Morgunblaðið - 10.01.2019, Page 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Laufey Johansen er alltaf á ferð og
flugi, en þó líklega aldrei meira en á
árinu sem leið og ef að líkum lætur
einnig á þessu ári, jafnvel um ókomin
ár. Fram til þessa hafa flugferðirnar
einkum helgast af því að hún er flug-
freyja hjá Icelandair, en þess utan
hefur listin í auknum mæli togað
hana út í heim. Hennar eigin list vel
að merkja; aðallega svörtu Vúlkan-
málverkin, eins og hún kallar svo, en
líka málverkasyrpan Undur hafsins
og ein úr nýjustu syrpunni, Áróru,
fékk að koma með til Miami.
„Allt í einu opnuðust bara allar
dyr,“ segir listamaðurinn, sem á
liðnu ári átti verk á Red dot-
sýningunni á Art Basel-vikunni í
Miami, listsýningu í tengslum við
lúxussnekkjusýningu í Mónakó –
þeirri stærstu í heimi, og sýningu
með yfirskriftinni Reflection í Suður-
Kóreu auk þess sem Gallery Artifact
setti upp sýningu á verkum hennar í
húsakynnum sínum í New York. Í ár
verða verk Laufeyjar á að minnsta
kosti sex sýningum vestanhafs; Los
Angeles, Las Vegas, New York og
San Francsisco.
Listamaður janúarmánaðar
„Og rétt í þessu var ég að fá boð
um að sýna í Bókasafni Garðabæjar,
sem listamaður janúarmánaðar, og
verður sýningin opnuð kl. 13 á laug-
ardaginn,“ segir Laufey brosandi.
Þess má geta að önnur sýningin í
Los Angeles er í Gallery Gulla Jons-
dottir Atelier þar sem Gulla, gömul
skólasystir hennar, hefur fyrir margt
löngu haslað sér völl sem arkitekt og
hönnuður.
„Ævintýrið hófst þegar Artifact-
galleríið í New York bauð mér að
sýna, en sýningarstjóri í London
hafði bent á mig eftir að hafa séð
verkin mín á sýningunni Parallax Art
Fair þar í borg fyrir tveimur árum.
Síðan hefur Artifact komið mér víða
á framfæri, til dæmis á snekkjusýn-
ingunni í Mónakó, þar sem ég sýndi
risastórt Vúlkan-verk, 3,5 m x 2 m,
og fékk fyrir vikið besta sýning-
arplássið, mikla athygli og boð um
sérstaka kynningu á sýningunni að
ári – sem er á þessu ári.“
Laufey segir Artifact-galleríið
ekki vera umboðsaðila sinn, heldur
samstarfsaðila, sem bjóði henni að
sýna á þeirra vegum og greiði götu
hennar á ýmsa lund. „Án skuldbind-
inga að því leytinu að ég má gera
samning við önnur gallerí, eins og ég
hef reyndar gert við tvö önnur, Art
UpClose og Amsterdam Whitney
Gallery. Fyrir tilstuðlan galleríanna
hafa verk mín komist á sölusíðuna
artsy.net og einnig arterynyc.com,
síður sem allir fara inn á sem vilja
vita hvað er að gerast í listheim-
inum.“
Miðlar orku frá Vúlkan
Vúlkan-verk Laufeyjar hafa vakið
hvað mesta athygli í áranna rás, bæði
heima og heiman, enda segir hún þau
hafa verið nokkurs konar vörumerki
sitt frá árinu 2007, þegar hún byrjaði
að mála fyrir alvöru. „Ég var alltaf að
leita að minni leið í listinni, sótti
fjölda einkatíma og námskeiða, með-
al annars hjá Bjarna Sigurbjörns-
syni, listmálara, í Myndlistarskóla
Kópavogs, sem hrinti mér svolítið
fram af brúninni ef svo má segja. Allt
í einu fór ég á flug. Það var eins og
opinberun fyrir mig þegar ég hóf að
mála þessi svörtu verk. Um svipað
leyti hitti ég miðil og fræðimann sem
útskýrði fyrir mér hvers vegna ég
hefði verið leidd inn í listina. Hann
hvatti mig til að halda áfram því
verkin ættu erindi.“
Að þessu sögðu bætir Laufey við
að hún geri sér grein fyrir að hún
hljómi mjög skringilega þegar hún
segist vera að vinna verk undir áhrif-
um frá plánetunni Vúlkan og miðli
orku frá henni. En sú sé engu að síð-
ur raunin. Listsköpun hennar og
andleg iðkun hafi runnið saman. „Ég
er eins og millistykki, eða bara miðill,
sem hef þessa orku sem ég tek inn í
mig og miðla áfram í verkin.“
Geturðu útskýrt nánar?
„Núna fjalla vísindamenn mikið
um að jörðin sé að hækka í tíðni. Ég
hef verið að vinna með þetta í mörg
ár, enda mikilvægt fyrir þróunina að
við mannfólkið hækkum í tíðni.“
Hvað áttu við með að „hækka í
tíðni“?
„Þeir sem eru að vinna á andlegu
sviði eru með hærri tíðni og þar af
leiðandi andlega þróaðri en aðrir og
vinna líka á öðrum sviðum.“
Morgunblaðið/Eggert
Í vinnustofunni Laufey málar Vúlkan-verkin hratt og þykkt og af hvatvísi, oft bara með höndunum. Undur hafsins (í baksýn) eru unnin með fínlegri hætti.
Svörtu orkuverkin frá Vúlkan
Allt í einu opnuðust allar dyr segir Laufey Johansen myndlistarkona Í samstarfi við gallerí í
New York þar sem hún hefur sýnt sem og víðar Fleiri sýningar á döfinni vestanhafs á árinu
Átímum þegar varanleggæði hafa þokað fyrirstundarvinsældum, oftaren ekki út frá sjónar-
miðum arðsemi og hagræðingar,
sbr. lykilorðið menningarhagstjórn
(„cultural management“) er byggj-
ast á meintum mælanleika fjölda
neytenda þar sem árangurinn er síð-
an metinn í beinhörðum peningum,
er ekki nema von þótt spurt sé hvað
300 ára gamlar tónrænar fornleifar
séu að vilja upp á nútímadekk. Enda
harla ólíklegar til
að örva efnahag
og atvinnusköp-
un. Hvað þá að
jafna kynjamis-
rétti eða draga úr
hnattrænni hlýn-
un – svo tvö núvæg dæmi séu tekin
af handahófi.
En málið er ekki alveg svona ein-
falt. Því þeir sem til þekkja (eða vilja
það) vita vel að öflun viðmiðunar
skiptir öllu í valinu á milli kjarna og
hismis. Og þar stendur tónlist Jo-
hann Sebastians Bachs enn þann
dag í dag upp úr flestu öðru er
mannsandinn hefur skilið eftir á nót-
um, allt frá fyrstu varðveittu frum-
raunum frá því fyrir 1200 árum.
Jafnt að listfengi, lærdómi, andagift
sem laufléttum gáska – og líklega af
meiri fjölbreytni en hjá nokkru öðru
tónskáldi fyrr og síðar.
Það er því sízt af léttúð tekið að
blanda geði við ótal fyrri sem seinni
slaghörpumeistara, þegar viðfangs-
efnið býður upp á samanburð í túlk-
un á hljómborðsverkum Bachs – ein-
hverri miskunnarlausustu mælistiku
á músíkalska ,aðild og rétt‘ hvers og
eins sem um getur, hvort heldur að
tæknifærni sem inntakstjáningu.
Að ungur píanisti hér nyrzt á
hjara skuli hafa þorað í þá þraut eft-
ir aðeins fimmtán ára feril er í sjálfu
Galdramaðurinn
frá Eisenach
Geisladiskur
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur verk
eftir Johann Sebastian Bach
bbbbb
J. S. Bach: BWV 902, 734*, 855, 528*,
850, 659*, 847, 54*, 989, 83, 798,
1006*, 855a, 801, 786, 974*, 639 og
904 (* í umritun Kempffs, Stradals,
Busonis, Víkings, Rakhmaninoffs, Silot-
is og Bachs (á Óbókonserti Marcellos).
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó. Upp-
tökur: GENUIN recording group, Hörpu
1.-4.4. 2018. Lengd: 1:17:26. Deutsche
Grammophon Gesellschaft, 483 5022.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST