Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, hef- ur gefið út reglugerð sem heimilar áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu árin 2019-2023. Nær ákvörð- unin til veiða á fimm ára tímabili, eins og fyrri reglugerð gerði. Hafrannsóknastofnun ráðleggur að árlegar veiðar á tímabilinu 2018- 2025 verði að hámarki 161 langreyð- ur á veiðisvæðinu Austur-Grænland/ Vestur-Ísland og að hámarki 48 dýr á svæðinu Austur-Ísland/Færeyjar og 217 hrefnur á íslenska land- grunnssvæðinu. Segir frá þessu í til- kynningu frá ráðuneytinu. Ákvörðunin er sögð byggjast á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, en jafnframt hafi ráðherra haft hliðsjón af nýlegri skýrslu Hagfræðistofnun- ar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða hér við land. Við ákvörðun sína hafi ráðherra enn fremur stuðst við minnisblað frá Hafrannsóknastofnun, sem óskað hafi verið eftir í kjölfar skýrslu Hag- fræðistofnunar. Síðan hvalatalningar hófust 1987 hefur langreyði fjölgað jafnt og þétt við Ísland. Við síðustu talningu 2015 var fjöldinn á skilgreindu stofnsvæði metinn um 37 þúsund dýr, sem jafn- gildir um þreföldun frá 1987. Morgunblaðið/Ómar Hvalskurður Hvölum hefur fjölgað jafnt og þétt við landið undanfarið. Ráðherra leyfir hvalveiðar áfram  Veiðileyfi gefið á langreyði og hrefnu Tunglið, eini náttúrulegi fylgi- hnöttur jarðar, hefur löngum verið mönnum heillandi umhugsunarefni enda hefur þetta nálægasta fyrir- bæri himinsins, að frátöldum geim- förum og gervihnöttum, hangið þarna á sínum stað frá örófi alda. Þessi hversdagslegi hnöttur er að meðaltali 384.400 kílómetra frá jörðu og heimsóttu menn hann í fyrsta skipti árið 1969. Í gær, 19. febrúar, var fullt tungl yfir Íslandi. Fylgihnöttur jarðar í björtu vetrarveðri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á sínum stað frá örófi alda KÖGGLAR SPÆNIR SAG www.fodur.is Fram kom í Morgunblaðinu í gær að aðalfundur leigufélagsins Heima- valla færi fram 15. mars. Það er ekki rétt. Hið rétta er að fundurinn fer fram 14. mars næstkomandi. Vegna mistaka fékk Morgunblaðið ranga dagsetningu á fundinum. Fjallað var um aðalfundinn í sam- hengi við uppbyggingu Heimavalla á íbúðum á Hlíðarenda í Reykjavík. LEIÐRÉTT Aðalfundur Heimavalla fer fram 14. mars

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.