Morgunblaðið - 10.01.2019, Page 67

Morgunblaðið - 10.01.2019, Page 67
Laufey kveðst hafa fæðst skyggn og sama eigi við um marga í fjöl- skyldu hennar. „Langalangafi minn var Einar H. Kvaran, mikill spíritisti og einn af stofnendum Sálarrannsókn- arfélags Íslands. Ég hef verið að vinna á andlega sviðinu með móð- ur minni í mörg ár við að beisla orku og nýta í þágu fólks. Ég lít á það sem mitt hlutverk og áskorun í lífinu að mála þessi svörtu verk, fara með þau um allan heim og gefa fólki tækifæri til að standa fyrir framan þau og verða fyrir þessum áhrifum; hækka í tíðni. Þegar maður er að vinna á and- lega sviðinu þá er einfaldlega séð til þess að maður geti gert það sem maður er kallaður til að gera. Þar af leiðandi var engin tilviljun að ég hitti rétta fólkið og allar dyr stóðu mér allt í einu opnar.“ Með yfirnáttúrlegum hætti? „Já. Svo leiðir eitt af öðru og hef- ur ekkert með mig að gera. Þetta snýst allt um verkin, ég fæ bara að vera með til að njóta og taka þátt. Verkin vinna sína vinnu.“ Köllun Laufeyjar er vissulega ólík þeirri köllun sem listamenn lýsa gjarnan að þeir hafi fengið, en hún kærir sig kollótta um hvers kyns vangaveltur um skringilegheit. Enda segist hún oft hafa fengið símtöl frá sýning- argestum sem lýsi upplifun sinni af Vúlkan-verkunum sem heilun, sum- um finnist jafnvel eins og þeir fljúgi inn í verkin, en slíkt sé einmitt merki þess að orkan hafi náð til þeirra. Henni finnst hún ekki þurfa frekari vitn- anna við. Allir litir í þeim svarta Þótt sumir segi að plánetan Vúlk- an sé einungis tilgáta er Laufey sannfærð um tilvist hennar á bak við sólina sem og orkuna sem hún gefur frá sér. „Mér fannst frekar fyndið þegar fréttamenn BBC, sem ég var einu sinni í viðtali hjá, könnuðust bara við Vúlkan vegna Spocks úr Star Trek-myndunum, en hann á að vera af blönduðum uppruna manna og Vúlkna.“ Margir spyrja Laufeyju hvers vegna hún, þessi brosandi og glað- lega kona, máli svona mikið af svört- um myndum. Hún segir að svarið sé einfalt: Það eru allir litir í svarta litn- um. Hann er summa allra lita, beislar orkuna betur en aðrir litir og gerir hana öflugri. Sjálf verkin eru þykk og þung og minna á íslenskt hraun og svarta sanda – sem raunar er „óvart“ að sögn Laufeyjar, en veki þess vegna kannski meiri athygli á landi og þjóð en ella. „Ég er sammála lýsingu Þóru Þór- isdóttur listfræðings sem sagði Vúlk- an-verkin mín vera frjálslegar, and- legar impressjónistamyndir,“ segir Laufey, sem er ekkert að dútla þegar hún hefst handa. Enda eru verkin ekki einungis andleg heldur líka lík- amleg eins og gagnrýnendur hafa sagt. Efniviðurinn er gríðarlega mik- ið magn af olíu og strigi í mismunandi stærðum. „Ég veð í verkið án þess að ákveða fyrirfram hvað ég er að fara að gera. Sköpunin verður flæði þar sem ég er tengd geimnum og öðrum víddum, mála bæði hratt og þykkt af mikilli hvatvísi og oft bara með hönd- unum. Svipað er upp á teningnum í málverkum þar sem ég er með lit- aðan grunn og svart mynstur ofan á. Ég kalla þau Séð frá Vúlkan, því þau sýna eiginleika plánetna séð frá Vúlkan.“ Undur hafsins og Áróra Vinnan við Undur hafsins er með allt öðrum og fínlegri hætti, en þá eru jörðin, náttúran og allir hinir fögru litir hafsins henni innblástur. „Dul- úðin ræður ríkjum, ég laðast að því óþekkta og því sem er hulið. Ég tjái mig með andlegum hætti í mál- verkum mínum og leyfi þeim að vera leyndardómsfull og svolítið æv- intýraleg,“ segir Laufey, sem jafn- framt er að lýsa Áróru, þriðju og nýj- ustu málverkasyrpunni sinni, sem öfugt við Vúlkan-verkin er afar litrík. „En eins og þau svolítið „geim“,“ bætir hún við. New York Sýning á verkum Laufeyjar hjá samstarfsaðilanum, Gallery Artifact, í New York í lok síðasta árs. Áróra Innblástur frá geimnum. MENNING 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 sér nógu eftirtektarvert. Öllu eftir- tektarverðari er þó hinn heyranlegi árangur. Því í fljótu bragði (með við- eigandi fyrirvara um hvað hlustanda kann síðan að finnast eftir 3-4 ár) fær maður ekki betur heyrt en að til hafi tekizt framar vonum. Fingrafimur brilljans er flug- mælskur og stálöruggur þar sem til- efni gefast, en syngjandi legató einn- ig á sínum stað (stundum m.a.s. samtímis við hitt á milli radda) og pólýfónískur skýrleiki oftast eins og bezt verður á kosið. Þá má víða heyra allt að því „róm- antísk“ styrkbrigði í krafti nútíma- hljóðfærisins, er maður freistast til að halda að Bach hefði sjálfur varla fúlsað við, hefði „gravicembalo“ Cristoforis (sem Bach prófaði í Pots- dam í heimsókninni til Friðriks mikla 1744) verið ögn lengra komið í þróun. En þrátt fyrir rómantískan örblæ á köflum virðist nálgun Víkings jafn- framt talsvert mótuð af uppruna- hyggju síðari áratuga. T.a.m. með tíðari staccati en fyrri tíma píanóljón áttu að venjast – jafnvel þótt undirr. hljóti að fagna að D-dúr-fúgan úr WTC slapp blessunarlega við áður oft heyrða tvípunktun á 2.-4. slagi í frönskum forleiksstíl, er tryggir heilbrigða sveiflu. (Ekki sízt þeim er nutu mest dillandi meðferðar Swingle Singers á 7. áratug!) Niðurröðun afar ólíkra verka, þ.m.t. umritana liðinna virtúósa á við Busoni og Rakhmaninoff, Bachs á Óbókonsert Feneyjameistarans Marcellos – og Víkings sjálfs á alt- aríunni úr kantötunni Wiederstehe doch der Sünde – er kapítuli út af fyrir sig. Hér fer mikið vandaverk, er virðist þó hafa tekizt af furðumik- illi smekkvísi gagnvart jafnt form- rænni heildarsýn sem „portrett“- næmi fyrir gríðarlegri fjölbreytni galdramannsins frá Eisenach. Upptaka GENUIN-hópsins í Hörpu á vegum DG er afburðaskýr og skilar jafnvel minnstu smá- atriðum. Að ekki sé minnzt á ein- hverja víðustu dýnamík í barokk- píanóleik sem maður man eftir á seinni árum. Hún kórónar því, óhætt að segja, frábæra túlkun, sem gæfi jafnvel orðunefnd Bessastaða verð- ugt tilefni til fálkunar í fyrirsjáan- legri framtíð. Morgunblaðið/Einar Falur Víkingur Heiðar „Hér fer mikið vandaverk, er virðist þó hafa tekizt af furðumikilli smekkvísi gagnvart jafnt formrænni heildarsýn sem „portrett“næmi fyrir gríðarlegri fjölbreytni galdramannsins frá Eisenach.“ Elly (Stóra sviðið) Lau 12/1 kl. 20:00 188. s Lau 19/1 kl. 20:00 191. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 13/1 kl. 20:00 189. s Sun 20/1 kl. 20:00 192. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fös 18/1 kl. 20:00 190. s Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Stjarna er fædd. Ríkharður III (Stóra sviðið) Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Fim 17/1 kl. 20:00 7. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 18/1 kl. 20:00 27. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 29. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Sun 20/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Núna 2019 (Litla sviðið) Fös 11/1 kl. 20:00 Frums. Lau 12/1 kl. 17:00 2. s Sun 13/1 kl. 17:00 3. s Núna er ekki á morgun, það er NÚNA Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Fim 17/1 kl. 20:00 3. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Athugið. Aðeins verða átta sýningar. Ég dey (Nýja sviðið) Fim 10/1 kl. 20:00 Frums. Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Sun 13/1 kl. 20:00 2. s Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s Trúir þú á líf fyrir dauðann? Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fös 22/2 kl. 19:30 Frums Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Velkomin heim (Kassinn) Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn Insomnia (Kassinn) Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 11/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 22:30 Fös 18/1 kl. 22:30 Fös 25/1 kl. 22:30 Lau 12/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 22:30 Lau 19/1 kl. 22:30 Lau 26/1 kl. 22:30 Fim 17/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.