Morgunblaðið - 10.01.2019, Síða 63

Morgunblaðið - 10.01.2019, Síða 63
manna fjölskyldan aftur austur og settist að á Reyðarfirði þar sem þau stofnuðu verktakafyrirtækið Braga- syni ásamt bróður Páls. Ásta vann við fyrirtækjaráðgjöf í Íslandsbanka næstu sex árin. Þá tók við skemmti- legur tími hjá Þróunarfélagi Austur- lands, krefjandi ár hjá Austurbrú og ýmiss konar félagsstörf sem fylgja oft á tíðum búsetu á minni stöðum. Meðal þeirra samfélagsstarfa sem Ásta sinnti frá árunum 2006-2014 var m.a. sæti í bæjarstjórn Fjarða- byggðar, formennska í atvinnu- og menningarnefnd sveitarfélagsins, sæti í menningarráði Austurlands, stjórnarformaður í Menningar- miðstöð Austurlands og stjórnarseta í Safnahúsinu í Neskaupstað. Þá var Ásta fyrsti varaþingmaður Norð- austurkjördæmis fyrir Sjálfstæðis- flokkinn á árunum 2013-2016. Haldið á ný mið Fyrir sléttum þremur árum sett- ist fjölskyldan upp í bíl á Reyðarfirði og ók litla 700 kílómetra til nýrra heimkynna í Reykjavík. „Það var skítaveður og allir með hnút í mag- anum, mismunandi stóran sennilega en það er bara einu sinni þannig að allar breytingar taka á, sama hvort maður velur að fara út í þær sjálfur eða ekki. Í þessu tilfelli var það ákvörðun okkar að breyta til, prófa eitthvað nýtt, skora á okkur á nýjum sviðum og rjúfa þægindarammann.“ Ásta tók við nýju starfi fram- kvæmdastjóra Íslenska ferðaklas- ans í upphafi árs 2016 og Páll hóf störf hjá Ásafli í Hafnarfirði. Hnútur foreldranna snérist aðal- lega um það hvað þau væru hugs- anlega búin að gera börnunum sín- um, rífa þau upp með rótum úr friðsælu barnvænu umhverfi og demba þeim út í óvissu og óþægindi í nýju umhverfi og fyrir hvað, jú bara af því að þau langaði það. „Þessi hnútur var stór og stækkaði örlítið með hverjum kílómetranum sem leið hjá, að sama skapi stækkaði líka trú- in á að breytingar væru hluti af þroskaferli og maður þyrfti nú slatta af kjarki og hugrekki til að taka þetta skref. Sannfæringin jókst um að við værum í rauninni að stækka möguleika allra á að vaxa og dafna, enginn myndi missa neitt af því sem hann átti fyrir og að allir ættu mögu- leika á að bæta við sig reynslu, nýj- um góðum vinum og ævintýrum sem annars myndu ekki verða til. Það kann að hljóma skrítið en í stóra húsinu á litla staðnum týndust allir dálítið bara í sínu horni. Hér í litlu íbúðinni á stóra staðnum gerum við meira saman. Tíðar sundferðir í snjóbyl og myrkri, gönguferðir með fjórfætluna okkar kvölds og morgna, kaffihúsa- og bíóferðir ásamt nýlegu sumarhúsabrölti svo eitthvað sé nefnt. Það er ómetanlegt, en það þarf auðvitað ekki að flytja milli landshluta til að átta sig á því, maður þarf hinsvegar markvisst að átta sig á því hversu auðvelt er að missa nið- ur þessar mikilvægu samverustund- ir með því að vera sofandi á verð- inum. Stórfjölskyldan öll er síðan dugleg að gera eitthvað skemmtilegt saman og er þessa stundina m.a. stödd öll saman í skíðaferð í Aust- urríki. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta ekki flókið, að gefa sér tíma með fólkinu sínu við að gera allt og ekki neitt er það eina sem raun- verulega skiptir máli.“ Fjölskylda Eiginmaður Ástu er Páll Braga- son, f. 19.7. 1977, starfsmaður hjá Ásafli. Foreldrar: Hjónin Bragi Þór- hallsson, f. 20.5. 1947, d. 11.5. 2002, og Rannveig Pálsdóttir, f. 23.2. 1947, þau voru búsett á Eskifirði en Rann- veig býr núna á Reyðarfirði. Börn: Bragi Hrafn Pálsson, f. 22.8. 2003, og Tanja Ýr Pálsdóttir, f. 16.5. 2006. Bróðir: Guðgeir Freyr Sigurjóns- son, f. 17.5. 1973, forstjóri VHE Ís- landi, búsettur í Kópavogi. Foreldrar: Hjónin Anna Jenný Vilhelmsdóttir, f. 19.5. 1955, skrif- stofumaður hjá VHE á Reyðarfirði, og Sigurjón Kristinn Baldursson, f. 30.9. 1953, starfsmanna- og verk- efnastjóri hjá VHE á Reyðarfirði. Þau eru búsett á Reyðarfirði. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Anna Jenný Vilhelmsdóttir skrifstofumaður á Reyðarfirði Pétur Wilhelm Jensen vélstjóri á Hólmaborg SU Anna Sigríður Finnbogadóttir húsmóðir á Eskifirði Jens Peder Thorberg Jensen útgerðarmaður á Eskifirði Sólveig Baldursdóttir sjúkraliði Sigurður Baldursson bóndi á Sléttu Einar Baldursson kennari í Kópavogi Þórey Baldursdóttir ljósmóðir Jónas Wilhelmsson Jensen yfirlögregluþjónn í Austurlandsumdæmi Guðný Klara Jónsdóttir húsmóðir á Eskifirði Gunnar Valgeir Hallgrímsson vélstjóri á Eskifirði Margrét Ásta Gunnarsdóttir fv. verslunarkona, bús. á Eskifirði Bjarnveig Kristín Jónasdóttir sjúkraliði Klara Jónasdóttir förðunarfræðingur Kristbjörg Jónasdóttir viðskiptafræðingur Guðfinna Kristín Þórðardóttir húsmóðir og bóndi á Hvoli Sigurjón Bjarnason sjómaður og bóndi á Hvoli í Borgarfirði eystra Guðbjörg Jóel Sigurjónsdóttir húsmóðir og hannyrðakona á Sléttu M. Baldur Einarsson bóndi á Sléttu í Reyðarfirði Þórey Sigurðardóttir húsmóðir og bóndi á Klyppstað Einar Sölvason bóndi á Klyppstað í Loðmundarfirði Úr frændgarði Ástu Kristínar Sigurjónsdóttur Sigurjón Kristinn Baldursson loftskeytamaður á Reyðarfirði ÍSLENDINGAR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 Ingólfur Þorsteinsson fæddist 10.januar 1901 í Eyvindartungu íLaugardal, Árn. Foreldrar hans voru hjónin Þorsteinn Jón Jónsson bóndi þar, f. 1852, d. 1919, og Arnheiður Magnúsdóttir hús- freyja, f. 1868, d. 1957. Ingólfur Þorsteinsson naut far- kennslu í tvo mánuði á hverjum vetri í fjögur ár undir ferminguna. Hann vann við almenn sveitastörf og út- róðra á vertíðum og síðan sjó- mennsku aðallega á togurum og einnig bifreiðaakstur í Reykjavík, þar til hann hóf þar starf sem lög- regluþjónn 1. janúar 1930 og fór þá á lögreglunámskeið. Í lögreglunni starfaði hann til sjötugs, árið 1971, eða samtals í rúm fjörutíu ár. Fyrst í almenna lögregluliðinu og síðan við rannsóknir mála. Hann sótti námskeið rannsóknar- lögreglumanna á Englandi 1937 og kynnti sér einnig störf rannsóknar- lögreglumanna í Frakklandi og Þýskalandi. Hann var skipaður varðstjóri í rannsóknarlögreglunni 1940, yfirvarðstjóri 1947, aðstoðar- yfirlögregluþjónn 1963 og yfirlög- regluþjónn rannsóknarlögreglunnar 1969. Ingólfur var meðal stofnenda Lögreglufélags Reykjavíkur og Lögreglukórs Reykjavíkur og í stjórnum þeirra, formaður kórsins 1961 til 1969 og var kjörinn þar heið- ursfélagi 1971. Hann var í Árnes- ingafélaginu frá stofnun og formað- ur þess 1963 til 1967. Var hann sæmdur gullmerki félagsins 1971. Ingólfur var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1974. Eiginkona Ingólfs var Helga Ingveldur Guðmundsdóttir, hús- freyja í Reykjavík, f. 21.4. 1904, d. 30.5. 1992. Börn þeirra: Þorsteinn, f. 1927, d. 1935, Guðmundur, f. 1929, d. 1987, íþróttakennari og forstjóri í Keflavík, Örn Brynþór, f. 1937, íþróttakennari og kaupmaður í Reykjavík, og Þorsteinn, f. 1944, d. 2018, sendiherra og ráðuneytis- stjóri. Ingólfur lést 24. febrúar 1989. Merkir Íslendingar Ingólfur Þorsteinsson 100 ára Kristmundur Bjarnason 95 ára Sveinn Pálsson 90 ára Haraldur Jóhannsson Heiðar B. Marteinsson Hrefna Jónsdóttir Lára Þorsteinsdóttir 85 ára Jóhanna Ásta Þórarinsd. Steinunn Helga Friðriksd. 80 ára Heiða Hrönn Jóhannsdóttir Jóhann Gústafsson Jón Grétar Stefánsson Sigurður Steindórsson Stella Björk Steinþórsdóttir Vilborg Gísladóttir 75 ára Edward Jóhann Frederiksen Kristín Sveinsdóttir Unnur Stephensen 70 ára Bjarni Bjarnason Jón Þórðarson Valborg Sigyn Árnadóttir Valtýr Þór Hreiðarsson Þóroddur Kristjánsson 60 ára Aðalsteinn Sveinsson Aldís Gunnarsdóttir Angantýr Sigurðsson Erla Inga Skarphéðinsdóttir Guðrún Ósk Ólafsdóttir Haraldur Schiöth Elfarsson Helgi Jóhannesson Jens Pétur Jensen Magnús Jóhannsson Magnús Már Jónsson Pétur B. Guðmundsson Sturla Páll Sturluson 50 ára Björn Arnar Ólafsson Guðmundur Þorgrímsson Hengameh Sara Pouladi Jóhanna Arnórsdóttir Jónína Hrönn Símonard. Kolbrún Sveina Björgvinsd. Kristbjörg Erna Björnsd. Kristín Bjartmarsdóttir Laila Ouzizou Marteinn Þór Sigurðarson Sesselja Theodórs Ólafsd. Sigurður Torfi Sigurðsson Stefán F. Benediktsson Sævar Már Magnússon Wenli Wang 40 ára Anna Rósa Einarsdóttir Arnar Már Árnason Berglind Ellen P. Petersen Bjarki Guðmundsson Davíð Halldór Lúðvíksson Einar Hans Þorsteinsson Freyja Gunnlaugsdóttir Haukur Snær Hauksson Kristinn Jónsson Kristín Ásgeirsdóttir Snorri Ingi Jónsson Úlfar Kristinn Gíslason 30 ára Arnar Freyr Óskarsson Birna Harðardóttir Eyrún Arnars Árnadóttir Gerður Rún Ólafsdóttir Grettir Ólafsson Guðjón Steinar Sverrisson Hrafnhildur Rut Hauksd. Járngrímur Kraki Michelsen Ranim Arodki Sigurður Þorri Gunnarsson Waleska G. Þorsteinsson Til hamingju með daginn 40 ára Davíð er frá Akra- nesi en býr á Selfossi. Hann er hugbúnaðarsérfr. hjá Veðurstofunni. Maki: Hulda Dröfn Atla- dóttir, f. 1982, fatahönn- uður. Börn: Embla Rós, f. 2003, Eva Sigríður Jakobsdóttir, f. 2004, Freyja Huld, f. 2013, og Pía Rún, f. 2017. Foreldrar: Lúðvík D. Björnsson, f. 1954, og Halldóra G. Magnúsdóttir, f. 1960, bús. á Akranesi. Davíð Halldór Lúðvíksson 30 ára Hálfdan er Hafn- firðingur. Hann er skipstjórnarmenntaður og er stýrimaður, bílstjóri og háseti hjá Eldingu. Maki: Halla Rós Eyjólfs- dóttir, f. 1992, líffræð- ingur í Læknagarði. Foreldrar: Daníel Hálf- danarson, f. 1954, geisla- fræðingur, og Erna Ingi- björg Pálsdóttir, f. 1955, skólastjóri í Álftanesskóla. Þau eru búsett í Hafnar- firði. Hálfdan Daníelsson 30 ára Hrafnhildur er frá Hvammstanga en býr á Ak- ureyri. Hún er í hjúkr- unarfræðinámi í Háskól- anum á Akureyri. Sonur: Jökull Daði, f. 2005. Systkini: Bryndís Björk Hauksdóttir, f. 1991, Elvar Freyr, f. 1992, og Andri Már, f. 1997, Þorsteins- synir. Foreldrar: Haukur Guð- jónsson, f. 1966, d. 1998, og Sóley Haraldsdóttir, f. 1967, bús. á Akureyri. Hrafnhildur Rut Hauksdóttir Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði ÚTSALAN hefst í dag 30-60% afsláttur af völdum vörum • Undirföt • Sundföt • Náttföt • Náttkjólar • Sloppar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.