Morgunblaðið - 10.01.2019, Side 59
MINNINGAR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
✝ Sigríður Sig-urðardóttir var
fædd á Vatni í
Haukadal í Dala-
sýslu 24. október
1938. Hún lést 21.
desember 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður
Jörundsson bóndi,
f. 23. júlí 1903, d.
23. júní 1965, og
Sveinbjörg Krist-
jánsdóttir kennari, f. 2. júlí
1904, d. 26. október 1980.
Systkini Sigríðar eru Bogi Sig-
urðsson, f. 21. ágúst 1936, Jök-
ull Sigurðsson, f. 24. október
1938, d. 20. febrúar 1994, Guð-
rún Sigurðardóttir, f. 24. októ-
ber 1939, d. 6. september 2011,
og Fríður Sigurðardóttir, f. 15.
mars 1944, d. 26. ágúst 2000.
Sigríður giftist Svavari Reyni
Benediktssyni bifreiðastjóra, f.
18. mars 1935. Börn þeirra eru:
1) Sigurður Haukur, rekstrar-
stjóri, f. 25. október 1968.
Eiginkona hans er Þórlaug
Hildibrandsdóttir, f. 9. desem-
ber 1967. Sigurður á Klöru
Alexöndru Sigurðardóttur, f.
þá flutti hún til Reykjavíkur þar
sem hún gekk í Laugarnes-
skóla. Eftir barnaskólann hóf
Sigríður störf hjá Heildverslun-
inni Ágúst Ármann og vann þar
í tæp tvö ár en lagði svo leið
sína í Húsmæðraskólann á
Varmalandi 18 ára gömul. Fljót-
lega eftir útskrift þaðan flutti
hún aftur vestur í Dali þar sem
hún hjálpaði föður sínum með
búskapinn á Vatni ásamt því að
vinna í Kaupfélagi Hvamms-
fjarðar í Búðardal næstu sjö
árin. Þegar hún var 29 ára, árið
1967, flutti hún aftur suður til
Reykjavíkur og hóf störf í Bún-
aðarbankanum. Fyrst starfaði
hún við ýmis almenn bankastörf
en vann svo lengst af í afurða-
lánadeild bankans. Hún gerði
hlé á bankavinnunni í nokkur ár
meðan börnin voru lítil og vann
þá hjá Pósti og síma styttri
vinnudag. Hún hóf aftur störf í
bankanum og vann síðustu árin
í póstdeild bankans, sem hét þá
KB banki, þar sem hún lauk
störfum sökum aldurs 65 ára,
árið 2003. Sigríður tók að sér
ýmis störf eftir það og vann úti
til 73 ára aldurs, sem dæmi í
versluninni Þingholti við
Grundarstíg og sjálfboðavinnu
hjá Rauða krossinum í verslun
Barnaspítala Hringsins og fleiri
verslunum á þeirra vegum.
Útför Sigríðar fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
26. júlí 1993. Móðir
hennar er María
Berglind Odds-
dóttir. Börn Sig-
urðar og Þórlaugar
eru Sölvi Snær Sig-
urðarson, f. 1.
október 1995, og
Hekla Dröfn, f. 13.
mars 1998. 2)
Sveinbjörn Rúnar,
deildarstjóri, f. 15.
febrúar 1971. Sam-
býliskona hans er Izabela
Gryta, f. 15. janúar 1971. 3)
Sunna Mjöll, f. 28. maí 1972, d.
14. maí 1978. 4) Svala, við-
skiptafræðingur, f. 1. maí 1974.
Sambýlismaður hennar er Ey-
þór Jón Gíslason, f. 1. apríl
1975. Svala á Katrínu, f. 14.
febrúar 2006, og Ísak, f. 6.
desember 2007. Faðir þeirra er
Einar Jón Geirsson. 5) Bene-
dikta Guðrún, framkvæmda-
stjóri, f. 12. ágúst 1979. Sam-
býlismaður hennar er Ingirafn
Steinarsson, f. 16. mars 1973.
Þau eiga soninn Hörð Áka f. 6.
október 2016.
Sigríður ólst upp á Vatni í
Dalasýslu til tíu ára aldurs en
Elsku mamma, með örfáum
orðum langar mig að kveðja þig
hér. Þú kenndir mér svo margt
gott og það er svo áþreifanlegt
núna þegar ég stend hér, aðeins
örfáum klukkustundum eftir að
þú ert farin frá okkur, að búa til
jólaísinn. Þú kenndir mér með þol-
inmæði að skilja að eggjarauðurn-
ar frá hvítunum, vera alveg ískald-
ur og slá eggið í tvo hluta og velta
svo rauðunni á milli og láta hvít-
una leka í krukku, og veistu: ég er
algjör meistari í þessu, mamma,
finn það núna því ég slæ 12 egg
eins og ekkert sé, þú kenndir mér
þetta vel.
Þú varst svo góð fyrirmynd og
réttlætiskenndin var mikil, þú
kenndir mér að elska lög og ljóð
og þann arf mun ég passa vel til
æviloka. Hlýjar eru minningarnar
úr Sunnuhlíð þar sem þú ásamt
systkinum þínum og mökum
sunguð heilu kvöldin og við börnin
hlustuðum með lotningu á. Mér er
minnisstætt þegar ég var að fara í
„slarkferð“ með vinum mínum,
kominn á töffaraaldur, og já það
var vín með. Þá smurðir þú fullt
box af samlokum og sendir með í
ferðina því þú vissir betur. Mér
fannst þetta nú ekki alveg vera að
gera sig, var skíthræddur að vin-
irnir myndu gera grín að mér, að
mæta með þetta koffort í ferðina
passaði ekki og það var nú líka
gert létt grín að þessu til að byrja
með. Það breyttist nú snögglega
þegar allir voru orðnir frekar
slæptir og svangir því þá voru
samlokurnar algjör björgun og
hið mesta lostæti og þú varst í
guðatölu hjá mínum vinahópi eftir
þetta.
Heimilið okkar í Asparfelli var
alltaf öllum opið, þú taldir aldrei
inn, það máttu koma eins margir
gestir og við vildum og þeir voru
ófáir mjólkurlítrarnir sem var
rennt niður. Þú talaðir ávallt við
vini mína eins og fullorðið fólk og
baðst þá um að passa mig ef það
var verið að fara á skrall. Þú trúðir
og hafðir mikinn innri styrk sem
ég finn að öll fjölskyldan nýtur nú
góðs af á þessum erfiða tíma sem
við göngum í gegn um. Æðruleys-
ið kenndir þú okkur öllum og að
erfiðu stundirnar kenna manni og
styrkja. Takk fyrir allt sem þú
gafst mér, elsku mamma, ég skal
gera mitt besta og bera kyndil
þinn og kenna mínum börnum það
sem þú kenndir mér og sennilega
er ég byrjaður á því án þess að
vita af því.
Ég hef hlustað svo oft á hin hljóðu tár,
hin hljóðu tár, sem í myrkrinu falla,
svo harmþrungin, vonlaus og veik og
þjáð,
eins og veiks manns stuna, sem heyrist
varla.
(Steinn Steinarr)
Þinn sonur,
Sigurður Haukur.
Elsku mamma mín.
Það er skrítið að hugsa til þess
að þú sem hefur fylgt mér í gegn-
um allt lífið sért ekki lengur hér
hjá okkur. Undanfarin ár hef ég
fengið símtal frá þér flesta
fimmtudaga og föstudaga þegar
þú varst búin að leysa krossgátu-
lausnir sem ég sendi fyrir þig og
það var alltaf gott að heyra í þér.
Einnig þegar maður lagði land
undir fót og fór í ferðalög kom oft
símtal frá þér og þú vildir vita
hvort allir hefðu komist heilir á
leiðarenda. Trú þín var sterk og
veit ég að við í fjölskyldunni vor-
um oft í bænum þínum þegar erfið
verkefni eða ferðalög voru fram
undan.
Góðar minningar rifjast upp
núna þegar maður hugsar til þín.
Dugnaður og vinnusemi hjá þér
og pabba var mikil. Maður áttaði
sig ekki á því fyrr en seinna að
þetta var allt fyrir okkur systkinin
gert. Það var líf og fjör í Asparfell-
inu og oft voru mestu lætin í íbúð
3-B (íbúðinni okkar) en þangað
voru öll börn velkomin og um-
burðarlyndi og þolinmæði þín
gagnvart öllum var mikil og þú
vildir gefa öllum ákveðið frelsi til
að vera þeir sjálfir og fengum við
oft að ganga ansi langt í að um-
turna íbúðinni og vera með læti.
Sterkt í minningunni er þegar þú
gafst okkur börnunum hveiti sem
við kölluðum leikarahveiti sem við
gátum notað aftur og aftur á eld-
húsborðinu þar sem leikfangabíl-
ar og annað kom við sögu. Það
hlýtur að hafa verið talsverð vinna
að ganga frá og þrífa eftir þetta og
eflaust ekki margir foreldrar sem
hefðu haft þolinmæði í svona.
Þegar ég var orðinn eldri og
byrjaði að smakka áfengi og fara í
partí kom auðvitað að því að halda
partí heima. Þú og pabbi fóruð í
leikhús eða á gömlu dansana og
þegar þið svo mættuð heim og
partí í fullum gangi héldu margir
að nú væri partíinu lokið. Aldeilis
ekki, þið kveiktuð á samlokugrill-
inu og enginn fór svangur heim.
Söngur var þér alltaf hjartfólg-
inn og átt þú stóran þátt í hvar ég
er staddur á því sviði þó svo að
mig hefði ekki grunað það á yngri
árum þegar ég fór stundum með
þér á kóræfingar að ég myndi einn
daginn vera í kór.
Þú varst kletturinn okkar
þegar maður fór að reka sig á í líf-
inu og ef einhver gerði á okkar
hlut með óréttlæti þá lést þú til þín
taka og það fékk enginn að vaða
yfir okkur, en alltaf varstu réttlát
og sanngjörn. Einnig var gaman
hvað þú kunnir mikið af vísum og
áttir oft einhverja góða sem hæfði
tilefninu hverju sinni við hin ýmsu
tækifæri.
Lífið býður upp á skin og skúrir
og það var erfitt að missa Sunnu
Mjöll aðeins sex ára gamla og hef-
ur þetta eflaust alltaf haft áhrif á
marga hluti á lífsleiðinni og ákveð-
inn söknuður og sorg sem er alltaf
til staðar og fór mögulega að bíta
fastar þegar um hægðist og þú bú-
in að skila góðu og miklu ævistarfi.
Nú trúi ég því að þið séuð samein-
aðar á ný og er ég viss um að þið
eruð á góðum stað með mörgum
ástvinum. Og hver veit nema Stóri
Skjóni og fleiri góðir fákar séu
þarna hjá ykkur.
Ég mun geyma góðar minning-
ar um frábæra mömmu sem var
svo ótrúleg og einstök manneskja
á svo marga vegu. Takk fyrir allt.
Guð geymi þig, elsku mamma mín.
Sveinbjörn Rúnar
Svavarsson.
Elsku mamma mín.
Ég hef oft hugsað um það
augnablik þegar ég fengi fréttirn-
ar að þú myndir kveðja þennan
heim og fyllst sorg og kvíða, þó
svo að ég vissi að þú værir farin að
þrá að fá hvíldina eilífu þá var ég
ekki tilbúin. Ég hef saknað þín í
mörg ár og ég vonaði alltaf innst
inni að þú kæmir til baka til mín,
elsku mamma mín, og við gætum
rætt allt og allt.
Þegar ég fæðist er Sunna systir
veik og fyrstu fjögur árin mín
börðust þið pabbi með henni við
hvítblæðið sem sigraði að lokum
og við misstum Sunnu okkar að-
eins 6 ára gamla. Ég get ekki
ímyndað mér ykkar harmleik en
alltaf voruð þið eins og klettar í lífi
okkar systkinanna og stóðuð ykk-
ur eins og hetjur. Þú varst svo
sterk, kraftmikil og sjálfstæð og
kenndir mér svo margt, mamma
mín. Heimili okkar var alltaf öllum
opið og voru vinir okkar systkin-
anna tíðir gestir á heimilinu og oft
vorum við ansi mörg því það var
enginn hafður út undan, allir vel-
komnir alltaf og ef það bar upp á
kvöldmat þá fengu allir að borða
líka. Þú hafðir svo sterka réttlæt-
iskennd og þér var svo umhugað
um sanngirni í lífinu og leist ávallt
alla menn jafnt og vildir hjálpa öll-
um. Þetta var svo sterkt í þér og
þegar þú varst að nálgast sjötugs-
aldurinn hófst þú störf í verslun-
um Rauða krossins til að halda
áfram að láta gott af þér leiða sem
þú annars gerðir alla tíð í svo
margvíslegri mynd. Þú trúðir allt-
af á það besta í manninum og með
þessum sterka náungakærleik
kenndir þú okkur auðmýkt og að
dæma ekki aðra heldur reyna að
skilja vegferð hvers manns.
Þú ert svo falleg sál, mamma
mín, og ég sakna þín mikið og er
hrygg í hjarta því að síðustu árin
hafa verið þér svo erfið og ég hef
alltaf sætt mig illa við það. Þú
varst svo mikill skörungur og
lagðir svo mikið af mörkum og
varst svo dugleg og þess vegna
var erfitt að horfa upp á þig veika í
sálartetrinu þegar starfsævinni
lauk, það var eins og það væri allt
búið á tanknum hjá þér og áföll
fyrri ára sem aldrei var unnið úr
og dundu á þér. Þú varst svo
þrjósk, vildir enga hjálp og það
voru mörg erfið árin þegar maður
reyndi að hjálpa en svo var allur
vindur úr manni og ekkert hægt
að gera nema leyfa þér að hafa
þetta eins og þú vildir en það
fylgdi mikil sorg þessum örlögum
þínum fyrir okkur báðar. Viðskiln-
aðurinn núna er því mjög erfiður
og þungur og skilur mig eftir með
margar spurningar. Tilfinning-
arnar eru flóknar og mikið að
vinna úr en ég finn einhverja ró yf-
ir því að þú sért búin að fá hvíldina
sem þú þráðir og að þú sért komin
til Sunnu okkar. Ég treysti því að
þið saman passið upp á mig og
mína og ég lofa því mamma mín að
vinna sem best úr þessu og reyna
að læra af öllu sem þú kenndir
mér, bæði af gleði þinni og sorg-
um.
Víst er þetta löng og erfið leið,
og lífið stutt og margt, sem út af ber.
En tigið gegnum tál og hverskyns neyð
skín takmarkið – og bíður eftir þér.
(Steinn Steinarr)
Hvíl í friði, elsku mamma, ég
elska þig alltaf.
Svala Svavarsdóttir.
Elsku mamma mín.
Þegar ég fékk símtalið og fann
á pabba að sennilega var kveðju-
stundin runnin upp þá fann ég
fljótt frið í brjósti. Á meðan ég
keyrði heim til ykkar í Asparfellið
reyndi ég að kveðja þig í huganum
í þeim kærleika og ást sem þú
hafðir sýnt öllu lífi í kringum þig
alla tíð. Ég vissi að þú varst tilbúin
í það ferðalag sem beið og hjá okk-
ur var komið að því að takast á við
minningarnar og kveðja.
Fallegu minningarnar um rétt-
sýnu, eldkláru og sjálfstæðu
mömmu mína eru óteljandi og nú
streyma þær um huga minn. Ég
minnist æðruleysisins sem þú
hafðir til lífsins og okkar í kring-
um þig og treystir mér þess vegna
fyrir flestum ákvörðunum og tal-
aðir snemma við mig eins og full-
orðna manneskju. Þú hrósaðir
mér fyrir allt sem ég gerði af góð-
um hug og fylltir mig þannig rétt-
sýni og sjálfstrausti. Þú hafðir mig
með og leyfðir mér að taka þátt,
hvort sem það var að vera hjá þér í
vinnunni, fara með á kóræfingu, til
miðils, á tónleika eða í leikhús.
Mér fannst ég alltaf vera velkomin
og aldrei nokkurn tímann vera
fyrir. Heimurinn stækkaði fyrir
vikið og ég upplifði og kynntist
áhugaverðum sjónarhornum lífs-
ins. Það var fátt betra en hlýtt
fang þitt, fallegur söngur og góða
einlæga nærveran.
Til að reyna að taka þetta sam-
an í færri orð þá fylltir þú tilveru
mína með svo fallegum kærleika
og hlýju að ég hef oft velt því fyrir
mér hvort þeim hæðum verði ein-
hvern tímann náð aftur, en ég
sakna þess oft. Ég hef ekki alltaf
verið viss hvort tilfinningin hafi
verið nátengd tímaskeiði ákveðins
sakleysis hjá mér eða einfaldlega
af því að þú gafst þessa fallegu
gjöf til þíns fólks á meðan þú varst
í blóma lífsins. Kannski skiptir það
ekki öllu máli hvort var, því þenn-
an stað átt þú hjá mér um ókomna
tíð og ég finn fyrir þessari ein-
stöku kærleikstilfinningu þegar
ég rifja upp lífsgönguna með þér.
Ég veit að ég hefði ekki getað ver-
ið heppnari með móður og það
verður alltaf mín gæfa að hafa
fengið að koma í heiminn til ykkar
pabba. Það var erfitt að sjá og
finna hvað þér leið oft illa síðustu
árin og allt of lengi, elsku mamma.
Ég veit að þú ert komin á góðan
stað og að þú vakir yfir okkur.
Hvíldu í friði, ást og kærleika, þín
blessaða ráðgáta Guðs,
Benedikta Guðrún.
Við fjölskyldan frá Vatni minn-
umst með hlýju og þakklæti elsku
mágkonu minnar eða „Siggu
frænku“ eins og hún var oft köll-
uð, sem lést nú fyrir jólin, áttræð
að aldri.
Minningarnar streyma fram.
Hún var tvíburi Jökuls mannsins
míns, en þau voru næstelst syst-
kinanna fimm frá Vatni í Hauka-
dal. Bogi, sá elsti, lifir einn syst-
kini sín. Sigga var stór persóna.
Sem ung kona var hún myndarleg
og geislandi töffari. Hún var vel
gefin og hafði alla tíð mikla unun
af bóklestri og einkum ljóðalestri.
Hún gat farið með fjöldann allan
af ljóðum og naut þess líka að
syngja „fallega“ með fólkinu sínu
vestur í Dölum.
Sagan segir að æði margir ung-
ir menn hafi litið heimasætuna frá
Vatni hýru auga. Það var á end-
anum ungur og myndarlegur
maður, Svavar Benediktsson, sem
hreppti hnossið. Þá var ort: Veit
ég eina Vatnadís, er veldur hjarta-
slætti, enga ég mér aðra kýs, ef að
velja mætti.
Saman gengu þau tvö, Sigga og
Svavar, lífsins veg, í blíðu og
stríðu, í meira en hálfa öld. Traust
og vinátta einkenndi samband
þeirra alla tíð. Þeim varð fimm
barna auðið; Sigurður Haukur,
Sveinbjörn, Sunna Mjöll, Svala og
Benedikta. Þau Sigga og Svavar
þurftu að kveðja litlu dóttur sína,
Sunnu Mjöll, sem lést eftir erfið
veikindi á sjötta ári. Sú lífsreynsla
reyndi mikið á alla fjölskylduna og
ekki síst á Siggu og markaði djúp
spor í hennar sál.
Sigga var alltaf manna
skemmtilegust þegar hún kom
vestur í Dali. Það var alltaf til-
hlökkunarefni á Vatni þegar von
var á Siggu og Svavari með
krakkahópinn á sumrin. Það var
einnig gott að koma í Asparfellið.
Börnin þeirra Siggu og Svavars
eiga öll sterkar rætur vestur í Dali
og hafa verið börnum mínum eins
náin og systkini væru.
Við minnumst góðrar nærveru
Siggu. Hún var hláturmild, beitt í
samfélagsgagnrýni sinni, og ein-
stök í að segja sögur. Sigga hafði
einnig ríka réttlætiskennd og varð
tíðrætt um jafnrétti allra manna.
Ef hún hefði fengið tækifæri til að
mennta sig er nokkuð víst að hún
hefði leitað þess vegs sem gerði
henni helst mögulegt að láta gott
af sér leiða.
Hugur okkar er hjá elsku Svav-
ari, börnum þeirra Siggu og
barnabörnum og öllum sem þótt
vænt um Siggu.
Við þökkum af einlægni allt og
allt með ljóði eftir Stein Steinarr.
Í fjarska, á bak við allt, sem er,
býr andi þess, sem var.
Og andi þess, sem enn er hér,
er ekki þar.
Og okkar sjálfra mark og mið
er mælt við tilgang þann:
Af draumi lífsins vöknum við
og verðum hann.
Að veruleikans stund og stað
er stefnt við hinztu skil,
því ekkert er til nema aðeins það,
sem ekki er til.
(Steinn Steinarr)
Blessuð sé minningin um góða
mágkonu, vinkonu og frænku.
Hugrún Þorkelsdóttir
og fjölskylda frá Vatni.
Sigríður
Sigurðardóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HERMANN JÓNSSON
frá Lambanesi,
Hásæti 2a, Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Sauðárkróki þriðjudaginn 1. janúar.
Útförin fer fram laugardaginn 12. janúar klukkan 14 í
Sauðárkrókskirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.
Auður Ketilsdóttir
Hafþór Hermannsson Anna Steingrímsdóttir
Bryndís Hafþórsdóttir Sigurður Hjartarson
Hermann Hafþórsson Hrafndís Bára Einarsdóttir
Auður Hafþórsdóttir Kristján Árnason
og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
HULDA STEINSDÓTTIR
frá Siglufirði,
lést á Skjóli fimmtudaginn 13. desember.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sigurður Gunnar Hilmarsson Jónína S. Gunnarsdóttir
Sigurborg Jóna Hilmarsd. Ari Már Torfason
Elínborg Hilmarsdóttir Magnús Pétursson
Iðunn Ása Hilmarsdóttir
og ömmubörn hinnar látnu