Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. F E B R Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  43. tölublað  107. árgangur  FALSAÐAR FRÉTT- IR VÖKTU MIKLA SKELFINGU SKAPANDI MENN MIKILVÆGT AÐ KOMA HEIM OG FLYTJA ÞESSI VERK TVÍEYKIÐ CLUBDUB 33 SÆUNN ÞORSTEINSDÓTTIR 30HEIMIR SINDRASON 12 A ct av is 9 11 01 3 91 10 13 Omeprazol Actavis 20 mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is  Hluti hóps sem unnið hefur að því að sauma Njálurefilinn á Hvolsvelli fer í pílagrímsferð til Bayeux í Frakklandi til að skoða hinn þekkta Bayeux-refil sem er 70 metra lang- ur. Með hópnum í för verða makar og tveir fulltúrar frá Rangárþingi eystra. Njálurefillinn, sem geymdur er í Sögusetrinu á Hvolsvelli er nú 75,7 metra langur en fullkláraður verð- ur hann 90 metrar. Að sögn Gunn- hildar Eddu Kristjánsdóttur verk- efnastjóra hefur hópurinn ekki örugga vissu um að til sé lengri ref- ill og meðan svo sé telji hópurinn hann lengsta refil í heimi. Í refilinn er söguþráður Njálu saumaður og m.a. er nú verið að sauma brennuna á Bergþórshvoli. Vonast er til þess að refillinn verði fullkláraður 2.2. 2020, en þá verða sjö ár frá því að byrjað var á honum. » 6 List Hluti af Njálureflinum sem nú er verið að sauma í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Útsaumsfólk í píla- grímsferð til Bayeux  „Tvö parhús hafa risið í Vík í Mýrdal á vegum sveitarfélagsins með stofnframlagi frá Íbúðalána- sjóði. Þau eru með fyrstu húsum sem voru byggð með slíkum stofn- framlögum. Við höfum ekki heyrt annað en að húsin í Vík hafi tekist vel og verið innan kostnaðarramma Íbúðalánasjóðs,“ segir Dennis Jó- hannesson, annar eigenda ARKHD arkitektastofunnar, við blaðið. Hafa íslenskir arkitektar nú hannað einingahús sem þeir segja samkeppnishæf við innflutt ein- ingahús og er afkastageta íslenskra framleiðenda ekki vandamál. »10 Samkeppnishæf íslensk einingahús Baldur Arnarson baldura@mbl.is Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands, segir að ætla megi að umsækjendur um stöðu bankastjóra LÍ hafi horft til launa í öðrum stórfyrirtækjum. „Þegar við auglýstum eftir nýjum bankastjóra voru launin á sama tíma færð frá kjararáði til banka- ráðs. Þannig að við þurftum að fara í faglega skoðun á málinu. Við sáum að það væri ekki hægt að bjóða nýj- um bankastjóra að vera á launum sem væru hvergi nálægt því að vera samkeppnishæf. Svo voru umsækj- endur vafalítið að líta til starfs- kjarastefnu okkar, auk þess að líta til launa bankastjóra hinna bank- anna,“ segir Helga Björk. Eðlileg laun frá 3,5 milljónum Hún segir bankann hafa leitað til þriggja ráðgjafarfyrirtækja varð- andi launakjör bankastjóra. Þeirra niðurstaða hafi verið að eðlilegt væri að launin væru 3,5-4,9 millj- ónir á mánuði. Til samanburðar hafi bankastjórinn verið með um 2,1 milljón á mánuði áður en banka- ráðið hækkaði launin. »6 Væntingar um hærri laun Morgunblaðið/Eggert Í Austurstræti LÍ hækkar laun.  Umsækjendur um stöðu bankastjóra LÍ sagðir hafa horft til markaðslauna  Ráðgjafar nefndu 3,5-4,9 milljónir í laun „Það var þungt hljóð í fólki á samninganefndafundi ASÍ [í gær]. Það voru allir sammála um að þetta voru vonbrigði og nú bara metur hver hópur fyrir sig framhaldið,“ segir Drífa Snædal, forseti Alþýðu- sambands Íslands, í samtali við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til skattabreytingartillagna stjórn- valda sem kynntar voru í gær. Drífa segir verkalýðsfélögin hafa átt von á enn frekari skattalækkun fyrir þá tekjulægstu. „Þetta er bakslag,“ segir hún um útspil stjórnvalda. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), segir tillögurnar raunsæislegar og í takt við yfirlýsingar stjórnvalda. Verkalýðsfélögin funda með SA á morgun þar sem tekin verður ákvörðun um framhaldið. „Sama hver framvindan verður þá þurfum við að halda áfram að tala saman. Báðir aðilar þurfa að slá af sínum væntingum. Við þurfum að ná kjarasamn- ingi. Það verkefni fer ekki frá okkur jafnvel þótt viðræðum verði slitið. Verkföll valda miklu fjár- hagslegu tjóni. Leiftursókn gegn lífskjörum al- mennings hugnast engum,“ segir Halldór. Morgunblaðið/Hari Kjarasamningar Samninganefndir verkalýðsfélaganna koma saman til fundar í dag. Þá munu félögin hitta sitt bakland og taka ákvörðun um framhaldið. Félögin meta framhaldið  Forseti Alþýðusambands Íslands segir útspil stjórnvalda vera bakslag MSkattbyrði minnkar en ekki nóg »2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.