Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 29
anfarin ár. Allt kom þetta vel út,“ segir Páll en fleira lá að baki þegar Merlin tók ákvörðunina. Mjaldrarnir verða til sýnis en fólki var haldið frá Keikó „Það var ekki bara náttúran sem þeir horfðu til. Það voru líka innviðir í Vestmannaeyjum og möguleikar samfélagsins til að takast á við þetta verkefni sem höfðu sitt að segja. Og þeir eru komnir til að vera. Ég vildi ekki sjá annað Keikóævintýri þar sem allt byggðist á því að venja hvalinn af því að vera háður sam- skiptum við manninn og undirbúa hann fyrir eðlilegt líf, sem reyndist ekki vel. Eftir Keikó-verkefnið lærðum við hinsvegar að þrátt fyrir að Kletts- víkin geti verið erfið veðurfarslega þá þreifst Keikó vel í víkinni. Annað sem er öðruvísi er að mjaldrarnir verða til sýnis í kvínni en fólki var haldið frá Keikó.“ Páll segir undirbúning fyrir verk- efnið hafa verið mikinn þar sem fyrst var fundað með stjórnendum og síðan komu sérfræðingar á veg- um Merlin til að skoða og meta að- stæður. „Það var ánægjulegt hve stjórnendur Merlin voru áhuga- samir þegar þeir heyrðu af pysjueft- irlitinu, en á hverju hausti hópast krakkar í Eyjum út á kvöldin til bjarga lundapysjunni sem flýgur úr holum sínum á ljósin í bænum. Eftir að lundastofninn hrundi fengum við krakkana til að koma með pysjurnar til okkar þar sem þær voru vigtaðar og mældar. Úr þessu varð pysjueftirlitið til og það finnst þeim athyglisvert. Allt endaði þetta með því að samhliða því að vera með gestastofu fyrir mjaldrana byggja þeir upp nýtt náttúru- og fiskasafn í Fiskiðjunni.“ Nýtt og miklu stærra safn Núverandi fiskasafn var opnað 1964 og vekur ennþá athygli. „Nú fáum við nýtt og miklu stærra safn sem svarar kröfum nútímans. Þar verður náttúrugripasafnið líka í mun stærra húsnæði og allt þetta erum við að fá án þess að bærinn þurfi að leggja fram krónu.“ Páll lætur mjög vel af sam- skiptum við starfsfólk Merlin. „Þetta er stórt fyrirtæki í afþreying- ariðnaði með skemmtigarða um all- an heim sem taka á móti 60 milljón gestum á ári. Allt það fólk sem við erum í samskiptum við er fagfólk með mikla reynslu sem gaman er að vinna með. Starfsemin hér verður ekki ágóðadrifin en það sem þeir fá og við líka er jákvæð ímynd.“ Fleiri hvalir í hvíldarinnlögn? Páll segir að koma Merlin til Vest- mannaeyja hafi þegar vakið athygli ferðamanna. „Ef allt gengur upp hjá okkur með nýjum Herjólfi og þess- ari nýjung fyrir ferðamenn er fram- tíðin björt. Í allt verða tíu stöður við safnið og kemur fólk frá Merlin til með að þjálfa starfsmennina. Sam- kvæmt upplýsingum frá Markaðs- stofu Suðurlands er mikill áhugi á Vestmannaeyjum sem skýrist meðal annars af komu hvalanna og nýrri Vestmannaeyjaferju. Ef allt gengur upp verða Vestmannaeyjar heitasti ferðamannastaður landsins hjá ferðamönnum á komandi árum. Merlin tekur áhættuna á þessari uppbyggingu og borgar allan kostn- að en í þessu felast einnig tækifæri til að taka inn fleiri hvali í hvíld- arinnlögn þannig að þetta gæti orðið byrjunin á ennþá stærra ævintýri,“ sagði Páll að endingu. Athygli Eflaust munu margir fylgj- ast með komu mjaldranna til Eyja. 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 595 1000 . heimsferdir.isBókaðuþína ferð á BORGARFERÐIR HEIMSFERÐA VORIÐ 2019 Búdapest - Bratislava - Lissabon - Ljubljana - Prag - Vín Frá kr. 89.995 Flugsæti frá kr. 59.900 Frá kr. 139.995 Vegna mikillar eftirspurnar kynna Heimsferðir aftur til leiks heimsborgarana og gleðigjafana Albert og Bergþór sem munu með sinni algerri snilld og gleði krydda borgarferðirnar okkar vorið 2019 til Búdapest, Prag og Lissabon. Þetta verða sérferðir eða “Sælkeraferðir” alla leið því Albert og Bergþór munu fara með gesti sína meðal annars út að borða á góðu veitingahúsi og eiga með þeim sælkeradag sem er innifalið í verði. SælkeraferðirmeðAlbert og Bergþór Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a *V er ðm .v. Bú da pe st 18 .a pr íl. Flu go gg ist ing í4 næ tur áH ote lS tar Inn * Útbreiðslusvæði mjaldra er nánast samfellt í Íshafinu umhverfis norðurheimskautið. Þeir eru sjaldséðir flækingar hér við land, enda er Ísland talsvert utan við náttúrulegt búsvæði þeirra. Mjaldur var nýttur af veiðimönnum á norð- urslóðum um aldir, en mjög hefur dregið úr veiðum. Þá hafa mjaldrar talsvert verið veidd- ir lifandi til sýningahalds. Þeir eru hægsyndir, rólegir og jafnvel gæfir og því tiltölulega auð- velt að nálgast þá. Fullorðin dýr eru nánast alhvít og geta orðið yfir 3-5,5 metrar á lengd eftir því hvaða stofni dýrið tilheyrir. Kýrnar eru nokkru minni en tarfarnir. Eru sjaldséðir gestir við Ísland Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Í Steingrímsfirði Mjaldur gerði sig heimakominn við Grænanes, Bassastaði og víðar í apríl 2013.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.