Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaflöt 16-18 112 Reykjavík Sími 553 5200 solohusgogn.is
Retro borð
Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum stálkanti
og harðplastlagðri plötu.
Stærð og litur að eigin vali.
Einnig fáanlegt í ferkantaðri útfærslu.
Verð frá kr. 102.700
E60 orginal stóll, verð kr. 32.100
E-60 Bekkur
Fáanlegur í mismunandi lengdum.
Verð frá kr. 71.200
Íslensk
framleiðsla
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Uppákoman í Selsferðinnier einhver mesta lífs-reynsla sem ég hefmætt,“ segir Heimir
Sindrason tannlæknir. „Enginn
var samur á eftir; því þarna vor-
um við um 100 krakkar saman
sem stóðum andspænis dauða
okkar á ögurstund mannkynssög-
unnar. Skelfingin sem greip um
sig var mikil, í vitund allra sem
þarna voru lifir þetta mál enn og
margir hefðu sjálfsagt þurft það
sem í dag er kallað áfallahjálp.“
Út er komin bókin Styrjöldin
í Selinu, hvar segir frá sögulegri
ferð nemenda í 5. bekk Mennta-
skólans í Reykjavík í Sel skólans í
Reykjadal við Hveragerði í febr-
úar árið 1965. Þar bar til tíðinda
að á miðju kvöldi var sett á segul-
bandsupptaka þar sem flutt var sú
fregn að Rússar hygðust innan
stundar varpa kjarnorkusprengju
á Keflavíkurflugvöll. Fréttir þess-
ar voru lesnar af þulum Ríkis-
útvarpsins og þeim fylgdi ávarp
Bjarna Benediktssonar þáverandi
forsætisráðherra. Bað hann lands-
menn um að sýna stillingu, en
þegar þarna var komið sögu höfðu
óeirðir brotist út í borginni sem
fólk var hvatt til að flýja.
Hótel Jörð í háska
Framsetning þessa alls var
trúverðug, að minnsta kosti í vit-
und skólanemanna sem þarna
voru á til þess að gera af-
skekktum stað. Ekkert var þó
stríðið; fréttamenn þess tíma
höfðu léð raddir sínar í leikþáttinn
og eftirherma brá sér í hlutverk
forsætisráðherrans. Engir farsím-
ar voru til á þessum tíma og
áhrifamáttur einu útvarpsstöðvar-
innar á landinu slíkur að engum
datt í hug, í fyrstu að minnsta
kosti, að vefengja tíðindin, sem
reyndust svo vera gabb og grátt
gaman. Sem betur fer því ef rétt
hefði reynst hefði „Hótel Jörð“
verið í háska, svo vísað sé til ljóðs
Tómasar Guðmundssonar sem
Heimir samdi eftirminnilegt lag
við. „Það er ekki um fleiri gisti-
staði að ræða,“ segir í ljóðinu
Hótel jörð.
„Hræðslan sem greip um sig
var mikil,“ segir Heimir. „Nokkrir
í hópnum, aðallega stúlkur, féllu
nánast í öngvit, en sennilega hefur
þessi flutningur af segulbandinu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Menntaskólaselið Er í Reykjadal inn af Hveragerði. Hér voru staddir um 100 krakkar úr MR sem töldu sína síð-
ustu stund runna upp. Gamnið svonefnda hafði eftirköst og sumir hefðu þurft það sem í dag er kallað áfallahjálp.
Falsfrétt Dagblöðin sögðu frá uppákomunni í Selinu og hneyksluðst á. Málið vakti
mikla athygli og foreldrar barna í ferðinni kvörtuðu við stjórnendur MR.
Bókarkápa Styrjöldin í
Selinu er lítil bók en góð.
Kjarnorkustyrjöld í Selsferð
Frægt skólaferðalag í
nýrri bók. Minning úr
MR og ógnvænleg tíðindi
fyrir 54 árum. Féllu í
öngvit á afskekktum stað.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eftirminnilegt „Ógnin af kjarnorkusprengjunni var mjög nálæg í lífi minnar kynslóðar,“ segir Heimir Sindrason.
Þá var fyrst upplýst
að þetta væri upp-
spuni sem einhverja
var þá farið að renna í
grun. Þessu fylgdi
mikil skelfing; lífs-
reynsla sem enginn
vildi þó fyrir nokkurn
mun hafa misst af.
varað í um hálfa klukkustund. Þá
var fyrst upplýst að þetta væri
uppspuni sem einhverja var þá
farið að renna í grun. Þessu fylgdi
mikil skelfing; lífsreynsla sem
enginn vildi þó fyrir nokkurn mun
hafa misst af.“
Dagbók og sjónvapsmynd
Í tímans rás segist Heimir
Sindrason hafa verið áfram um að
sögunni úr Selsferðinni yrði hald-
ið til haga. Hann hafi því kallað til
fjóra skólabræður sína en allir
tengjast þeir málinu, hver með
sínu móti. Einn þeirra er Sig-
urður Arnalds verkfræðingur og á
sínum tíma þekktur sem tals-
maður Kárahnjúkavirkjunar.
Hann var höfundur útvarpsþáttar-
ins eða upptökunnar, sem var
uppfærð útgáfa af samskonar
þætti sem Ragnar bróðir hans,
seinna þingmaður og leikrita-
skáld, hafði gert um áratug fyrr.
Hinir voru: Gísli Már Gíslason
forleggjari hjá Ormstungu og út-
gefandi bókarinnar og Ásgeir Sig-
urgestsson sálfræðingur sem
skrifaði dagbók í ferðinni frægu
og er hún birt í bókinni.
Fjórði og síðasti maðurinn í
þessum hópi var svo Ágúst Guð-
mundsson kvikmyndaleikstjóri.
Sex árum eftir Selsferðina tók
hann viðtöl við nokkra sem þar
voru. Lýsti fólkið þar reynslu
sinni og viðtölin eru birt í bókinni.
Atburðir þessir eru svo efniviður-
inn í sjónvarpsmynd Ágústs,
Skólaferð, sem sýnd var á RÚV
árið 1978. Ber þess svo að geta að
þegar bókin góða kom út á dög-
unum hittust þau sem voru í Sels-
ferðinni forðum í Bíó Paradís og
sáu Skólaferð.
Ógnin var nálæg
„Ógnin af kjarnorkusprengj-
unni var mjög nálæg í lífi minnar
kynslóðar. Í Kúbudeilunni haustið
1962 gat allt gerst og það mál var
mörgum í fersku minni í Selsferð-
inni rúmum tveimur árum síðar.
Svo ég segi fyrir sjálfan mig var
þetta ferðalag austur í Hveragerði
eitt það eftirminnilegasta sem mig
hefur hent á lífsleiðinni,“ segir
Heimir Sindrason.