Morgunblaðið - 10.01.2019, Side 32

Morgunblaðið - 10.01.2019, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Áform um nýja þriggja hektara land- fyllingu við Skarfabakka í Sundahöfn eru í óvissu eftir að Veitur, dótturfyr- irtæki Orkuveitu Reykjavíkur, lögð- ust gegn fyrirhuguðum breytingum. Tillaga að breytingu á aðalskipu- lagi fyrir Sundahöfn var auglýst seinni hluta ársins 2018. Í athuga- semdum Veitna við tillöguna segir m.a. að hún samræmist ekki þörf Veitna um aukið landsvæði til að geta sinnt kröfum um aukna hreinsun skólps til langrar framtíðar. Veitur hafi komið þessu sjónarmiði á fram- færi við Reykjavíkurborg og Faxa- flóahafnir og telja að afmörkun sem fram kemur í samþykktu deiliskipu- lagi Klettasvæðis styrki enn fremur tilkall Veitna til svæðisins. Skólpi dælt á haf út Veitur reka skólphreinsistöð í Klettagörðum, sem var tekin í notk- un árið 2002. Í stöðinni fer fram gróf- hreinsun, en í því felst að öll föst efni stærri en 3 millimetrar í þvermál eru síuð frá skólpinu í fimm grófsíum (þrepasíum). Að auki eru fita og sandur skilin frá skólpinu. Eftir þessa hreinsun er skólpinu síðan dælt út í sjó um 5,5 kílómetra langa útræsislögn. „Til að mæta auknum kröfum sem búast má við í reglu- gerðum og markmiðum Veitna um hreinar strendur – alltaf, meiri nýt- ingu á orkustraumum og vegna um- hverfissjónarmiða þarf á næstu árum að bæta við hreinsiþrepum,“ segir í athugasemdum Veitna. Þetta feli í sér stækkun hreinsi- stöðvanna við Klettagarða og Ána- naust. Ekki er búið að meta þörf á landrými undir mannvirkin en skv. útreikningum Veitna er plássþörf fyrir stækkun hreinsistöðvarinnar við Klettagarða u.þ.b. 5 hektarar. Veitur leggjast gegn breytingum á hafnarsvæðinu samkvæmt kynntri tillögu þar sem sú landfyllingin sam- ræmist ekki þörf Veitna um aukið landsvæði til að geta sinnt kröfum um aukna hreinsun skólps til langrar framtíðar. Veitur óska eftir auknu landrými fyrir stækkun hreinsistöðv- arinnar í Klettagörðum sem hluta af fyrirhugaðri aðalskipulagsbreytingu og að afmörkun núverandi iðnaðar- svæðis í aðalskipulaginu verði stækk- að sem því nemur. „Landfyllingin, eins og hún er teiknuð upp í tillögu að nýrri að- alskipulagsbreytingu, fer yfir sjó- lagnir Veitna frá hreinsistöð inni og þarf að skoða vel efnisval og burð- argetu lagna áður en landfyllingin er heimiluð. Þetta hefur ekki verið skoðað og ekki hefur heldur verið skoðað hvert hægt er að flytja þær og hvort það gengur upp,“ segja Veitur. Óvissa um nýja landfyllingu  Veitur leggjast gegn tillögu sem kynnt hefur verið um landfyllingu við Skarfabakka í Sundahöfn  Segja að auknar umhverfiskröfur kalli á stækkun skolphreinsistöðvar  Gera tilkall til svæðisins Morgunblaðið/sisi Skarfabakki Fyrirhuguð landfylling mun koma fyrir framan skolphreinsistöð Veitna, vinstra megin á myndinni. Uppfyllingin Svona hugsa menn sér land undir aðalstöðvar Faxaflóahafna. FAXAFLÓAHAFNIR Morgunblaðið/Ómar Nýtt svæði Dráttarbáturinn Magni og aðrir bátar fái nýja viðlegu. Starfsstöð á nýju landi Markmiðið með stækkun hafnarsvæðis við Klettagarða með landfyllingu er að skapa rými fyrir sameinaðar starfs- stöðvar Faxaflóahafna til framtíðar, m.a. skrifstofur, skipaþjónustu og mögulega viðlegu fyrir dráttarbáta fyrir- tækisins. Reykjavíkurborg ætlar að kaupa Hafnarhúsið og nota það undir aðra starfsemi, svo sem listasöfn. Í athugasemdum Faxaflóa- hafna segir m.a. að 3ja hekt- ara landfylling á þessum stað rúmi ekki sameinaða starfs- aðstöðu Faxaflóahafna og 3,5 hektara stækkun lóðar fyrir skólpdælustöð. Ekki sé mögu- legt að reka starfsemi hafnar innan um settjarnir og skólp- hreinsunaraðstöðu eins og Veitur áforma. Aðliggjandi at- hafnasvæði, Klettasvæðið, sé í dag orðið eitt helsta hafnar- og atvinnusvæði Sundahafnar með fjölda fyrirtækja og fjöl- breytta starfsemi. BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 20 - 50% afsláttur af útsöluvörum 10% afsláttur af nýjum vörum J A N Ú A R Ú T S A L A Trace leðursófi kr. 298.700 Nú kr. 195.000 -30% Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar- ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsibyggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu Ungverja má rekja hundruðir ára aftur í tímann. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borg­ ina svo sérstaka. Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna­ yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd­ aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW BÚDAPEST NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava Vínarborg og Brugge

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.