Morgunblaðið - 11.02.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.02.2019, Blaðsíða 26
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sýningar á íslensk-sænsku gaman- dramamyndinni Vesalings elsk- endur (e. Pity The Lovers) hefjast í vikunni. Er tímasetningin við hæfi því Valentínusardagurinn er á fimmtudag. Það er Svíinn Maximilian Hult sem leikstýrir myndinni og skrif- aði hann einnig handritið. Er kvik- myndin að öðru leyti alveg íslensk; með íslenska leikara í öllum hlut- verkum og íslenskt tökulið, en Vesalings elskendur er önnur kvikmyndin í fullri lengd sem Maximilian leikstýrir hér á landi. Fyrri myndin, Heima (s. Hemma) var gerð með sænskum leikurum og sænsku tökuliði, og segir Maximilian að það hafi verið fyrir hendingu að hann uppgötvaði hve vel Ísland gæti hentað sem sögusvið: „Við vorum á höttunum eftir góðum tökustað sem væri samt ekki þannig að áhorfandinn tengdi söguna við tiltekið svæði eða tiltekna borg. Sáum við fram á það að þurfa að ferðast á vettvang einhvers staðar í Svíþjóð en svo kom ábending um að skoða Ísland – sem reyndist henta svona líka vel,“ útskýrir hann. Ástæðan fyrir því að Vesalings elskendur urðu til á Íslandi segir Maximilian að hafi m.a. verið að hann vildi ljúka við gerð mynd- arinnar fyrr en síðar og sá fram á alllanga töf ef gera ætti myndina í Svíþjóð. „Handritið var klárt, og ég var klár, og að fara aftur til Ís- lands reyndist besti kosturinn.“ Afleiðingar móðurmissis Myndin hefur á að skipa ein- valaliði leikara en aðalhlutverkin eru í höndum Björns Thors og Jó- els I. Sæmundssonar. Leika þeir bræður sem eru ólánsamir í ástum hvor með sínum hætti. Annar þeirra þorir varla að taka af skar- ið á meðan hinn er of ákafur og er óðara búinn og verður asinn til þess að hann fælir frá sér þær konur sem honum hugnast. Max- imilian segir að þó sagan sé sögð á gamansaman hátt þá liggi drama- tískur þráður í gegnum myndina: „Orsök þess hvernig fyrir bræðr- unum er komið er að þeir urðu fyrir því áfalli í æsku að missa móður sína. Sá eldri vill ekki opna sig aftur fyrir þeim möguleika að missa manneskju sem honum er kær, og ræður illa við það þegar sambönd hans við annað fólk fara að verða náin. Sá yngri man aftur á móti lítið eftir móður sinni og er í leit að ást og hlýju sem hann hefur farið á mis við.“ Auk Björns og Jóels koma fram í myndinni þau Sara Dögg Ás- geirsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Sigurður Karlsson, Hafdís Helga Helgadóttir, Álfrún Örnólfsdóttir og Þóra Karítas auk tveggja bráð- ungra nýrra leikara; Axels Leós Kristinssonar og Elvars Arons Heimissonar. Var Vesalings elsk- endur frumsýnd á Kvikmyndahá- tíðinni í Gautaborg í janúar og þótti þar bera af í flokki gam- anmynda svo að uppselt var á all- ar sýningar. Grínið í smáatriðunum En var ekki áhættusamt fyrir sænskan leikstjóra að gera gamanmynd á íslensku? Gaman- myndir eru jú vandmeðfarið list- form og t.d. þekkt hversu treglega það getur stundum gengið að þýða brandara svo að þeir skili sér til áhorfenda sem tala annað mál. (Fyrir vikið fá spennu- og hryll- ingsmyndir yfirleitt mun meiri út- breiðslu á heimsvísu en gam- anmyndir, því hasarinn er ekki flókið að þýða.) Maximilian kveðst vissulega hafa verið ögn kvíðinn, en áhyggj- urnar gufuðu upp strax og tökur hófust enda gekk vinnan hnökra- laust fyrir sig. Þá ætti ekki að verða of flókið fyrir þýðendur að koma húmornum til skila í kvik- myndahúsum um allan heim því handritið var upphaflega skrifað á bæði sænsku og ensku og síðan Að gera gamanmynd er jafnvægislist  Maximilian Hult segir geta verið auðveldara að gera gamanmynd ef bæði handritsgerð og leik- stjórn er á höndum sömu manneskjunnar  Vel heppnað grín kallar á næmni og nákvæmni Fínstillingar Maximilian Hult leiðbeinir Birni Thors og Þóru Karítas Árnadóttur við tökur. „Það má ekki ganga of stutt, en heldur ekki of langt í gríninu því þá missir það marks,“ segir hann. Handrit myndarinnar Vesalings elskendur var fyrst skrifað á ensku og sænsku en svo þýtt yfir á íslensku. Ljósmynd/LittleBig Productions 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2019 Dásamlegur þvottur - einfalt, íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar fylgja. Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Þvottavél 119.990 kr. Þurrkari 144.990 kr. Gjörningaklúbburinn opnaði sýninguna Nýja Góðir gestir Gjörningaklúbbskonurnar Jóní og Eirún tóku á móti gestum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.