Morgunblaðið - 10.01.2019, Síða 48

Morgunblaðið - 10.01.2019, Síða 48
27. mars - 7. apríl VERÐ 293.950.- á mann í 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug, hótel í London, hótel með hálfu fæði í Albaníu, öll keyrsla í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar og aðgangur þar sem við á. Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni, gríðar fallega náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð. 48 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 Ein skilgreiningin á andlegu ofbeldi, einelti eða áreiti er: „Athöfn af endurtekinni árás- argjarnri hegðun til þess að vísvitandi skaða annan aðila. Þetta ein- kennist af því að ein- staklingur hegðar sér á ákveðinn hátt til að öðl- ast vald yfir annarri manneskju.“ Þeir sem áreita nýta sér veik- leika: líkamlegar takmarkanir, sjúk- dóma, andleg eða tilfinningaleg vandamál, lægri félagslega stöðu, fötlun o.s.frv. Þessir aðilar hafa oft eigin sálfræðileg vandamál og sumir hafa jafnvel lítið sjálfsálit, fíkni- vandamál, reiði eða aðrar persónu- legar truflanir. Árásargjörn hegðun svona aðila er yfirleitt leið til að bæta fyrir eigin vanhæfni og miðgildi. Samkvæmt könnun hjá Reykjavík- urborg og niðurstöðum úr henni, sem birtar voru í skýrslu velferðar- ráðuneytis á árinu 2015, kom í ljós að um 10% starfsmanna sögðust hafa orðið fyrir áreitni í starfi á síðustu 12 mánuðum. Ef þessar niðurstöður væru færðar yfir á allan vinnumark- aðinn hér á landi (203.500 manns í janúar 2018) væri þetta um 20.000 manns á ári. Í Bandaríkjunum segja rannsóknir að 17% þeirra sem verða fyrir áreitni telji sig ekki hafa annan kost en segja upp starfi sínu og ef töl- urnar eru sambærilegar hér á Íslandi væri þetta um 3.400 manns. Talið er að kostnaður fyrirtækja og stofnana vegna starfsbreytinga geti verið allt að 40% ofan á hefðbundin laun. Mið- að við meðalmánaðarlaun hjá VR (kr. 700.000) gæti árlegur aukinn rekstr- arkostnaður vegna áreitni á vinnu- stöðum verið 10 til 11 milljarðar á ári. Það eru því miður ekki til góðar rannsóknir sem sýna þá þróun sem hefur orðið hér á Íslandi í gegnum árin varðandi áreitni, en margir hafa á tilfinningunni að þetta hafi eitthvað lagast seinni árin og sérstaklega á árinu 2018 vegna „Metoo“- byltingarinnar. Hér um að ræða mik- ið þjóðfélagslegt mein og gríðarlegan kostnað sem fyrirtæki og stofnanir sitja uppi með sem af- leiðingu af þessu vandamáli. Það er því til mikils unnið að bæta vinnustaðamenninguna hér á Íslandi. Gæti lækkað launakostnað Nýlega hefur ákveð- inn hópur aðila í sam- félaginu tekið sig sam- an um að stuðla að betra siðferði í sam- félaginu og stofna til verkefnis undir formerkjum www.sidferdi.is. Fyrsta stóra verk- efnið verður að kynna siðferðissátt- mála fyrir vinnustaði sem gæti verið besta leiðin til að minnka líkur á and- legu ofbeldi, einelti og áreitni. Í sið- ferðissáttmála myndu starfsmenn skrifa undir samkomulag um ákveðnar leikreglur í samskiptum sín á milli. Samhliða þessu væri áhuga- vert að starfsfólk mundi læra ákveð- in grunnatriði í samskiptafærni sem væru byggð á virðingu, umburð- arlyndi og skilningi. Með því að setja saman ákveðin gildi og grunnviðmið í siðferðissáttmála væri verið að leggja grunn að aukinni yfirvegun og ábyrgð í samskiptum í starfsum- hverfi fyrirtækja og stofnana. Þannig væri dregið úr því að starfsmenn beiti yfirgangi og lögð áhersla á að allir vinni saman innan ákveðins ramma. Með þessu væri lagður grunnur að minna einelti og áreitni sem gæti skilað verulega lægri launakostnað í fyrirtækjum og stofn- unum. Siðferðissáttmáli gæti sparað allt að 10-11 milljarða á ári Eftir Guðmund G. Hauksson Guðmundur G. Hauksson »Miðað við meðalmán- aðarlaun hjá VR (kr. 700.000) gæti aukinn rekstrarkostnaður vegna áreitni á vinnu- stöðum verið 10-11 milljarðar á ári. Höfundur er stofnaðili að www.sid- ferdi.is og framkvæmdastjóri Gordon Training Iceland. gudmundur@gordon.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Í tíu ár lögðum við hjónin reglulega fyrir af laununum okkar til að láta drauminn ræt- ast um að eignast góðan og vel útbúinn ferðabíl fyrir íslenskar að- stæður. Ef ég hefði fengið allt það sem við lögðum fyr- ir á þessum árum í einu launaumslagi þá hefði staðið kr. 33.000.000 efst á launaseðl- inum. Eftir að hafa gert skattayfirvöldum skil með ca. 38% eða 12.500.000 kr. greiðslu í skatt af þessari upphæð hefði ég haft milli handanna 20.500.000 til að leggja inn í bankann. Þegar búið var að safna og safna í öll þessi ár var loksins komið að því að festa kaup á bílnum sem gekk eins og í sögu. Við pöntuðum bílinn á netinu og völdum í hann búnað sem þarf að prýða góðan ferðabíl: eldavél, salerni, sól- arsellu, rúmdýnur, eld- húsinnréttingu, fata- skápa, skúffur, eldhúsborð og fl. Merzedes Bens Sprinter, þýskur eð- alvagn, kostaði kr. 4.803.423 frá verksmiðju og síðan kostuðu inn- réttingar og vinna við ísetningu og frágang kr. 4.890.367 og kr. 450.000 kostaði að flytja bílinn til landsins, samtals 10.143.790 ís- lenskar krónur. Þar sem vélin í slíkum eðalvagni losar 230 grömm af CO2 pr. km í blönduðum akstri leggst á 60% vöru- gjald af verði bifreiðarinnar, eða alls 6.134.453 kr. Ósanngjarnt eða ekki ósanngjarnt Yfirvöld virðast gera ráð fyrir að eldavélin, salernið, sólarsellan, rúm- dýnan, eldhúsinnréttingin, fataskáp- Skattar og gjöld á skatta ofan og skattar ofan á það Eftir Ferdinand Hansen » Yfirvöld gera ráð fyrir að salernið, sól- arsellan, rúmdýnan, fataskáparnir og eld- húsborðið losi einnig 230 grömm af CO2 á hvern ekinn kílómetra. Ferdinand Hansen Höfundur er gæða- og öryggisstjóri. ferdinand@hansen.is arnir, skúffurnar og eldhúsborðið losi einnig 230 grömm af CO2 á hvern ek- inn kílómetra. Að minnsta kosti er einnig reiknað 60% vörugjald á þessa hluti sem einir og sér bera lítið eða ekkert vörugjald við hefðbundinn innflutning til landsins. Um helmingur af sex milljóna króna vörugaldinu er því innheimtur vegna hús- og ferðabúnaðar sem hef- ur ekkert með mengun vélarinnar að gera. Þessu til viðbótar kemur svo virð- isaukaskattur, kr. 3.927.401, sem að sjálfsögðu leggst einnig ofan á 60% vörugjaldið af húsbúnaðinum. Draumabíllinn kostaði rúmlega kr. 10.000.000 í innkaupum erlendis. Af þeim tekjum sem við þurftum að afla til að láta draum um ferðabíl rætast höfum við hjónin því þurft að greiða eins og upptalningin hér að ofan sýn- ir, samtals tæplega 23.000.000 kr. beint í ríkissjóð. Greiðir sá sem mengar? Ef sendibílstjóri hefði keypt sam- bærilega bifreið, óinnréttaða að sjálf- ögðu, þá hefði hann einungis þurft að greiða 13% vörugjald þrátt fyrir sömu losun á CO2. Sendibílum er ekið mikið á hverju ári, varlega áætlað um 50.000 km. Sérútbúnum ferðabíl til einkanota á Íslandi er á hinn bóginn varla ekið meira en 5.000 km að meðaltali á ári. Á þeim forsendum skilur sá sem þarf að greiða 60% vörugjald eftir sig 1.150 kg af CO2 á ári en sá sem þarf aðeins að greiða 13% skilur eftir sig 11.500 kg af CO2. Mjög svo sann- gjarnt ekki satt? Enn höfum við hjónin eitthvað að hlakka til! Það var mikil tilhlökkun alla þá tíu mánuði sem við þurftum að bíða eftir nýja bílnum frá því við pöntuðum og þar til hann stóð hér á götunni tilbú- inn til notkunar. Nú sitjum við hjónin og bíðum eftir sumrinu með mikilli tillhökkun, ekki síst vegna þeirrar boðunar yfirvalda að brátt fáum við að greiða og greiða, meira og meira, aftur og aftur, skatta og skyldur í formi eldsneytisgjalda, þungaskatts og nú síðast vegatolla. Við getum líka glaðst yfir því að hafa lagt eitthvað til samfélagsins því það er nokkuð víst að ferðabíllinn okkar er hlutfallsega miklu arðbærari fjár- festing fyrir ríkissjóð en sjálf Lands- virkjun. Þegar stjórnvöld ákveða reglulega að bæta við gjöld, skatta og tolla í ýmsum myndum verður æ minna eft- ir af umsömdum launum eins og þetta dæmi sýnir og þarf þá engan að undra þó almenningur þurfi jafn reglulega að sækja sér launahækk- anir. Og nei, þetta er ekki pistill um mataræði og hreyfingu en eflaust margir sem byrja á því að hugsa um það. Við höfum flest tekið eftir ýktum lífsstílsbreyt- ingum hjá fólki á síð- ustu árum þar sem lífsstíllinn er tekinn í gegn og fólk fer á sér- stakt námskeið í rækt- inni, aðhyllist sér- stakan matarkúr, fer í jógakennara- nám og opnar jógastöð, byrjar í kraftlyftingum og lengi mætti telja. Allt þetta höfum við verið að gera vegna ákveðinnar uppgötvunar. Við höfum nefnilega áttað okkur á að við þurfum að passa mataræði, hreyf- ingu og svefn ef við viljum verða gömul og gráhærð. En við gleymd- um einu mikilvægu atriði í þessum pælingum okkar; hvar við ætlum að verða gömul og grá. Þar af leiðandi höfum við ekki verið mjög meðvituð um að hugsa vel um jörðina okkar þó að auðvitað hafi orðið vakning í þeim málum á síðustu árum. Við fáum þetta hins vegar allt í bakið. Hverju skiptir að vera heilsu- hraust ef óstöðugt veðurfar hindrar matjurtaræktun? Þó að við getum hlaupið maraþon og lyft lóðum ráð- um við ekki við náttúruhamfarir. Og ekki getum við klifið fjöll eða hjólað um í menguðu lofti. Heilbrigður lífs- stíll er ekki bara matur og hreyfing heldur er sjálfbærni einn af grunnþáttunum. Við ættum því öll að temja okkur umhverf- isvænan lífsstíl. Lífsstíl sem minnkar vistspor okkar. Að minnsta kosti ef við viljum vera heil- brigð, þá þurfum við heilbrigt umhverfi. En hvað felst þá í umhverf- isvænum lífsstíl? Hvað þarf að gera? Það eru ótalmargir litlir hlutir sem geta skipt miklu máli í stóra samhenginu. Það þarf bara að vera meðvitaður um þá og hafa vilja til að framkvæma þá, en það er alltaf erfitt að breyta um vana. Alveg eins og það var erfitt að skipta sjónvarpsglápi út fyrir rækt- artíma. Þú getur samt hugsað að þú sért vanur/vön svona lífsstílsbreyt- ingum og þar af leiðandi verður þetta ekkert mál! Til að koma sér af stað er mjög gagnlegt að nota heimasíðuna graenn.is. Þar er að finna ótal ráð- leggingar um litla hluti sem við get- um framkvæmt. Og þegar við erum öll farin að gera litlar breytingar fer það að hafa áhrif á stóra samhengið. Breyttu um lífsstíl Eftir Elínu Ósk Arnarsdóttur Elín Ósk Arnarsdóttir »Ef við viljum vera heilbrigð þurfum við heilbrigt umhverfi. Höfundur er umhverfissinni og jóga- kennari. elinoskarnars@gmail.com Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.