Morgunblaðið - 10.01.2019, Síða 47
UMRÆÐAN 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
L I N D B E R G 00
Optical St.udio
SMARALIND • LEIFSSTO0 • KEFLAVIK
Ég er reið, alveg svaðalega reið,
en sem betur fer gríp ég bara til
„pennans“ en ekki hnefans. Fyrr-
verandi og núverandi ríkisstjórnir
Íslands eru orsök þessarar uppsöfn-
uðu reiði og ef ekki eitthvað stór-
kostlegt gerist snemma á þessu ári
mun svo sannarlega gjósa. Ég við-
urkenni að þessi uppsafnaða reiði
beinist líka að hagsmunasamtökum
öryrkja sem enn halda úti samræð-
um við stjórnvöld en láta teyma sig
á asnaeyrunum. Reiðin beinist líka
að þeim sem skrifa pistla eins og
kona með þrjár háskólagráður skrif-
aði fyrir nokkru, en hún gaf í skyn
að betra væri bara að fara á örorku
og fá íbúð hjá ÖBÍ en að standa í
harkinu sem fylgir hinum íslenska
leigumarkaði. Við þann lestur sauð
upp úr hjá mér. Að einstaklingur
með þrjár háskólagráður skuli vera
svo fáfróður sýnir best hvað þessi
þjóðfélagshópur, sem hvað verst
stendur, glímir við, því sá sem veit
það skrifar hvorki né segir svona.
Hvað veit ég um þessi mál?
Ég á fjögur börn, þar af þrjá
stráka sem allir eru fæddir lög-
blindir og tilheyra því þeim hópi
sem kallast öryrkjar. Þeir eru
dæmdir til ævilangrar fátæktar og
eru í raun allar bjargir bannaðar.
Fötlun þeirra fylgir ýmis auka-
kostnaður sem við hin þurfum ekki
að greiða og ekki minnkar hann við
að búa úti á landi og hafa ekki að-
gang að eðlilegri ferðaþjónustu
nema standa í sífelldu betli til sveit-
arfélagsins um að greiða ákveðið
margar ferðir á mánuði. Ekki nóg
með það heldur þurfa þeir að skila
inn skýrslu um hvert á að ferðast.
Hver myndi sætta sig við það? Ekki
þeir og því leggja þeir mikið á sig til
að vera óháðir og lifa sínu lífi án
þess að hópur fólks sé með nefið of-
an í þeirra málum. Þeir stunda líka
vinnu en þeir fá ekkert fyrir hana
þar sem stjórnvöld taka nánast
hverja krónu til baka vegna regl-
unnar um krónu-á -móti-krónu-
skerðingu. Hver sættir sig við
launalausa vinnu?
Eiga ekki sama rétt og aðrir
Þeim er líka gert að greiða í líf-
eyrissjóð en eiga þó ekki sama rétt
úr þeim og aðrir. Af hverju? Jú, ef
þú slasast á starfsævi þinni og verð-
ur að hætta að vinna færðu ekki
bara örorku frá Tryggingastofnun
heldur einnig úr lífeyrissjóði þínum.
Greiðslurnar úr þeim sjóði miðast
við að bæta þér upp það tekjutap
sem þú verður fyrir vegna slyssins.
En strákarnir mínir fá ekki krónu
úr sínum sjóði því reglurnar eru
þannig að þú færð greitt úr sjóðnum
miðað við þær tekjur sem þú hafðir
áður en þú ferð á örorku. Þar sem
þeir eru fæddir svona er vitaskuld
ekki um neinar tekjur að ræða fyrir
örorku. Það þýðir að þeir öðlast
aldrei sama rétt til greiðslna og aðr-
ir en þurfa samt að greiða í sjóðinn
af öllum sínum launum. Þykir þetta
í lagi?
En er yfirhöfuð eitthvert öryggi í
því að greiða í lífeyrissjóð? Nei, ekki
hvað örorku varðar. Því skyldi eng-
inn halda að hann sé „tryggður“ ef
hann slasast eða veikist.
Ég á nefnilega líka eiginmann
sem hefur þrælað og stritað alla
sína ævi. Hann varð fyrir því að
slasast í vinnunni og fékk svo
krabbamein í ofanálag. Við héldum
að þar sem hann hafði alltaf greitt í
lífeyrissjóð þá myndi þetta allt
sleppa fjárhagslega (þið munið regl-
una um að lífeyrissjóðir bæti þér
upp tekjutapið). Þegar ljóst var að
hann færi ekki aftur á vinnumark-
aðinn var sótt um í lífeyrissjóði aft-
urvirkt um eitt ár. Urðum við mjög
glöð þegar þar skilaði sér um 1,1
milljón kr. fyrir eitt ár, takk kær-
lega.
Næsta ár brá okkur heldur betur
í brún því Tryggingastofnun krafði
bóndann um rúmar 900.000 kr.
vegna ofgreiðslu örorkubóta. Það
var vegna þess að hann hafði svo
miklar tekjur, þ.e. þessar 1.100.000
kr. úr lífeyrissjóðnum. Þó voru það
bara greiðslur sem voru, eins og lög
gera ráð fyrir, til að bæta upp það
tekjutap sem hann hafði orðið fyrir
vegna slyss og veikinda. En þetta
tók Tryggingastofnun nánast allt
aftur til sín. Hin svokallaða eign í líf-
eyrissjóði skilaði því í raun engu
nema sárindum og reiði og gríðar-
legu álagi á fjölskylduna. Undrast
nokkur að ég sé reið?
Starfsgetumatið margumtalaða
gerir reiðina enn meiri, því matið er
svo vitlaust að hver sem hefur „fulla
fimm“ ætti að sjá það. En innan
stjórnsýslu og þingsins virðast fáir
hafa allar fimmurnar, miðað við
verkin þeirra.
Það er alveg kristaltært að hver
sá sem mælir með þessu mati hefur
ekki glóruhugmynd um líf öryrkja
og hvorki hæfileika né vilja til að
setja sig inn í þær aðstæður. Þeim
sem mæla með þessu mati býð ég að
hitta mig og ræða við mig og mína
auglitis til auglitis því það væri allt
of langt mál að rökstyðja það hér í
litum greinarstúf. Ég er hins vegar
viss um að ekkert ykkar hefur í
raun áhuga á að vita meira, því
þetta snýst jú allt um peninga hvað
ykkur varðar. Og ekki reyna að
segja mér að þeir peningar séu ekki
til.
Það er líka með ólíkindum, eins
og ég hef áður sett í slíka grein, að
fólk með fulla starfsgetu skuli ekki
sjá sóma sinn í að styðja kröfur ör-
yrkja heldur láta eins og því komi
þetta ekki við. Hvað gerist ef fólk
missir heilsuna? Er það til í að hafa
þær tekjur sem hér að ofan greinir?
Er eitthvert ljós fram undan? Lít-
ið, en þó … Ljósið þessa dagana er
að verkalýðsfélögin eru aðeins farin
að taka undir með þessum hópi ein-
staklinga sem verst stendur. Röddin
þaðan mætti þó vera sterkari og
hefði löngu átt að vera orðin mun
háværari.
Katrín, Bjarni og Sigurður,
skammist til að standa við gefin lof-
orð og afnemið strax krónu-á-móti-
krónu-skerðinguna. Það væri a.m.k.
góð byrjun, eða segið af ykkur ella.
Þetta gengur einfaldlega ekki leng-
ur.
Reiðin kraumar
Eftir Sigurlaugu
Guðrúnu I. Gísladóttur »En er í alvöru eitt-
hvert öryggi að
greiða yfirleitt í lífeyr-
issjóð? Nei, ekki hvað
örorku varðar. Svo ekki
halda að þú sért
„tryggður“ ef þú slasast
eða veikist.
Sigurlaug Guðrún I
Gísladóttir
Höfundur er verslunarmaður á
Blönduósi.
Örorkulífeyrir 44.866
Aldurstengd örorkuuppbót 44.866
Tekjutrygging 143.676
Heimilisuppbót (sem ekki allir fá) 48.564
Framfærsluuppbót 18.028
Samtals: 300.000
Frádreginn skattur (1. þrep) -110.820
Persónuafsl. (skattkort 100%) 53.895
Samtals frá TR eftir skatt: 243.075
Þeir sem ekki fá heimilsuppbót
því þeir búa eða leigja með öðrum 194.511
Atvinna