Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 NOVA2 hlutirnir eru einfaldir og stílhreinir. Serían einkennist af hárfínum smá- atriðum, úthugsaðri og einfaldri fagurfræði sem byggð er á hreinum línum og sívölum formum. SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS NOVA2 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Mér finnst mikilvægt að koma heim að flytja þessi verk og að Íslendingar geti heyrt þau. Ég spila mest í öðrum löndum og er þá oft að útskýra hvað tónskáldin okkar hér eru að fást við. Mér finnst mjög gaman og spennandi að spila verkin fyrir fólkið hér sem þekkir tónskáldin og hvað þau eru að gera,“ segir Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari. Hún er að segja frá ís- lensku verkunum sem hún mun flytja á tónleikum sínum í Ásmundarsal við Freyjugötu í kvöld, miðvikudag, klukkan 20. Um er að ræða útgáfu- tónleika Sæunnar en ný plata hennar, Vernacular, kemur út 8. mars næst- komandi hjá bandarísku útgáfunni Sono Luminus. Á tónleikunum hyggst Sæunn leika öll fjögur verkin á plöt- unni: Afterquake eftir Pál Ragnar Pálsson, 48 images of the moon eftir Þuríði Jónsdóttur, O eftir Halldór Smárason og Solitaire eftir Hafliða Hallgrímsson. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í Ásmundarsal síðan húsið var endurnýjað og opnað á ný í fyrra. „Sópast að mér“ Sæunn Þorsteinsdóttir er einn kunnasti sellóleikari þjóðarinnar. Hún lauk meistaraprófi frá Juilliard- tónlistarháskólanum í New York og hefur leikið á fjölda tónleika og tón- listarhátíða víða um lönd, meðal ann- ars sem einleikari með virtum sinfón- íuhljómsveitum. Sæunn kennir við Washington-háskóla í Seattle. „Það er líka ánægjulegt að hafa út- gáfutónleika hér og fagna með tón- skáldunum,“ segir hún og byrjar að segja frá verkunum. Hún segir Solit- aire Hafliða hafa verið eitt fyrsta ís- lenska einleiksverkið sem hún flutti. „Það að Hafliði er líka sellóleikari færir það nær mér en flest önnur verk en það er líka mjög flott og ég hef hrif- ist af því frá byrjun. Svo hafa hin verkin einhvernveginn sópast að mér,“ segir hún og brosir en þau eru öll samin fyrir hana. Þuríður samdi sitt verk fyrir Sæunni að flytja á um- talaðri Íslandshátíð í hinni nýju tón- listarhöll, Elbphilharmonie, í Ham- borg. „Það var mjög spennandi að fá að flytja það á einum fyrstu tónleik- anna í þessum glæsilega sal og verk- inu var mjög vel tekið.“ Hún segist hafa unnið talsvert með Halldóri síðan þau hittust fyrst á Ísafirði í tengslum við hátíðina Við djúpið og síðan voru bæði búsett í New York. Páll Ragnar samdi síðan Afterquake sem eins- konar framhald við hljómsveitar- verkið Quake sem Sæunn hefur flutt víða og hlotið mikið lof fyrir. „Páll kemur þar með nýjar hugmyndir en út frá sama tungumáli og birtist í Quake,“ útskýrir Sæunn og lofar sam- starfið við útgáfuna Sono Luminus. Hugmyndin að þessari nýju plötu kviknaði er hún var að hljóðrita Quake fyrir útgáfuna í fyrra; sú plata kemur ekki út fyrr en í haust en fyrst verður útgáfunni með verkunum fjór- um fagnað í Ásmundarsal í kvöld. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Einleikarinn Í tengslum við nýju plötuna var tekið upp myndband með Sæunni í Ásmundarsal í gær. Spennandi að spila hér  Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari leikur fjögur íslensk einleiksverk á útgáfutónleikum í Ásmundarsal í kvöld Það fyrsta sem vekur athyglirýnis á bókinni Mín sök erkápan sem við fyrstu sýnvirðist hafa lent í rigninu eða sjóroki. Eftir lestur bókarinnar er útlit hennar rökrétt. Á frummál- inu heitir sagan I Let You Go, er eft- ir Clara Mackin- tosh og kom fyrst út í Bretlandi árið 2014. Mín sök er fyrsta bók höf- undar og hlaut hann fyrir Theak- stons Old Pecu- lier Crime Novel- verðlaunin 2016; bókin hefur selst í milljónum ein- taka út um allan heim. Mín sök fjallar um leit að öku- manni sem ekur á ungan dreng rétt við heimili hans með þeim afleið- ingum að hann deyr. Móðir drengs- ins verður vitni að ákeyrslunni en ökumaður bílsins lætur sig hverfa af vettvangi. Við tekur rannsókn lög- reglu sem lítið verður ágengt í fyrstu a.m.k. Inn í söguna fléttast heimilisofbeldi, fjölskylduvandamál, fjárskortur lögreglu, sigrar og sorg- ir. Harmleikur, spenna, ofbeldi, góð- vild, skarpir rannsóknarlögreglu- menn og óvæntur endir er upp- skriftin að góðri sakamálasögu. Allt þetta fyrirfinnst í Mín sök og gæti gert söguna fyrirsjáanlega en flétta bókarinnar kemur í veg fyrir það með atburðarás sem svo sannarlega kemur á óvart þegar líður að lokum bókarinnar. Höfundurinn nýtir sér 12 ára reynslu sem hún öðlaðist í störfum hjá bresku rannsóknarlög- reglunni og lætur tilfinningarnar sektarkennd og sorg sem hún hafði sjálf upplifði eftir sonarmissi vera allt umvefjandi í söguþræðinum. Það má leiða að því líkur að vegna reynslu Mackintosh þá verði per- sónusköpun í bókinni trúverðug. Rannsóknarlögregumennirnir sem koma mest við sögu, Ray, Kate og Stumpy eru trúverðugir karakterar. Sem og Mags, eiginkona Ray og dýralæknirinn Patrick. Það á líka við um aðalpersónu bókarinnar Jennu Gray sem lætur sig hverfa stuttu eftir ákeyrsluna. Ian er að mínu mati ekki trúverðugur þrátt fyrir að hann eins og Jenna segi frá sinni hlið mála í fyrstu persónu í bókinni. Það getur verið örlítið ruglingslegt í byrjun að átta sig á því hver er að tala. Þráður sögunnar í Mín sök er spennandi og óvæntur eins og góðar spennusögur eiga að vera. En á sama tíma þarf lesandinn að móta sér afstöðu án þess að vita alla mála- vöxtu þegar honum er boðið með í dómsal þar sem mál ökumannsins sem keyrði niður litla drenginn er tekið fyrir. Að lesa Mína sök er svo- lítið eins og að horfa á sakamálaþátt í sjónvarpinu. Staðalmyndir breskra lögreglumanna eru í hávegum hafð- ar. Geðvondi yfirmaðurinn, vinnu- alkarnir, hjónabandsvandræðin og bjórkollan eftir vinnu í stað kleinu- hringja í amerískum sakamálaþátt- um. Á köflum finnst rýni sagan fullýkt og missa trúverðugleika en höfund- ur hefur vissulega leyfi til þess að segja söguna á hvern þann hátt sem honum sýnist. Það er ákveðinn styrkleiki sögunnar að lesandinn fær að skyggnast inn í þankagang þess sem verður fyrir ofbeldi og eins þess sem beitir því. Skyggnast örlít- ið inn í heim þess sem missir og þess sem valdur er að missi. Bókina Mína sök er alveg þess virði að lesa að mati þessa rýnis, sem fannst oftast nær erfitt að leggja bókina frá sér vegna spennu yfir framhaldinu. Ljósmynd/Astrid di Crollanza Mackintosh Rýni fannst oft erfitt að leggja bók hennar frá sér. Spennandi og óvæntur þráður Glæpasaga Mín sök bbbmn Eftir Clare Mackintosh. Eyrún Edda Hjörleifsdóttir þýddi. JPV útgáfa 2019. Kilja, 425 bls. GUÐRÚN ERLINGSDÓTTIR BÆKUR Áróra, hljómsveit bassaleikarans Sigmars Þórs Matthíassonar, kem- ur fram á vordagskrá Jazzklúbbs- ins Múlans á Björtuloftum í Hörpu í kvöld, miðvikudag, kl. 21. „Sigmar gaf út sína fyrstu sóló- plötu, Áróra, í september 2018. Tónlistinni má lýsa sem kraftmikilli blöndu af jazzi, poppi og rokki sem ber keim af nokkurri ævintýra- mennsku en þó stöðugleika á köfl- um. Á tónleikunum munu lög af plötunni fá að hljóma auk nokkurra splunkunýrra laga,“ segir í tilkynn- ingu frá tónleikahöldurum. Hljómsveitina skipa auk Sigmars á raf- og kontrabassa, þeir Jóel Pálsson og Helgi Rúnar Heiðarsson á saxófóna og klarínett, Ásgeir Ásgeirsson á gítar og önnur strengjahljóðfæri, Kjartan Valde- marsson á píanó og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Múlinn er að hefja sitt sautjánda starfsár en hann er samstarfsverk- efni Félags íslenskra hljómlistar- manna (FÍH) og Jazzvakningar. Alls verða 17 tónleikar á vordag- skrá Múlans. Tónleikadagskráin er, að sögn skipuleggjenda, að „vanda bæði bæði metnaðarfull og fjöl- breytt“ og „gott dæmi um þá miklu grósku sem einkennir íslenskt jazz- líf þar sem allir straumar og stefn- ur eiga heima“. Miðar fást í miða- sölu Hörpu, harpa.is og tix.is. Áróra á Múlanum í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.