Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 26
SVIÐSLJÓS
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Nú styttist í að mjaldrarnir hvítu,
Litla-Hvít og Litla-Grá, komi alla
leið frá Kína til Vestmannaeyja. Þar
verða heimkynni þessara smáhvela
til framtíðar, en eftir að hafa dvalið í
sjávardýragarði í Sjanghæ eru þeir
að komast á eftirlaun, eins og það
var orðað í Morgunblaði mánudags-
ins. Alþjóðlegt fyrirtæki stendur að
baki verkefninu, en lundinn og
pysjueftirlitið njóta góðs af, með
lundaspítala og sýningarsvæði.
Mjöldrunum er ætlaður staður í
Klettsvík þar sem ferðamenn geta
skoðað þá og í Eyjum er byggt á
reynslu frá Keikó-ævintýrinu fyrir
rúmum tveimur áratugum. Talsverð
umsvif hafa verið í Eyjum vegna
komu hvalanna og til að mynda hafa
allt að 40 manns starfað við upp-
byggingu á hvala-, fiska- og nátt-
úrugripasafni í gömlu Fiskiðjunni
sem verður opnað í sumar. Allt er á
áætlun og það er eins gott því ekki
eru nema um tíu vikur þar til von er
á dýrunum.
Fiskiðjan í Vestmannaeyjum sem
var eitt af fjórum stóru frystihús-
unum í Eyjum fram á tíunda áratug
síðustu aldar hefur fengið nýtt hlut-
verk og reyndar fleiri en eitt. Þar er
til húsa Þekkingarsetur Vest-
mannaeyja sem hýsir fjölda stofn-
ana og fyrirtækja sem fylla aðra
hæðina.
Tíu þúsund kílómetrar
Á neðstu hæðinni og í viðbygg-
ingu er verið að útbúa stórt nátt-
úrugripasafn, skrifstofur Vest-
mannaeyjabæjar verða á þriðju
hæðinni og íbúðir á efstu hæðinni.
Safnið er byggt upp af Merlin En-
tertainment sem ætlar að flytja
mjaldrana tvo úr safni sínu í
Sjanghæ í Kína tíu þúsund kíló-
metra leið til Keflavíkur og þaðan til
Vestmannaeyja. Framtíðarheimilið
verður í kví í Klettsvík.
Bragi Magnússon, verkfræðingur
hjá Mannviti í Vestmannaeyjum,
hefur yfirmsjón með byggingu
safnsins sem er að hluta til í gömlu
Fiskiðjunni og að hluta til í nýrri
byggingu þar sem m.a. verður laug
fyrir hvalina sem væntanlegir eru
um mánaðamótin mars/apríl. „Ný-
byggingin er 1.100 fermetrar og 800
fermetrar af safninu eru í gamla
húsinu,“ segir Bragi í samtali við
Morgunblaðið.
Nýbyggingin er á þremur hæðum.
Á fyrstu hæðinni verður sjálft nátt-
úrugripasafnið og laug fyrir hvalina
með tilheyrandi tæknibúnaði. Þar er
líka gluggi inn í laugina, 2,5 metrar
sinnum 2,5 metrar að stærð. Á ann-
arri hæðinni er aðgangur að lauginni
fyrir vísindamenn og fólk sem hefur
umsjón með lauginni og hvölunum.
Á þriðju hæðinni er svo tæknirými.
„Allt snýst um að dýrunum líði vel
og því fer mikið pláss undir tækni-
og hreinsibúnað tengt lauginni en
þær eru í rauninni tvær, stóra laugin
og önnur minni þar sem hægt er að
taka hvalina inn ef þarf að hlúa að
þeim.“
Sem mest í kvínni í Klettsvík
Hvalirnir eru væntanlegir með
beinu flugi frá Sjanghæ og verður
lent með þá í Keflavík. „Það er engin
krafa um Landeyjahöfn, kannski
spurning um veður í Þorlákshöfn en
að öðru leyti skiptir það ekki máli
því það tekur lengri tíma að keyra í
Landeyjahöfn en til Þorlákshafnar.
Allir sem koma að þessu hjá Merlin
eru fagfólk sem kann til verka þegar
kemur að því að flytja hvali á milli
staða. Þetta verður því ekkert
vandamál,“ segir Bragi.
Gert er ráð fyrir að hvalirnir verði
sem mest í kvínni í Klettsvík en
fyrstu tvo til þrjá mánuðina verða
þeir í lauginni. Það er gert til að að-
laga þá breyttum aðstæðum.
Heildarkostnaður liggur ekki fyr-
ir en Bragi segir að þetta sé flókin
og dýr framkvæmd. „Það eru marg-
ir verktakar sem koma að þessu og
flest fyrirtækin héðan. Fram-
kvæmdir byrjuðu í apríl á síðasta ári
Klettsvíkin Aðstaða fyrir mjaldrana er komin upp í Klettsvíkinni og þar verður hægt að skoða dýrin. Þarna verða aðalheimkynni þeirra á svipuðum slóðum og Keikó dvaldi á fyrir um 20 árum.
Gert klárt fyrir hvalina hvítu
Mjaldrarnir Litla-Hvít og Litla-Grá frá Sjanghæ til Vestmannaeyja eftir nokkrar vikur Byggt
upp í Eyjum Reynslan af Keikó-ævintýrinu nýtist Lundinn og pysjueftirlitið njóta góðs af
SJÁ SÍÐU 28
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
Lögheimilið flutt úr sjávardýragarði í Sjanghæ í Klettsvík í Vestmannaeyjum
Þetta er frábær viðbót við það sem við höfum þegar upp á að bjóða fyrir
ferðamenn enda verkefnið einstakt og ómetanlegt að komast í samstarf
við fyrirtæki af þessari stærð,‘‘ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vest-
mannaeyja, um komu Merlin Entertainment til Vestmannaeyja.
,,Við byggjum á langri hefð í rekstri safna og hér er elsta og eina fiska-
safn landsins sem var opnað fyrir 55 árum. Það hefur ennþá mikið að-
dráttarafl en núna fær safnið ennþá virðulegri sess. Ég hef þá trú að nýja
hvala-, sjávar- og náttúrusafnið eigi eftir að hafa mjög mikið aðdráttarafl
og ferðamönnum eigi eftir að fjölga hér í Eyjum.
Það er ekki bara að hér fjölgi störfum með tilkomu safnsins heldur á
það eftir að hafa jákvæð áhrif á alla þjónustu í Vestmannaeyjum vegna
fjölgunar ferðamanna. Ég er mjög bjartsýn á að þetta gangi vel upp og þá
geta opnast spennandi möguleikar á frekara samstarfi og auknum um-
svifum,“ sagði Íris einnig.
Mjög mikið aðdráttarafl
ÓMETANLEGT AÐ KOMAST Í SLÍKT SAMSTARF
Nýtt hlutverk Páll Marvin Jónsson, Íris Róbertsdóttir og Bragi Magnússon á fyrstu
hæð Fiskiðjunnar þar sem verða náttúrugripa- og fiskasafn og hvalalaug.
Ljósmynd/Óskar Pétur
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is