102,2% af ársveltu og vitna
þær tölur um góða fjárhagsstöðu.
Íbúarnir fá frítt í sund
GÓÐ FJÁRHAGSSTAÐA SVEITARFÉLAGSINS
Sandgerðislaugin Íbúar á svæðinu greiða ekkert fyrir aðgang að heilsulindunum.