Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Steinsmiðja S. Helgasonar vinnur nú hörðum höndum að því að saga gömlu hafnargarðana sem grafnir voru upp við Reykjavíkurhöfn. Verða minjarnar varðveittar í bílakjallara Hafnartorgs sem reist hefur verið á svæðinu. Þetta var niður- arnar fjarlægðar og teknar í sundur. Verða þær sýnilegar í bílakjallaranum og ennfremur frá göngugötunni í gegnum gler. Þeim verður komið fyrir aftur undir eftirliti Minjastofn- unar og fornleifafræðings. mhj@mbl.is staða viðræðna á milli Minjastofnunar og Landstólpa þróun- arfélags á sínum tíma. Annar hafnargarðurinn er frá því fyrir aldamótin 1900 og er því sjálfkrafa friðaður en hinn, sem er frá 1928, var skyndifriðaður. Við framkvæmdirnar voru minj- Fornminjum komið fyrir í bílakjallara Hafnartorgs Gömlu hafnargarðar Reykjavíkur sagaðir niður Morgunblaðið/Árni Sæberg Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Forystufólk Eflingar, VR, Verka- lýðsfélags Grindavíkur og Verka- lýðsfélags Akraness lýsti allt yfir vonbrigðum með skattabreytingar- tillögur stjórnvalda sem kynntar voru í gær. Verkalýðsfélögin fund- uðu með stjórnvöldum í hádeginu þar sem kynntar voru fyrirhug- aðar aðgerðir stjórnvalda, m.a. í skatta- og húsnæðismálum. Vonast var eftir því að skattabreytingar- tillögurnar myndu liðka fyrir kjarasamningsviðræðum. Þá munu verkalýðsfélögin funda með Sam- tökum atvinnulífsins á morgun og verður þar tekin ákvörðun um framhald viðræðnanna. Samkvæmt þeim tillögum sem kynntar voru í gær lækkar skatt- byrði lágtekjufólks um 2 prósentu- stig. Bætt verður við nýju neðsta skattþrepi sem mun vera 32,94%. Einstaklingur með 325 þúsund krónur í tekjur mun eftir breyt- inguna hafa 17,85% skattbyrði í stað 20,1% og mun því greiða um 81 þúsund krónum minna í skatt á ári. Þá verða skattleysismörk tæp- lega 160 þúsund kr. Samkvæmt út- reikningum fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að tekjuáhrif skattkerfisbreytinganna nemi um 14,7 milljörðum kr. Vilja enn sjá hátekjuskatt „Eftir því sem við kynnum okk- ur þessar tillögurnar betur verða vonbrigðin meiri. Það er sennilega verið að taka tengingu persónu- afsláttar við vísitöluna úr sam- bandi í nokkur ár. Þannig að hún mun ekki fylgja verðlaginu,“ segir Drífa Snædal, forseti Alþýðusam- bands Íslands. Hún segist hafa átt von á meiri lækkun til tekjulægstu hópanna og einnig að komið yrði á fót hátekjuskatti. „Þetta eru skattalækkanir upp allan stigann. Það hefur enginn verið að biðja um það. Þannig að ríkið er þarna að afsala sér mögu- leikanum á að dreifa byrðunum og nýta skattkerfið sem jöfnunartæki. Það er náttúrlega það sem við höf- um lagt mikla áherslu á – að gera mest fyrir þann hóp sem er að berjast við að ná endum saman. Síðan lögðum við til fjögurra þrepa skattkerfi þannig að það kæmi til hátekjuskattur. Því við viljum ekki höggva í velferðarkerfið líka held- ur viljum við dreifa skattbyrðinni með sanngjarnari hætti.“ Hún telur einnig nauðsynlegt að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður. „Þannig að þeir sem taka launin sín eða tekjur út úr eignarhaldsfélögum greiði sann- gjarnan skerf. Þannig að fólk geti ekki valið sig frá tekjuskattsþrep- unum.“ Spurð hvort verkalýðshreyfingin sé að fara út fyrir sitt hlutverk með því að berjast fyrir hærri sköttum á aðra hópa og hvernig það tengist kaupum og kjörum þeirra félagsmanna, segir Drífa það lið í að dreifa byrðinni. „Það tengist því þannig að við viljum skattalækkanir til ákveðins hóps án þess að þurfa að skerða velferðarkerfið. Þannig að við þurfum að sækja þetta einhvers staðar frá. Við viljum dreifa byrð- unum með sanngjarnari hætti.“ „Þetta er bakslag“ Drífa segir að aðildarfélög ASÍ muni ræða við sínar samninga- nefndir í dag en það hafi verið þungt hljóð í fólki á samninga- nefndarfundi ASÍ í gær. „Það voru allir sammála um að þetta voru vonbrigði og nú bara metur hver hópur fyrir sig fram- haldið. Ég var að vonast til þess að það kæmi útspil [í gær] sem gerði það að verkum að við segðum: „ok þetta er gott innlegg nú setjum við allt trukkið í að leysa þessa kjara- samninga“. Þetta innlegg var þó ekki til þess. Þetta er bakslag.“ Ragnar Þór Ingólfsson, formað- ur VR, segir vonbrigðin með til- lögur stjórnvalda snúa fyrst og fremst að verðtryggingunni og síð- an skattabreytingunum. „Þetta er bara svo langt, langt frá því sem er búið að taka af okk- ar hópum. Í kaupmáttarkrónum í gegnum skattkerfið, tekjutenging- ar bóta og svoleiðis. Þetta nær ekki einu sinni að skila því til baka sem búið er að taka síðustu árin.“ Hann segir næstu skref vera að boða til samninganefndarfundar í dag og að síðan verði fundað með trúnaðarráði. „Við kynnum bara stöðuna fyrir okkar baklandi og tökum ákvörðun út frá því.“ Krónutölupphæðin of lág Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélags Akraness, segir tillögurnar langt undir væntingum. „Þessar tillögur stjórnvalda eru fólgnar í því að koma með skatta- breytingar sem nema 6.750 kr. á mánuði.“ Spurður hversu háa upp- hæð hefði þurft til, segir hann stjórnvöld vita það. „Það er alveg ljóst, stjórnvöld vita það og við erum löngu búin að koma þeim skilaboðum til skila. Það er allavega umtalsvert meira en þetta. Þetta var bara langt und- ir okkar væntingum því þessi upp- hæð dugar vart til að mæta þeim hefðbundnu verðlagshækkunum sem eru um hver áramót hjá hverju heimili.“ Hann segist meðvitaður um að stéttarfélög geta ekki undir nein- um kringumstæðum gert kröfu á ríkið samkvæmt lögum, en engu að síður var talið að þetta gæti verið leið til að auka ráðstöfunartekjur fólks. „Þannig gætum við gert þetta í þríhliða samkomulagi til að reyna að afstýra því að hinum margfræga stöðugleika yrði ógnað. Þá yrði það gert með þessu þrí- hliða samkomulagi en nú er það orðið ljóst með þessu útspili að nú er það ekki til staðar.“ Verkefnið fer ekki neitt „Við fyrstu sýn virðist mér þetta vera raunsæjar tillögur sem eru í takt við yfirlýsingar stjórnvalda sem fjallað var m.a. um í stjórn- arsáttmálanum. Í mínum huga snýst þetta á endanum um dreif- inguna á lækkun tekjuskatts og mér virðist að þarna sé verið að hlusta á kröfu verkalýðshreyfing- arinnar um að þeir sem lægstar tekjur hafa beri sem mest úr být- um við skattkerfisbreytinguna,“ segir Halldór Benjamín Þorbergs- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. „Sé þetta skoðað í samhengi við breytingar á barna- bótakerfi eru þetta verulegar ráð- stafanir inn á flest heimili lands- ins. Ég get ekki annað en ályktað að fólk muni um þessar fjárhæðir og þ.a.l. sé þetta jákvætt innlegg í kjaraviðræðurnar.“ Hann segir það hafa legið fyrir um langa hríð að lausn kjaradeil- unnar myndi nást fram annars vegar með innleggi frá atvinnurek- endum og hins vegar með ráðstöf- unum ríkisins í þremur þáttum, þ.e. skattabreytingum, húsnæðis- málum og öðrum réttindabreyting- um. „Nú hafa öll þessi atriði komið fram og spilin verið lögð á borðið. Það er einfaldlega ábyrg afstaða Samtaka atvinnulífsins að vinna úr þessum spilum með það fyrir aug- um að höggva á þann hnút sem kjaradeilan er komin í.“ „Leiftursókn gegn lífskjörum almennings hugnast engum“ Spurður hvort uppi sé raunveru- legur ótti um að viðræðum verði slitið og að til verkfalla komi í kjöl- farið, segist Halldór ekki ætla að spá fyrir um það. „Sama hver framvindan verður þá þurfum við að halda áfram að tala saman. Báðir aðilar þurfa að slá af sínum væntingum. Við þurf- um að ná kjarasamningi. Það verk- efni fer ekki frá okkur jafnvel þótt viðræðum verði slitið. Verkföll valda miklu fjárhagslegu tjóni. Leiftursókn gegn lífskjörum al- mennings hugnast engum.“ Skattbyrði minnkar en ekki nóg Morgunblaðið/Hari Alþýða Það var þungt hljóðið í fólki á samninganefndarfundi ASÍ í gær.  Skattabreytingartillögur kynntar í fjármálaráðuneytinu  Skattbyrði minnkuð á lágtekjufólk  Formenn verkalýðsfélaganna segja tillögurnar vonbrigði  Örlagastund í kjaraviðræðum á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.