Morgunblaðið - 10.01.2019, Qupperneq 71
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég hafði ekki ætlað mér að gera
fleiri einleiki, en síðan kom sú hug-
mynd til mín að gera einn einleik í
viðbót sem fjallaði um dauðann og ég
vissi strax að ég yrði sjálf að leika
hann,“ segir Charlotte Bøving sem í
kvöld frumsýnir nýjasta einleik sinn,
Ég dey, á Nýja sviði Borgarleik-
hússins. Ég dey er þriðji einleik-
urinn sem Charlotte skrifar og leik-
ur, en árið 2002 setti hún upp Hina
smyrjandi jómfrú og 2010 Þetta er
lífið – og nu er kaffen klar sem báðar
hlutu afar góðar viðtökur.
„Dauðinn sem umfjöllunarefni
hefur verið mér hugleikinn um nokk-
urt skeið,“ segir Charlotte og rifjar
upp að Grímuverðlaunasýningin
Lífið – stórskemmtilegt drullumall
hafi upphaflega átt að fjalla um
dauðann en þróast yfir í að vera fjöl-
skyldusýning um hringrás lífsins.
„Ég hef í gegnum tíðina oft valið mér
viðfangsefni sem enginn annar er að
fjalla um,“ segir Charlotte og nefnir
í því samhengi sýninguna Mamma
mamma sem hún leikstýrði hjá leik-
hópnum Opið 2008 og fjallar um
móðurhlutverkið og Suss! sem hún
leikstýrði hjá leikhópurinn RaTa-
Tam 2016 og byggðist á reynslusög-
um þolenda, gerenda og aðstand-
enda um heimilisofbeldi. Í báðum
sýningum tók Charlotte þátt í
handritaþróuninni, enda þykir henni
fátt meira spennandi en að vinna
sýningar frá grunni.
„Þegar ég er að skapa sýningar
hef ég lítinn sem engan áhuga á línu-
legri framvindu. Mér finnst miklu
meira spennandi að vinna með ólík
brot sem ég set saman til að skapa
heildstæða upplifun fyrir áhorf-
endur,“ segir Charlotte og bætir við
að sér þyki mest heillandi að fást við
stórar spurningar.
Eins og barn að leik
Að sögn Charlotte byggist Ég
dey, líkt og flestar fyrri sýningar
hennar, á mikilli rannsóknarvinnu
þar sem lagt var upp með eitt lykil-
þema. „Þegar ég byrjaði að rann-
saka dauðann fór ég óhjákvæmilega
líka að skoða fortíðina og hugsa um
þær manneskjur í mínu lífi sem ég
hef þegar kvatt. Börn eru oft upp-
tekin af dauðanum, en síðan hættum
við að hugsa um dauðann meðan við
erum sem uppteknust af lífinu, erum
að stofna fjölskyldu, byggja upp
starfsframa og koma undir okkur
fótunum. Um miðjan aldur fara
margir að velta fyrir sér tilgangi lífs-
ins og þá óhjákvæmilega reikar hug-
urinn líka að endalokunum. Ótti okk-
ar við dauðann birtist í því að við
viljum fæst eldast með tilheyrandi
hrukkum og færnimissi,“ segir
Charlotte og áréttar að Ég dey sé
engan veginn hugsuð sem þung eða
dramatísk sýning þó að dauðinn sé
til umfjöllunar.
„Besta leiðin til að fjalla um alvar-
leg viðfangsefni er með húmor. Ég
sprella því heilmikið á sviðinu með
tilheyrandi leikorku. Á sköpunar-
tímanum var ég nánast eins og barn
að leik sem henti á loft ólíkum hug-
myndaboltum. Ég er því að leika
mér með ólíka þætti og samtímis að
bjóða upp á nokkurs konar bland í
poka sem veitir innsýn í þetta þema.
Í sýningunni skoða ég dauðann frá
ýmsum hliðum og lífið með augum
hans. Meðal þeirra spurninga sem
ég velti fyrir mér er af hverju dauð-
inn er svona mikið tabú og hvers
vegna við hræðumst hann svona
mikið. En ég skoða líka hvernig
hann geti styrkt okkur í lífinu. Leið-
arstef sýningarinnar er að best sé að
gera hlutina núna því við erum hvort
eð er að deyja,“ segir Charlotte kím-
in og tekur fram að heilmikill kær-
leikur sé einnig í sýningunni.
Vil lifa lífinu lifandi
Í kynningu á sýningunni kemur
fram að Charlottu hyggist ögra bæði
sér og áhorfendum með því að fram-
kvæma fimm atriði á sviðinu sem
hún hafi aldrei þorað að gera áður.
„Þetta verður að öllum líkindum
minn síðasti einleikur. Þarna gefst
mér því tækifæri til að gera eitthvað
sem ég hef aldrei gert áður og taka
útkomunni af æðruleysi. Ég vona
það geti veitt öðrum innblástur að
sjá mig, 55 ára gamla konu, fram-
kvæma eitthvað nýtt og hvatt fólk til
að prófa eitthvað nýtt. Að ákveðnu
leyti má sjá stöðnun í lífinu sem
táknrænan dauða. Þegar við hættum
að læra nýja hluti, þroskast og
stækka sem manneskjur þá erum við
í ákveðnum skilningi þegar byrjuð
að deyja. Ég ætla ekki að vera lif-
andi dauð, heldur vil ég lifa lífinu lif-
andi,“ segir Charlotte og tekur fram
að það liggi í eðli hennar að vera sí-
fellt að ögra sér og læra eitthvað
nýtt. „Eitt af því sem mig hefur lengi
langað að prófa er að flytja lag sem
búið er til á sviðinu frá grunni með
hljóðlykkjum,“ segir Charlotte sem
unnið hefur að útfærslunni í sam-
vinnu við tónlistarmanninn Gísla
Galdur.
Þú segir að þetta verði sennilega
þinn síðasti einleikur. Ætlar þú að
hætta að leika á sviði og snúa þér í
auknu mæli að leikstjórn?
„Í ákveðnum skilningi er ég líka
að stýra þessari sýningu því ég vel
samstarfsfólk mér til liðs og skapa
hugmyndaheim verksins sem er
venjulega á verksviði leikstjórans,“
segir Charlotte sem fékk til liðs við
sig Unni Elísabetu Gunnarsdóttur
sem sér um sviðshreyfingar, Þór-
unni Maríu Jónsdóttur sem hannar
leikmynd og búninga, Garðar Borg-
þórsson sem hannar lýsingu, Steinar
Júlíusson sem hannar myndbönd,
Gísla Galdur sem sér um tónlist,
Grétu Kristínu Ómarsdóttur sem er
dramatúrg og Benedikt Erlingsson
sem með-leikstýrir verkinu.
„Þar sem ég er sjálf að flytja verk-
ið þarf ég eðlilega einhvern til að
horfa á heildarmyndina úr sal sem
getur gefið ábendingar um hvað bet-
ur megi fara í tímasetningum, orku-
stigi og breytingum á dýnamík.
Stærsta áskorunin hefur samt verið
að læra allan þennan texta á íslensku
og flytja hann eins málfræðilega rétt
og hægt er,“ segir Charlotte á lýta-
lausri íslensku og rifjar upp að hún
hafi verið 34 ára þegar hún fluttist til
Íslands og lærði fyrst tungumálið.
„Af þeim sökum tekur það mig
miklu lengri tíma að komast að inni-
haldinu til að miðla því. Ég vissi fyr-
irfram að þetta yrði stærsta glíman,“
segir Charlotte og tekur fram að hún
hafi á þeim árum sem hún hafi búið
og starfað hérlendis ekki sóst eftir
því að leika stórt hlutverk á sviði.
„Vegna þess að ég vissi hversu tíma-
frekt og erfitt það yrði að læra allan
textann á íslensku. En vegna þess
hversu mikilvægt mér finnst að
miðla efninu í Ég dey þá var ég tilbú-
in að leggja þessa miklu vinnu á
mig,“ segir Charlotte og bætir kímin
við: „Ef ég freistast til að gera enn
einn einleikinn þá verður hann á
dönsku!“
Endalausar breytingar
Charlotte segist sem leikstjóri
bera mikla virðingu fyrir leikurum
sem leggja mikið á sig til að skila
hlutverkinu sem best og miðla efni
sýninga. „Þetta er svo hrikalega
mikil vinna og í raun ógerningur að
leggja svona mikið á sig ef ástríðan
er ekki fyrir hendi,“ segir Charlotte
sem á undanförnum árum hefur leik-
ið bæði í kvikmyndum og í sjónvarpi
ásamt því að leikstýra og skrifa verk.
„Mér finnst ofboðslega gaman að
leikstýra, búa til hugmyndaheim
verksins og skrúfa stykkið saman.
Ég er oftast að vinna sýningar frá
grunni út frá rannsóknarspurningu
og tek þátt í því að skrifa verkið á
þróunarferlinu. Ég upplifi sýningar
oft eins og púsluspil sem raða þarf
saman án þess að vera með mynd
fyrir framan sig sem leiðbeinir hvar
hvert púsl eigi að rata. Og þegar allt
gengur upp þá er gaman. Ég upplifi
þetta ferli sem nærandi.“
Höfðar þá ekki til þín að setja upp
fyrirfram skrifuð verk?
„Jú, ef ég fæ að leika mér með
efniviðinn í góðum félagsskap skap-
andi fólks. Oft þegar ég fæ tilbúin
leikrit í hendur þá sé ég ekki alveg
hvað ég eigi að gera við efniviðinn
því þetta sviðsetur sig sjálft að mínu
mati. Það kitlar mig því ekki – nema
að um sé að ræða verk sem mér
finnst aðkallandi að setja á svið. Ég
get sem dæmi nefnt að mig hefur
lengi dreymt um að gera sýningar
hérlendis fyrir aldurshópinn 10-17
ára, sem er að mestu afskiptur í
íslensku leikhúsi dag. Ég hef séð
mjög góðar sýningar í Danmörku
fyrir þennan aldur þar sem ungling-
unum gefst færi á að spegla sig í
efniviðnum og myndi langa til að
setja þau verk upp hérlendis en það
er ekki hægt af fjárhagslegum
ástæðum því það er enginn til í að
kaupa leikhúsmiða á sýningar fyrir
unglinga,“ segir Charlotte og bendir
á að ein þeirra áskorana sem felst í
því að skapa sýningar frá grunni sé
hversu tímafrekt og þar af leiðandi
kostnaðarsamt það er.
„Stóru leikhúsin þora oft ekki að
taka áhættuna á slíkum sýningum.
Og styrkirnir sem sjálfstæðu leik-
hópunum stendur til boða eru ekki
háir og því krefst það mikillar vinnu
fyrir lítinn pening að vinna sýningu
frá grunni með tilheyrandi rann-
sóknarvinnu og handritaþróun. En á
móti kemur að við fáum mikla útrás
fyrir sköpunargleði okkar og kraft í
slíkum sýningum. Leikhúsvinnan
hentar ekki öllum þar sem maður
þarf að þola það að starfa í kaosi
sköpunarinnar án þess að verða
óttasleginn. Þetta minnir sum part á
lífið, því við reynum flest að búa til
skýra umgjörð um lífið til að þurfa
ekki að upplifa kaosið sem býr að
baki, því þegar upp er staðið vitum
við ekkert nema lífið felur í sér enda-
lausar breytingar.“
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
„Stærsta áskorunin“
Charlotte Bøving frumsýnir í Borgarleikhúsinu í kvöld nýjasta einleik sinn sem nefnist Ég dey
Segir húmorinn bestu leiðina til að fjalla um alvarleg viðfangsefni Óttalaus í kaosinu
Líf „Þegar upp er staðið vitum
við ekkert nema að lífið felur
í sér endalausar breytingar,“
segir Charlotte Bøving.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Innihald:
• Kólín sem stuðlar að: - eðlilegum fituefnaskiptum - viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrarinnar
• Mjólkurþistil ogætiþistil sem talin eru stuðla að eðlilegri starfsemi lifrar og galls
• Túrmerik og svartan pipar
Heilbrigð melting
Active Liver stuðlar að eðlilegum efnaskiptum
ICQC 2018-20