Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 47
UMRÆÐAN 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 L I N D B E R G 00 Optical St.udio SMARALIND • LEIFSSTO0 • KEFLAVIK Ég er reið, alveg svaðalega reið, en sem betur fer gríp ég bara til „pennans“ en ekki hnefans. Fyrr- verandi og núverandi ríkisstjórnir Íslands eru orsök þessarar uppsöfn- uðu reiði og ef ekki eitthvað stór- kostlegt gerist snemma á þessu ári mun svo sannarlega gjósa. Ég við- urkenni að þessi uppsafnaða reiði beinist líka að hagsmunasamtökum öryrkja sem enn halda úti samræð- um við stjórnvöld en láta teyma sig á asnaeyrunum. Reiðin beinist líka að þeim sem skrifa pistla eins og kona með þrjár háskólagráður skrif- aði fyrir nokkru, en hún gaf í skyn að betra væri bara að fara á örorku og fá íbúð hjá ÖBÍ en að standa í harkinu sem fylgir hinum íslenska leigumarkaði. Við þann lestur sauð upp úr hjá mér. Að einstaklingur með þrjár háskólagráður skuli vera svo fáfróður sýnir best hvað þessi þjóðfélagshópur, sem hvað verst stendur, glímir við, því sá sem veit það skrifar hvorki né segir svona. Hvað veit ég um þessi mál? Ég á fjögur börn, þar af þrjá stráka sem allir eru fæddir lög- blindir og tilheyra því þeim hópi sem kallast öryrkjar. Þeir eru dæmdir til ævilangrar fátæktar og eru í raun allar bjargir bannaðar. Fötlun þeirra fylgir ýmis auka- kostnaður sem við hin þurfum ekki að greiða og ekki minnkar hann við að búa úti á landi og hafa ekki að- gang að eðlilegri ferðaþjónustu nema standa í sífelldu betli til sveit- arfélagsins um að greiða ákveðið margar ferðir á mánuði. Ekki nóg með það heldur þurfa þeir að skila inn skýrslu um hvert á að ferðast. Hver myndi sætta sig við það? Ekki þeir og því leggja þeir mikið á sig til að vera óháðir og lifa sínu lífi án þess að hópur fólks sé með nefið of- an í þeirra málum. Þeir stunda líka vinnu en þeir fá ekkert fyrir hana þar sem stjórnvöld taka nánast hverja krónu til baka vegna regl- unnar um krónu-á -móti-krónu- skerðingu. Hver sættir sig við launalausa vinnu? Eiga ekki sama rétt og aðrir Þeim er líka gert að greiða í líf- eyrissjóð en eiga þó ekki sama rétt úr þeim og aðrir. Af hverju? Jú, ef þú slasast á starfsævi þinni og verð- ur að hætta að vinna færðu ekki bara örorku frá Tryggingastofnun heldur einnig úr lífeyrissjóði þínum. Greiðslurnar úr þeim sjóði miðast við að bæta þér upp það tekjutap sem þú verður fyrir vegna slyssins. En strákarnir mínir fá ekki krónu úr sínum sjóði því reglurnar eru þannig að þú færð greitt úr sjóðnum miðað við þær tekjur sem þú hafðir áður en þú ferð á örorku. Þar sem þeir eru fæddir svona er vitaskuld ekki um neinar tekjur að ræða fyrir örorku. Það þýðir að þeir öðlast aldrei sama rétt til greiðslna og aðr- ir en þurfa samt að greiða í sjóðinn af öllum sínum launum. Þykir þetta í lagi? En er yfirhöfuð eitthvert öryggi í því að greiða í lífeyrissjóð? Nei, ekki hvað örorku varðar. Því skyldi eng- inn halda að hann sé „tryggður“ ef hann slasast eða veikist. Ég á nefnilega líka eiginmann sem hefur þrælað og stritað alla sína ævi. Hann varð fyrir því að slasast í vinnunni og fékk svo krabbamein í ofanálag. Við héldum að þar sem hann hafði alltaf greitt í lífeyrissjóð þá myndi þetta allt sleppa fjárhagslega (þið munið regl- una um að lífeyrissjóðir bæti þér upp tekjutapið). Þegar ljóst var að hann færi ekki aftur á vinnumark- aðinn var sótt um í lífeyrissjóði aft- urvirkt um eitt ár. Urðum við mjög glöð þegar þar skilaði sér um 1,1 milljón kr. fyrir eitt ár, takk kær- lega. Næsta ár brá okkur heldur betur í brún því Tryggingastofnun krafði bóndann um rúmar 900.000 kr. vegna ofgreiðslu örorkubóta. Það var vegna þess að hann hafði svo miklar tekjur, þ.e. þessar 1.100.000 kr. úr lífeyrissjóðnum. Þó voru það bara greiðslur sem voru, eins og lög gera ráð fyrir, til að bæta upp það tekjutap sem hann hafði orðið fyrir vegna slyss og veikinda. En þetta tók Tryggingastofnun nánast allt aftur til sín. Hin svokallaða eign í líf- eyrissjóði skilaði því í raun engu nema sárindum og reiði og gríðar- legu álagi á fjölskylduna. Undrast nokkur að ég sé reið? Starfsgetumatið margumtalaða gerir reiðina enn meiri, því matið er svo vitlaust að hver sem hefur „fulla fimm“ ætti að sjá það. En innan stjórnsýslu og þingsins virðast fáir hafa allar fimmurnar, miðað við verkin þeirra. Það er alveg kristaltært að hver sá sem mælir með þessu mati hefur ekki glóruhugmynd um líf öryrkja og hvorki hæfileika né vilja til að setja sig inn í þær aðstæður. Þeim sem mæla með þessu mati býð ég að hitta mig og ræða við mig og mína auglitis til auglitis því það væri allt of langt mál að rökstyðja það hér í litum greinarstúf. Ég er hins vegar viss um að ekkert ykkar hefur í raun áhuga á að vita meira, því þetta snýst jú allt um peninga hvað ykkur varðar. Og ekki reyna að segja mér að þeir peningar séu ekki til. Það er líka með ólíkindum, eins og ég hef áður sett í slíka grein, að fólk með fulla starfsgetu skuli ekki sjá sóma sinn í að styðja kröfur ör- yrkja heldur láta eins og því komi þetta ekki við. Hvað gerist ef fólk missir heilsuna? Er það til í að hafa þær tekjur sem hér að ofan greinir? Er eitthvert ljós fram undan? Lít- ið, en þó … Ljósið þessa dagana er að verkalýðsfélögin eru aðeins farin að taka undir með þessum hópi ein- staklinga sem verst stendur. Röddin þaðan mætti þó vera sterkari og hefði löngu átt að vera orðin mun háværari. Katrín, Bjarni og Sigurður, skammist til að standa við gefin lof- orð og afnemið strax krónu-á-móti- krónu-skerðinguna. Það væri a.m.k. góð byrjun, eða segið af ykkur ella. Þetta gengur einfaldlega ekki leng- ur. Reiðin kraumar Eftir Sigurlaugu Guðrúnu I. Gísladóttur »En er í alvöru eitt- hvert öryggi að greiða yfirleitt í lífeyr- issjóð? Nei, ekki hvað örorku varðar. Svo ekki halda að þú sért „tryggður“ ef þú slasast eða veikist. Sigurlaug Guðrún I Gísladóttir Höfundur er verslunarmaður á Blönduósi. Örorkulífeyrir 44.866 Aldurstengd örorkuuppbót 44.866 Tekjutrygging 143.676 Heimilisuppbót (sem ekki allir fá) 48.564 Framfærsluuppbót 18.028 Samtals: 300.000 Frádreginn skattur (1. þrep) -110.820 Persónuafsl. (skattkort 100%) 53.895 Samtals frá TR eftir skatt: 243.075 Þeir sem ekki fá heimilsuppbót því þeir búa eða leigja með öðrum 194.511 Atvinna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.