Morgunblaðið - 11.02.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.02.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 1. F E B R Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  35. tölublað  107. árgangur  KONUNGS TRÚÐANNA MINNST DEILDARTITILL Í HÖFN MIKIL JAFNVÆGIS- LIST AÐ GERA GÓÐA GAMANMYND SKAUTAFÉLAG AKUREYRAR ÍÞRÓTTIR MAXIMILIAN HULT 26GRIMALDI 12 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og vist- aður í fangageymslum aðfaranótt gærdagsins grunaður um akstur undir áhrifum. Maðurinn ók á ofsahraða niður á Kringlumýrarbraut af Bú- staðavegi eftir að lögregla reyndi að stöðva hann í handahófskenndu umferðareftirliti, en bifreið hans hafnaði utan vegar í Suðurhlíð. Við athugun lögreglu kom í ljós að maðurinn hafði viskíglas við hönd undir stýri og að hann hafði áður verið svipt- ur ökuréttindum vegna ölvunaraksturs. Þá var maðurinn í farþegasæti bifreiðarinnar þegar lög- regla kom að bílnum utan vegar, en engin fótspor voru í snjónum bílstjóramegin, sem benti til þess að maðurinn hefði verið einn á ferð. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hjúkrunarfræðingur tók úr honum blóðsýni áður en hann var vistaður í fanga- klefa þar til runnið væri af honum og í kjölfarið hægt að yfirheyra hann. Ölvunarakstur sem endaði með ósköpum, er- lent þjófagengi í iðnaðarhverfi og óspektir í mið- bænum voru meðal helstu mála lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt sunnudags. Í aft- ursæti bifreiðar númer 108 voru blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins sem fylgdust með því sem fyrir augu bar. Sagt er frá vakt lögregl- unnar í myndum og máli í blaði dagsins. »10, 11 Á næturvakt með lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Eggert Ölvunarakstur Ökumaður bifreiðarinnar var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem tekið var úr honum blóðsýni og hann látinn sofa úr sér. Maðurinn reyndi að stinga lögreglu af þegar hann varð hennar var á Bústaðavegi. Fór hann á miklum hraða í beygju og bifreið hans hafnaði utan vegar. Á flótta með viskí við stýrið  Bifreið sem ekið var háskalega endaði utan vegar  Þjófagengi og rifbeinsbrot í iðnaðarhverfi og óspektir í miðbænum á meðal helstu verkefna lögreglu í fyrrinótt Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fá þarf einhvern utan borgarkerf- isins til að skoða mál Persónuvernd- ar og Reykjavíkurborgar, að mati Eyþórs Arnalds, borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokks. „Ein leið- in er að Umboðsmaður Alþingis skoði þetta eða sveitarstjórnarráðu- neytið,“ sagði Eyþór. „Það gagnast lítið að borgin skoði sjálfa sig því hún er aðili máls. Það gagnast jafn lítið og þegar borgarstjóri var að skoða pósthólfið sitt.“ Eyþór reiknaði með að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð- isflokks ræddi málið í dag. „Þetta er fordæmalaust að það séu brotalamir hjá stærsta sveitarfélagi landsins í svona tilraunamennsku. Þarna var reynt að hafa áhrif á kjós- endur, það var farið með rangt mál í útsendu efni og svo var ekki öll sag- an sögð þegar Persónuvernd spurði. Okkur er ekki sæmandi að fara svona með opinbert vald.“ Vilja hvetja fólk til að kjósa Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi og oddviti VG, sagði að ef pottur hefði verið brotinn þegar valdir hóp- ar voru hvattir til að mæta á kjörstað í borgarstjórnarkosningunum 2018 þyrfti að bregðast við því og tryggja að það endurtæki sig ekki. Hún sagði að stjórnmálamenn treystu embætt- ismönnum og starfsfólki borgarinn- ar. „Rannsóknir sýna að þátttöku fólks af erlendum uppruna, kvenna yfir áttrætt og ungs fólks í kosning- um er ábótavant. Við viljum hvetja fólk til að nýta kosningarétt sinn,“ sagði Líf. Hún sagði að verkefnið hefði verið unnið í samstarfi við Per- sónuvernd en svo virtist sem einhver brotalöm hefði orðið á samskiptum stofnana. „Það er ekki um kosninga- svindl að ræða heldur held ég að það sé frekar um samskiptabrest að ræða,“ sagði Líf. „Það er fráleitt að vinstriflokkarnir hafi notað þetta til að auka fylgi sitt. VG fékk 2.700 at- kvæði og þetta var greinilega ekki lausnin fyrir okkur eða Samfylk- inguna, sem líka missti fylgi!“ Ekki náðist í forseta borgarstjórn- ar eða formann borgarráðs við vinnslu fréttarinnar. Þarf álit utanaðkomandi  „Það gagnast lítið að borgin skoði sjálfa sig,“ segir Eyþór Arnalds  Ekki um kosningasvindl að ræða, frekar samskiptabrest, að mati Lífar Magneudóttur MÖSE tekur ekki afstöðu »2  „Vandi Hringbrautar er ekki hraðatengdur og þetta slys var ekki vegna hraðaksturs. Staðreyndin í þessu máli er að einhver fór yfir á rauðu ljósi,“ segir Ólafur Kr. Guð- mundsson, sérfræðingur í umferð- aröryggismálum, við Morgun- blaðið, og vísar til þess þegar ekið var á stúlkubarn á Hringbraut við gatnamótin við Meistaravelli. Borgin hefur nú ákveðið að lækka hámarkshraða niður í 40 kílómetra hraða og segir Ólafur það vera ranga ákvörðun. „Þessi aðgerð mun ekki á nokk- urn hátt auka öryggi gangandi veg- farenda,“ segir hann. Þá gagnrýna Seltirningar Reykjavíkurborg fyrir einhliða ákvörðun í málinu. »6, 16 Morgunblaðið/Hari Umferð Erfitt getur verið fyrir ökumenn að sjá gangandi fólk í skammdeginu. Mun ekki auka ör- yggi gangandi fólks  Verði staðar- tíma á Íslandi breytt og klukk- an færð fram um eina klukku- stund, sem nemur hnattstöðu, gæti það haft verulega neikvæð áhrif á flugrekstur á Ís- landi. Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair. Rekstur félagsins og flug til nær 50 áfangastaða miðist allt við núverandi staðartíma. Félagið eigi frátekna afgreiðslutíma á flug- völlum erlendis og sumstaðar sé engu hægt að breyta, s.s. í London og New York. Í raun miðist allt í starfseminni við staðartíma sem gildir. Hugmyndum um breytingar verði því mótmælt. »13 Breyttur tími gæti raskað flugrekstri Bogi Nils Bogason  Hugmyndir eru um sameiginlega nýbyggingu fyrir lögreglu- embættin, tollinn og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er í þarfagreiningu. Næsta skref verður að meta val- kosti og mögulegar staðsetningar. Með flutningi þessara aðila opnast möguleikar til breytinga og uppbyggingar á stórum og áberandi reitum í miðborginni. Meðal annars hefur borgin horft til uppbyggingar á bílastæðinu norðan við lögreglustöðina við Hlemm en á reit Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í Skógarhlíð er einnig slíkt svigrúm. Þá býður hús Tollstjórans í Tryggvagötu upp á ýmsa möguleika. »4 Embættin verði saman í stórhýsi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.