Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 33
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Heimildarmyndin ClubDub The Movie var frumsýnd í Sambíóunum í Egilshöll 3. febrúar síðastliðinn en hún verður þó ekki sýnd í kvik- myndahúsum heldur í appi Sjón- varps Símans eða Premium. Sýn- ingin í Egilshöll var boðssýning fyrir vini, vandamenn og þá sem komu að gerð myndarinnar en í henni er rakin saga félaganna Ar- ons Kristins Jónassonar og Brynj- ars Barkarsonar sem skipa raf- tónlistardúettinn ClubDub og notið hafa mikilla vinsælda frá því í fyrrasumar. Þeir sem yngri eru kannast við smellina „Clubbed Up“, Drykk 3x“ og „Eina sem ég vil“ en hinir eldri líklega ekki, nema þeir fylgist vel með klúbba- tónlist. Hinar skyndilegu og nokk- uð óvæntu vinsældir dúettsins leiddu til þess að þeir félagar voru bókaðir á tónleika víða um land og á næstum hvert einasta busaball á landinu, eða svo segir a.m.k. í til- kynningu vegna myndarinnar. „Sýnt er frá daglegu lífi Arons og Brynjars haustið 2018, þar sem þeir spiluðu á níu busaböllum út um allt land, annar lagðist undir skurðhníf, hinn litaði á sér hárið í hverri viku en báðir skemmtu sér konunglega,“ stendur m.a. í til- kynningunni. Hvar verður maður eftir ár? Það er heldur óvenjulegt og jafn- vel einkennilegt að gerð sé heimild- armynd um dúett sem er svo nýr af nálinni og vakti það forvitni blaðamanns sem sló á þráðinn til Arons til að fá frekari upplýsingar. Og hann var spurður einmitt að þessu, hvernig stæði á því að búið væri að gera heimildarmynd um ClubDub sem er ekki einu sinni eins árs gamall dúett. „Málið er bara að það gerist allt svo hratt hérna á Íslandi og líka í heim- inum,“ svarar Aron og er tíminn greinilega hugleikinn. „Hvar verð- ur maður eftir ár?“ spyr hann, „fyrir ári var ég ekki að gera neitt, bara í skóla.“ – Hver átti þessa hugmynd? „Við vorum fjórir sem fengum þessa hugmynd, þ.e. ég, Brynjar, umboðsmaðurinn okkar Bergþór Másson og leikstjórinn Vignir Daði Valtýsson sem mætti með okkur á alla viðburði sem við tókum upp á þessu tveggja mánaða tímabili,“ svarar Aron. „Þegar við höfðum verið bókaðir á einhver 13 busaböll ákváðum við bara að það væri gaman að taka upp og sjá hvað við gætum gert við það efni. Alltaf þegar maður er að spila er einhver annar frægur að spila og maður getur tekið viðtal við hann og spurt hvað honum finnst um þetta.“ Skapandi menn Aron segir myndina ekki beinlín- is heimildarmynd um þá félagana heldur frekar um ákveðið tímabil, sumarið 2018. Heilmikil breyting hafi orðið á högum þeirra Brynj- ars. „Maður fór úr því að vera bara að einbeita sér að skólanum í að einbeita sér að því að skemmta tugum þúsunda manna á tveimur vikum eða eitthvað,“ útskýrir Aron. Í myndinni megi m.a. sjá viðtöl við þá Brynjar þannig að fólk geti kynnst þeim betur. „Í þessari mynd gefst tækifæri á að kynnast okkur á mjög einlægan hátt, hverj- ir við erum í raun og hvernig stemningin er á tónleikum hjá okk- ur.“ – Nú veit ég nánast ekkert um ykkur, hvað eruð þið gamlir til dæmis og hvers vegna fóruð þið að starfa saman? „Þetta byrjaði allt þegar við vor- um saman í Versló, ég er fæddur 1995 og hann 1996. Við vorum þar saman í nefnd sem heitir 12:00 sem er svona grín-vídeónefnd,“ svarar Aron. „Við vorum báðir reknir úr Versló, vorum að svindla í prófum og drekka í skólanum. Síðan kom tveggja ára pása eftir menntaskóla þar sem við töluðum eiginlega ekk- ert mikið saman, við Brynjar, en við höfum alltaf viljað skapa eitt- hvað þannig að við ákváðum að hittast og mixa eitthvað saman í stúdíói. Við erum mjög ofvirkir gaurar og viljum koma einhverju efni frá okkur. Við gerðum þessa plötu í sumar sem heitir Juice Menu Vol. 1 og fyrsta lagið af henni, „Clubbed Up“, varð vinsælasta lagið á Íslandi eftir tvær vikur eða þar um bil, var í fyrsta sæti í sex vikur eða eitthvað,“ segir Aron. Opnir fyrir öllu „Ástæðan fyrir því að við gerð- um þessa mynd var að þetta var ótrúlega gaman og það verður líka ótrúlega gaman að horfa á þetta eftir nokkur ár og sjá hvernig bransinn var árið 2018, að það var margt að gerast rosalega hratt í bransanum þá,“ segir Aron og nefnir nokkra tónlistarmenn sem áttu virkilega gott ár í fyrra, m.a. rapparana Birni og Króla. – Það þarf kannski fleiri svona myndir upp á að skrá tónlistarsög- una? „Algjörlega og þetta er ekki ein- hver „conclusion“ á okkar ferli, við erum rétt að byrja. Þetta er bara skemmtilegt uppátæki hjá okkur, við elskum að skapa, hvort sem það er tónlist, myndefni, þáttur eða annað, við erum á YouTube að fífl- ast líka og opnir fyrir öllu,“ segir Aron. Partítónlist – Þið urðuð vinsælir mjög hratt, veistu hvað gerðist nákvæmlega? „Þetta varð bara „viral“. Málið er að við gáfum bara út, markaðs- settum þetta ekkert og okkar mottó var eiginlega bara að ef þetta væri gott myndi þetta ein- hvern veginn rata langt. Ef eitt- hvað er gott þá er það gott, það er ekki hægt að ýta einhverju í gegn sem er ekki gott,“ segir Aron. Þá sé bakland þeirra Brynjars gott og þeir þekki marga í brans- anum. „Við gáfum út viku fyrir Secret Solstice en enduðum á að taka fjögur sett á Solstice, tókum eitt lag hjá fjórum ólíkum artistum og það var kannski þannig sem ungdómurinn fékk forsmekkinn af því hvernig er að hlusta á ClubDub og fór í kjölfarið að hlusta meira á okkur,“ segir Aron. Spurður út í hvernig þeir skil- greini tónlist sína svarar Aron að þetta sé einfaldlega partítónlist, klúbbatónlist. „Við viljum ekki beint vera að setja einhvern stimpil á hana, þetta er bara partítónlist,“ segir hann og nefnir að tónleikar þeirra hreyfi heldur betur við gest- um. „Það má sjá í myndinni, við spiluðum á Októberfest fyrir fullu tjaldi af háskólanemum og það var m.a.s. fullt út úr dyrum, bara allir að missa vitið.“ Aron og Brynjar eru ekki aðeins á fullu í tónlistinni heldur eru þeir líka í háskólanámi, Aron í við- skiptafræði og Brynjar í verkfræði. Og umboðsmaðurinn í námi í Lond- on. „Ég er að fara í þrjú próf í vik- unni en samt er ég að gefa út kvik- mynd, taka fullt af símtölum og fara í viðtöl,“ segir Aron kíminn. Þeir Brynjar séu bara venjulegir gaurar sem njóti þess að búa til og flytja tónlist. „Við erum rétt að byrja“  Tvíeykið ClubDub sló í gegn í fyrrasumar og nú hefur verið gerð heimildarmynd um það  „Í þessari mynd gefst tækifæri til að kynnast okkur á mjög einlægan hátt,“ segir annar liðsmaðurinn Uppátæki „Þetta er bara skemmtilegt uppátæki hjá okkur, við elskum að skapa, hvort sem það er tónlist, myndefni, þáttur eða annað,“ segir Aron Kristinn Jónasson sem skip- ar dúettinn ClubDub ásamt Brynjari Barkarsyni. MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 15. mars Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 11. mars. SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.