Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 7
Enn eru hvalveiðimál á dagskrá, gegn væntingum, þar sem menn
töldu, að þeim – langreyðaveiðunum – hefði lokið fyrir fullt og allt í
fyrra haust, þegar veiðiheimildir, sem Sigurður Ingi gaf út 2013,
runnu út.
Forsætisráðherra réttlætti nýjar langreyðaveiðar í fyrra sumar með
því, að illt væri að rugla stjórnsýsluna með breytingum á
reglugerðum, sem í gildi væru. Þótti sumum það yfirborðskennd
skýring.
Nú er orðrómur á kreiki um það, að ríkisstjórnin ætli að gefa út ný
langreyða veiðileyfi til Hvals hf. Vekur þetta furðu undirritaðs og
annarra, sem af þessu hafa heyrt. Menn trúa vart sínum eigin
eyrum. Helzta vonin er, að þetta sé – eins og margt – marklaust
slúður. Vil ég trúa því, þar til annað kemur á daginn.
Ekki þarf að minna ykkur á ykkar eigin samþykktir frá 2015 í þessu
máli, en m.a. voruð þið kjörin á þing út á þessa stefnu; friðun hvala.
Fyrir eitthvað verður „grænt“ líka að standa.
Nýlega var haft eftir forsætisráðherra, að hún hefði aðallega gengið
í VG af umhverfisástæðum. Túlkar einhver „umhverfi“ bara sem
loft? Fyrir undirrituðum stendur „umhverfisvernd“ og „grænt“; fyrir
dýra-, náttúru- og umhverfisvernd. Verður þar eitt ekki greint frá
öðru. Vonandi geta allir verið sammála um það.
Í stjórnarsáttmála er ljómandi ákvæði um dýra-, náttúru- og
umhverfisvernd. Gladdi það margan manninn. Því miður hefur
samt engin breyting orðið í þessum málum, undir ykkar forsæti og
stjórn, nema síður sé.
Langreyðaveiðar hófust að nýju, í fullum stíl, fleiri hreindýr voru
drepin í fyrrahaust, en nokkru sinni fyrr, mest allt kýr, upphaflega frá
8 vikna kálfum þeirra. Ekkert bólar á verndun sela, þó að þeir hafi
lengi verið í bráðri útrýmingarhættu, pólarrefurinn er hundeltur og
ofsóttur, og til þess varið 100 milljónum árlega af almannafé, þó að
enginn skaði liggi fyrir af hans völdum síðustu áratugi. Stórfellt og
stjórnlaust dráp á villtum fuglum heldur áfram, þó að fimm helztu
dýra- og vistfræðingar landsins hafi gert og birt skýrslu í apríl 2016
um það, að 11 fuglategundir, þ.á.m. lundi, hrafn og kjói, væru í
bráðri útrýmingarhættu. Jafnframt, að veiðiálag á sex villtum
fuglategundum væri of hátt og ógnaði tilveru þeirra, þar á meðal
grágæs, langvía, álka og rjúpa.
Nýlega hlutaðist ríkisstjórnin líka til um það, að 100 milljónum var
veitt af fjármunum almennings til þess að styðja taprekstur 12
loðdýrabænda, sem reyndar fara fram á 200 milljónir í viðbót. Þessi
„búgrein“ er eitthvert það heiftarlegasta dýraníð, sem sögur fara af,
og er búið að banna hana í flestum siðmenntuðum löndum, meðan
hún er styrkt í stórum stíl með almannafé af þessari ríkisstjórn. Er
grænt orðið grátt eða svart?
Átak í loftlagsmálum upp á 6,8 milljarða á næstu árum er
þakkarvert, og ykkur til sóma, en það er því miður það eina, sem þið
getið státað af í „grænum málum“. Og, ef fjárhæðin er skoðuð í
vissu samhengi, t.a.m. því, að á nákvæmlega sama tíma á að verja
120 milljörðum, nánast tuttugufaldri upphæð, til uppbyggingar
flugstöðvarinnar í Keflavík – sem þó er líka gott mál -, þá fer
glansinn nokkuð af 1.34 milljarði á ári í loftslagsvernd.
Aftur að hvalveiðimálum. Nýlega gaf H.Í. út skýrslu um
hvalveiðimál. Jafn illt og það er, þar sem Háskólinn ætti auðvitað að
leggja áherzlu á vönduð, hlutlæg og akademísk vinnubrögð, þá er
innihald þessarar skýrslu hrein sýndarmennska og út í hött. Útskýri
ég það nánar í grein í Morgunblaðinu, „Þegar bullið flæðir yfir
bakkana“, 31.01.19.
Í millitíðinni staðfesti Háskóli Íslands við okkur, að hann hefði unnið
„þróunarverkefni“ fyrir Hval hf, frá hausti 2017 fram til vors 2018,
og fengið sex milljónir króna fyrir. Í beinu framhaldi af því fól
sjávarútvegsráðherra HÍ, í nafni ríkisstjórnarinnar, að kanna
fýsileika starfsemi Hvals hf. Góð og vönduð vinnubrögð það.
Hér má líka nefna, að við höfum - með góðri hjálp lögfræðinga
okkar, Ragnars Aðalsteinssonar hrl og hans félaga - kært Hval hf
fyrir margvísleg meint laga- og reglugerðabrot, sem í okkar augum
eru augljós og skýr, og er málið nú hjá ríkissaksóknara. Vonumst við
til, að hann muni gefa út ákæru á hendur Hval hf innan fárra
mánaða.
Ef orðrómur um nýjar langreyðaveiðar á við rök að styðjast, er það
erindi þessa opna bréfs, að hvetja ykkur til þess, að standa eins og
veggur gegn slíkri leyfisveitingu. Standa við samþykktir ykkar og
stefnu, án frekari eftirgjafar. Ef Sjálfstæðismenn og
Framsóknarmenn vilja slíta stjórnarsamstarfi vegna hvalveiða, þá
má sú skömm fylgja þeim og fara með þeim hætti inn í
sögubækurnar.
Stefna skal standa, eins og forsætisráðherra sagði í þingræðu
02.05.18, og, það er betra – líka uppbyggilegra til frambúðar – að
falla með sóma fyrir málstaðinn, heldur en að standa með skömm og
vanvirðu.
Ekki væri það gott, að minnast 20 ára afmælis Vinstri grænna með
grundvallarsvikum við sjálfa sig og fylgjendur sína.
Að lokum þetta: Sumir vilja reyna að gera hvalveiðar að
fullveldismáli;
Þessir menn verða að átta sig á því, að við lifum á tímum
alþjóðasamfélagsins, þar sem menn verða að virða frjáls tjáskipti og
skoðun annarra þjóða, og, þar sem réttur til athugasemda og
skoðanaskipta hlýtur að ná yfir landsmæri og höf.
Var íslenzka ríkisstjórnin ekki að enda við að hafa afskipti af
málefnum Venesúela!?
Auk þess eru hvalir flökkudýr, sem fæðast flest við Vestur Afríku, og
flakka svo um heimshöfin; þeir eru á engan hátt íslenzk séreign,
hvað þá íslenzk auðlind, ef frjáls spendýr geta flokkast undir
auðlindir.
OPIÐ BRÉF TIL RÁÐHERRA OG
ALÞINGISMANNA VINSTRI GRÆNNA
Kæra Katrín, Svandís, Guðmundur Ingi, Ari Trausti, Andrés Ingi, Bjarkey, Kolbeinn,
Lilja Rafney, Ólafur Þór, Rósa Björk, Steingrímur J. og Steinunn Þóra,
Kær kveðja,
JARÐARVINIR
Ole Anton Bieltvedt,
formaður