Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 10.01.2019, Blaðsíða 71
MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég hafði ekki ætlað mér að gera fleiri einleiki, en síðan kom sú hug- mynd til mín að gera einn einleik í viðbót sem fjallaði um dauðann og ég vissi strax að ég yrði sjálf að leika hann,“ segir Charlotte Bøving sem í kvöld frumsýnir nýjasta einleik sinn, Ég dey, á Nýja sviði Borgarleik- hússins. Ég dey er þriðji einleik- urinn sem Charlotte skrifar og leik- ur, en árið 2002 setti hún upp Hina smyrjandi jómfrú og 2010 Þetta er lífið – og nu er kaffen klar sem báðar hlutu afar góðar viðtökur. „Dauðinn sem umfjöllunarefni hefur verið mér hugleikinn um nokk- urt skeið,“ segir Charlotte og rifjar upp að Grímuverðlaunasýningin Lífið – stórskemmtilegt drullumall hafi upphaflega átt að fjalla um dauðann en þróast yfir í að vera fjöl- skyldusýning um hringrás lífsins. „Ég hef í gegnum tíðina oft valið mér viðfangsefni sem enginn annar er að fjalla um,“ segir Charlotte og nefnir í því samhengi sýninguna Mamma mamma sem hún leikstýrði hjá leik- hópnum Opið 2008 og fjallar um móðurhlutverkið og Suss! sem hún leikstýrði hjá leikhópurinn RaTa- Tam 2016 og byggðist á reynslusög- um þolenda, gerenda og aðstand- enda um heimilisofbeldi. Í báðum sýningum tók Charlotte þátt í handritaþróuninni, enda þykir henni fátt meira spennandi en að vinna sýningar frá grunni. „Þegar ég er að skapa sýningar hef ég lítinn sem engan áhuga á línu- legri framvindu. Mér finnst miklu meira spennandi að vinna með ólík brot sem ég set saman til að skapa heildstæða upplifun fyrir áhorf- endur,“ segir Charlotte og bætir við að sér þyki mest heillandi að fást við stórar spurningar. Eins og barn að leik Að sögn Charlotte byggist Ég dey, líkt og flestar fyrri sýningar hennar, á mikilli rannsóknarvinnu þar sem lagt var upp með eitt lykil- þema. „Þegar ég byrjaði að rann- saka dauðann fór ég óhjákvæmilega líka að skoða fortíðina og hugsa um þær manneskjur í mínu lífi sem ég hef þegar kvatt. Börn eru oft upp- tekin af dauðanum, en síðan hættum við að hugsa um dauðann meðan við erum sem uppteknust af lífinu, erum að stofna fjölskyldu, byggja upp starfsframa og koma undir okkur fótunum. Um miðjan aldur fara margir að velta fyrir sér tilgangi lífs- ins og þá óhjákvæmilega reikar hug- urinn líka að endalokunum. Ótti okk- ar við dauðann birtist í því að við viljum fæst eldast með tilheyrandi hrukkum og færnimissi,“ segir Charlotte og áréttar að Ég dey sé engan veginn hugsuð sem þung eða dramatísk sýning þó að dauðinn sé til umfjöllunar. „Besta leiðin til að fjalla um alvar- leg viðfangsefni er með húmor. Ég sprella því heilmikið á sviðinu með tilheyrandi leikorku. Á sköpunar- tímanum var ég nánast eins og barn að leik sem henti á loft ólíkum hug- myndaboltum. Ég er því að leika mér með ólíka þætti og samtímis að bjóða upp á nokkurs konar bland í poka sem veitir innsýn í þetta þema. Í sýningunni skoða ég dauðann frá ýmsum hliðum og lífið með augum hans. Meðal þeirra spurninga sem ég velti fyrir mér er af hverju dauð- inn er svona mikið tabú og hvers vegna við hræðumst hann svona mikið. En ég skoða líka hvernig hann geti styrkt okkur í lífinu. Leið- arstef sýningarinnar er að best sé að gera hlutina núna því við erum hvort eð er að deyja,“ segir Charlotte kím- in og tekur fram að heilmikill kær- leikur sé einnig í sýningunni. Vil lifa lífinu lifandi Í kynningu á sýningunni kemur fram að Charlottu hyggist ögra bæði sér og áhorfendum með því að fram- kvæma fimm atriði á sviðinu sem hún hafi aldrei þorað að gera áður. „Þetta verður að öllum líkindum minn síðasti einleikur. Þarna gefst mér því tækifæri til að gera eitthvað sem ég hef aldrei gert áður og taka útkomunni af æðruleysi. Ég vona það geti veitt öðrum innblástur að sjá mig, 55 ára gamla konu, fram- kvæma eitthvað nýtt og hvatt fólk til að prófa eitthvað nýtt. Að ákveðnu leyti má sjá stöðnun í lífinu sem táknrænan dauða. Þegar við hættum að læra nýja hluti, þroskast og stækka sem manneskjur þá erum við í ákveðnum skilningi þegar byrjuð að deyja. Ég ætla ekki að vera lif- andi dauð, heldur vil ég lifa lífinu lif- andi,“ segir Charlotte og tekur fram að það liggi í eðli hennar að vera sí- fellt að ögra sér og læra eitthvað nýtt. „Eitt af því sem mig hefur lengi langað að prófa er að flytja lag sem búið er til á sviðinu frá grunni með hljóðlykkjum,“ segir Charlotte sem unnið hefur að útfærslunni í sam- vinnu við tónlistarmanninn Gísla Galdur. Þú segir að þetta verði sennilega þinn síðasti einleikur. Ætlar þú að hætta að leika á sviði og snúa þér í auknu mæli að leikstjórn? „Í ákveðnum skilningi er ég líka að stýra þessari sýningu því ég vel samstarfsfólk mér til liðs og skapa hugmyndaheim verksins sem er venjulega á verksviði leikstjórans,“ segir Charlotte sem fékk til liðs við sig Unni Elísabetu Gunnarsdóttur sem sér um sviðshreyfingar, Þór- unni Maríu Jónsdóttur sem hannar leikmynd og búninga, Garðar Borg- þórsson sem hannar lýsingu, Steinar Júlíusson sem hannar myndbönd, Gísla Galdur sem sér um tónlist, Grétu Kristínu Ómarsdóttur sem er dramatúrg og Benedikt Erlingsson sem með-leikstýrir verkinu. „Þar sem ég er sjálf að flytja verk- ið þarf ég eðlilega einhvern til að horfa á heildarmyndina úr sal sem getur gefið ábendingar um hvað bet- ur megi fara í tímasetningum, orku- stigi og breytingum á dýnamík. Stærsta áskorunin hefur samt verið að læra allan þennan texta á íslensku og flytja hann eins málfræðilega rétt og hægt er,“ segir Charlotte á lýta- lausri íslensku og rifjar upp að hún hafi verið 34 ára þegar hún fluttist til Íslands og lærði fyrst tungumálið. „Af þeim sökum tekur það mig miklu lengri tíma að komast að inni- haldinu til að miðla því. Ég vissi fyr- irfram að þetta yrði stærsta glíman,“ segir Charlotte og tekur fram að hún hafi á þeim árum sem hún hafi búið og starfað hérlendis ekki sóst eftir því að leika stórt hlutverk á sviði. „Vegna þess að ég vissi hversu tíma- frekt og erfitt það yrði að læra allan textann á íslensku. En vegna þess hversu mikilvægt mér finnst að miðla efninu í Ég dey þá var ég tilbú- in að leggja þessa miklu vinnu á mig,“ segir Charlotte og bætir kímin við: „Ef ég freistast til að gera enn einn einleikinn þá verður hann á dönsku!“ Endalausar breytingar Charlotte segist sem leikstjóri bera mikla virðingu fyrir leikurum sem leggja mikið á sig til að skila hlutverkinu sem best og miðla efni sýninga. „Þetta er svo hrikalega mikil vinna og í raun ógerningur að leggja svona mikið á sig ef ástríðan er ekki fyrir hendi,“ segir Charlotte sem á undanförnum árum hefur leik- ið bæði í kvikmyndum og í sjónvarpi ásamt því að leikstýra og skrifa verk. „Mér finnst ofboðslega gaman að leikstýra, búa til hugmyndaheim verksins og skrúfa stykkið saman. Ég er oftast að vinna sýningar frá grunni út frá rannsóknarspurningu og tek þátt í því að skrifa verkið á þróunarferlinu. Ég upplifi sýningar oft eins og púsluspil sem raða þarf saman án þess að vera með mynd fyrir framan sig sem leiðbeinir hvar hvert púsl eigi að rata. Og þegar allt gengur upp þá er gaman. Ég upplifi þetta ferli sem nærandi.“ Höfðar þá ekki til þín að setja upp fyrirfram skrifuð verk? „Jú, ef ég fæ að leika mér með efniviðinn í góðum félagsskap skap- andi fólks. Oft þegar ég fæ tilbúin leikrit í hendur þá sé ég ekki alveg hvað ég eigi að gera við efniviðinn því þetta sviðsetur sig sjálft að mínu mati. Það kitlar mig því ekki – nema að um sé að ræða verk sem mér finnst aðkallandi að setja á svið. Ég get sem dæmi nefnt að mig hefur lengi dreymt um að gera sýningar hérlendis fyrir aldurshópinn 10-17 ára, sem er að mestu afskiptur í íslensku leikhúsi dag. Ég hef séð mjög góðar sýningar í Danmörku fyrir þennan aldur þar sem ungling- unum gefst færi á að spegla sig í efniviðnum og myndi langa til að setja þau verk upp hérlendis en það er ekki hægt af fjárhagslegum ástæðum því það er enginn til í að kaupa leikhúsmiða á sýningar fyrir unglinga,“ segir Charlotte og bendir á að ein þeirra áskorana sem felst í því að skapa sýningar frá grunni sé hversu tímafrekt og þar af leiðandi kostnaðarsamt það er. „Stóru leikhúsin þora oft ekki að taka áhættuna á slíkum sýningum. Og styrkirnir sem sjálfstæðu leik- hópunum stendur til boða eru ekki háir og því krefst það mikillar vinnu fyrir lítinn pening að vinna sýningu frá grunni með tilheyrandi rann- sóknarvinnu og handritaþróun. En á móti kemur að við fáum mikla útrás fyrir sköpunargleði okkar og kraft í slíkum sýningum. Leikhúsvinnan hentar ekki öllum þar sem maður þarf að þola það að starfa í kaosi sköpunarinnar án þess að verða óttasleginn. Þetta minnir sum part á lífið, því við reynum flest að búa til skýra umgjörð um lífið til að þurfa ekki að upplifa kaosið sem býr að baki, því þegar upp er staðið vitum við ekkert nema lífið felur í sér enda- lausar breytingar.“ Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir „Stærsta áskorunin“  Charlotte Bøving frumsýnir í Borgarleikhúsinu í kvöld nýjasta einleik sinn sem nefnist Ég dey  Segir húmorinn bestu leiðina til að fjalla um alvarleg viðfangsefni  Óttalaus í kaosinu Líf „Þegar upp er staðið vitum við ekkert nema að lífið felur í sér endalausar breytingar,“ segir Charlotte Bøving. Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna Innihald: • Kólín sem stuðlar að: - eðlilegum fituefnaskiptum - viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrarinnar • Mjólkurþistil ogætiþistil sem talin eru stuðla að eðlilegri starfsemi lifrar og galls • Túrmerik og svartan pipar Heilbrigð melting Active Liver stuðlar að eðlilegum efnaskiptum ICQC 2018-20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.