Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 42
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
TIL LEIGU
Skipholt 31 – 105 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
2. og 3. hæð hússins
Stærð samtals 1.200 fm.
Virðisaukaskattslaust.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í
sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir
netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er
við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í
síma 824-6703. Laust strax.
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Til leigu um 950 fm. skrifstofuhæð á 2. hæð að Álfabakka 10, 109 Reykjavík. Húsnæðið er laust strax.
Núverandi skipulag er að mestu opið skrifstofurými. Auðvelt er að breyta skipulagi hæðarinnar með því að
innrétta skrifstofur eftir þörfum. Eldtraust geymsla er á hæðinni. Lyfta er við inngang upp á hæðina. Á gólfum
er linoleum dúkur. Kerfisloft með hljóðdempandi álplötum og kerfisloftalýsing. Loftræstikerfi er sameiginlegt
með jarðhæð. Næg bílastæði og gott aðgengi er að húsinu. Virðisaukaskattur leggst ekki við leiguverð.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
TIL LEIGU
Álfabakki 10, 109 Rvk.
Gerð: Skrifstofuhúsnæði
Stærð: 950 m2
Allar nánari upplýsingar veitir:
Magnús Kristinsson
Verkfræðing r, löggiltur
leigumiðlari, löggiltur fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali.
534 1025 / 861 0511
magnus@jofur.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Lögreglan í Noregi tilkynnti í gær
að henni hefðu borist kröfur um
lausnargjald fyrir Anne-Elisabeth
Falkevik Hagen, eiginkonu auðkýf-
ingsins Tom Hagen, en hún hvarf 31.
október síðastliðinn.
Rannsóknarlögreglumenn hafa
haft málið til skoðunar síðustu vik-
urnar en fóru ekki hátt með það fyrr
en í gær, þegar biðlað var til almenn-
ings um frekari upplýsingar sem
gætu komið þeim á sporið.
Tommy Broske, fulltrúi lögregl-
unnar, staðfesti við norska fjölmiðla í
gær að krafist hefði verið lausnar-
gjalds, og einnig að „alvarlegar hót-
anir“ hefðu borist um hver örlög
Falkevik Hagen yrðu ef lögregla eða
fjölmiðlar blönduðu sér í málið. Því
hefði lögreglan ekki vilja lýsa því yfir
opinberlega að hún væri að rannsaka
málið fyrr en nú.
Sagði Broske að helsta kenning
lögreglunnar væri sú að Falkevik
Hagen hefði verið rænt af heimili
sínu í Lorenskog, sem er um 20 kíló-
metra frá höfuðborginni Osló.
Þá kom fram í máli hans að engar
vísbendingar hefðu borist um það
hvort Falkevik Hagen væri enn á lífi,
en að það hefði heldur ekkert bent til
þess að hún væri dáin. Lögreglan
hefur hins vegar engan grunaðan á
þessu stigi málsins.
Heimildir norska blaðsins Verd-
ens Gang herma að lausnargjaldið
sem krafist sé nemi níu milljónum
evra, og að það eigi að greiðast í raf-
myntinni monero, sem erfiðara yrði
að rekja fyrir lögregluna. Broske
vildi ekki staðfesta að þetta væri rétt
upphæð, en lögreglan hefur ráðlagt
fjölskyldu Hagen að borga ekki, og
mun fjölskyldan hafa fylgt þeim ráð-
leggingum.
Lausnargjalds krafist
Norska lögreglan biðlar til almennings um upplýsingar um mögulegt mannrán
AFP
Mannrán Anne-Elisabeth Falkevik
Hagen var rænt í október sl.
„Lengi lifi Makedónía“ stendur á skilti þessarar konu,
sem lagði leið sína í gær til þinghúss landsins, en þar
hófst í gær umræða um það hvort að breyta eigi form-
lega nafni landsins í Norður-Makedóníu.
Ekki eru allir á eitt sáttir, en nafnbreytingin er liður
í sögulegum sættum við Grikki, sem hafa lengi lagst
gegn nafni Makedóníu, þar sem samnefnt hérað er að
finna í norðurhluta Grikklands.
AFP
Makedónía eða Norður-Makedónía?
Matteo Salvini,
innanríkis-
ráðherra Ítalíu,
lýsti í gær yfir
þeirri von sinni
að popúlista-
flokkar þeir sem
nú halda um
stjórnartaumana
á Ítalíu og í Pól-
landi gætu
kveikt neistann
að „evrópsku vori“ í kosningunum
til Evrópuþingsins sem haldnar
verða í vor.
Salvini heimsótti Varsjá í gær og
ræddi þar við Jaroslaw Kaczynski,
formann stjórnarflokksins Lög og
réttlæti (PiS), og Mateusz Mora-
wiecki, forsætisráðherra Póllands.
Sagði Salvini að samstarf Pól-
verja og Ítala gæti búið til nýtt jafn-
vægi í samstarfi Evrópuríkja, sem
gæti komið í staðinn fyrir „fransk-
þýska öxulinn“. Bæði ríki hafa átt í
útistöðum við framkvæmdastjórn
ESB á síðustu mánuðum.
Kallar eftir
„evrópsku vori“
Matteo
Salvini
ÍTALÍA
Jair Bolsonaro,
forseti Brasilíu,
staðfesti í gær að
ríkisstjórn sín
myndi hafna
þátttöku í nýjum
sáttmála Samein-
uðu þjóðanna um
farandmenn.
Sagði hann í sér-
stakri yfirlýs-
ingu á sam-
félagsmiðlinum Twitter að Brasilía
yrði að varðveita fullveldi sitt. Það
fæli meðal annars í sér að verja
réttinn til að ákveða hverjir gætu
komið til landsins.
Sagði Bolsonaro að ríki sitt
myndi áfram veita þeim stuðning
sem þyrftu, en ítrekaði að uppfylla
þyrfti ákveðin skilyrði til að
tryggja að innflutningur fólks yrði
ekki án nokkurra hamla.
Sáttmálinn var undirritaður í síð-
asta mánuði af 152 ríkjum, og var
Brasilía eitt af þeim.
Hafnar sáttmála
um farandmenn
Jair
Bolsonaro
BRASILÍA
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna lýsti því yfir í gær að Rahaf
Mohammed al-Qunun teldist vera
flóttamaður og bað stofnunin yfirvöld
í Ástralíu um að veita henni hæli. Inn-
anríkisráðuneyti Ástralíu staðfesti
þetta í gær.
Qunun, sem er 18 ára kona frá
Sádi-Arabíu var stöðvuð af yfirvöld-
um í Taílandi um helgina, en hún kom
þangað frá Kúveit eftir að hafa flúið
frá fjölskyldu sinni. Átti upphaflega
að vísa henni úr landi aftur til Sádi-
Arabíu, en Qunun sagði að fjölskylda
sín hefði beitt sig andlegu og líkam-
legu ofbeldi. Sagði hún að það væri
„100% öruggt“ að hún yrði myrt af
fjölskyldumeðlimum, yrði hún send til
baka til Sádi-Arabíu.
Hún læsti sig því inni á hótelher-
bergi sínu og leitaði á náðir sam-
félagsmiðilsins Twitter. Vakti mál
hennar þar mikla athygli og ýtti undir
samúðarbylgju, sem varð til þess að
stjórnvöld í Taílandi hættu við að
senda hana til baka.
Í tilkynningu frá innanríkisráðu-
neyti Ástralíu sagði að beiðni flótta-
mannastofnunarinnar hefði borist til
þeirra og að farið yrði yfir hana á
sama hátt og öll önnur mál. Ástralskir
embættismenn höfðu hins vegar gefið
sterklega í skyn að hælisbeiðni Qun-
un yrði samþykkt. Þannig hafði Greg
Hunt, heilbrigðisráðherra Ástralíu,
lýst því yfir áður en ákvörðun flótta-
mannastofnunarinnar var ljós, að ef
Qunun reyndist vera flóttamaður
myndi ríkisstjórnin íhuga það mjög
alvarlega að veita henni vegabréfs-
áritun af mannúðarástæðum.
Biðja Ástrala um
að veita Rahaf hæli
SÞ blanda sér í
mál Rahaf Mo-
hammed al-Qunun
AFP
Á flótta Rahaf Mohammed al-Qunun
sést hér í fylgd með taílenskum emb-
ættismanni fyrr í vikunni.
Kínverski hershöfðinginn He Lei var-
aði stuðningsmenn sjálfstæðis Taív-
ans við því í gær að þeir kynnu að
vera dæmdir sem „stríðsglæpamenn“
ef svo færi að kínverski herinn
neyddist til að taka eyjuna með her-
valdi.
„Stuðningsmenn aðskilnaðarins
verða að hætta í tæka tíð til þess að
forðast stórslys, sjá að sér og snúa
aftur á rétta braut. Annars eiga þeir á
hættu að verða úrhrök kínversku
þjóðarinnar, fordæmdir af sögunni,“
sagði He á blaðamannafundi sínum.
Ummæli Hes voru látin falla í kjöl-
far þess að Xi Jinping, forseti Kína,
tilkynnti í síðustu viku að Kínverjar
myndu ekki hafna þeim möguleika að
hervaldi yrði beitt gegn Taívan, og
lofaði því að sameining Kína og Taív-
an væri „óumflýjanleg“. Stjórnvöld í
Kína líta svo á að Taívan sé enn hluti
af ríki sínu, þó að eyjan hafi ekki lotið
stjórn þeirra frá lokum kínversku
borgarastyrjaldarinnar árið 1949.
Verða að
„sjá að sér
í tæka tíð“
Hershöfðingi
hótar Taívönum