Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining á sótthitabreytist eftir aldri? Thermoscaneyrnahita- mælirinnminnveit það.“ Braun Thermoscan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin ÚTSÖLULOK 30-60% afsláttur Jakkar • Peysur • Vesti • Bolir • Kjólar • Buxur 30% afsláttur af töskum Krafist er styttingar vinnuvikunnar í 35 stundir, jöfnunar launa á milli al- menna markaðarins og opinbera markaðarins og launaþróunartrygg- ingar til framtíðar í kröfugerð Sam- eykis gagnvart Reykjavíkurborg. Viðræður eru hafnar og kynnti samninganefnd Sameykis samninga- nefnd borgarinnar kröfur sínar sl. mánudag. Launakröfur Sameykis, sem varð til með sameiningu SFR og starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar fyrr í vetur, eru m.a. þær að skoð- aðar verði leiðir til hækkunar launa og aukins kaupmáttar með blandaðri aðgerð og að starfsþróunarþrep í launatöflu borgarinnar hækki um 2% við hvert þrep. Einnig vill félagið koma á viðbótarlaunakerfi. Farið er fram á að aðfangadagur og gamlársdagar verði frídagar að fullu og að foreldrar fái aukafrí vegna vetrarfrís- og skipulagsdaga í leik- og grunnskólum. Þá er þess krafist að dögum verði fjölgað þar sem hægt er að breyta yfirvinnu í frí. Geti starfað áfram eftir sjötugt Lagt er til að opnað verði á mögu- leika starfsfólks á áframhaldandi störfum eftir sjötugt. Einnig er þess krafist að samþykkt borgarráðs frá 4. okt 2007 verði sett í kjarasamning um að heimilt verði að minnka vinnu- skyldu starfsmanns sem orðinn er 65 ára og hefur starfað samfellt hjá borginni í a.m.k. 10 ár um 20% án launaskerðingar þann tíma sem hann vill starfa áfram. omfr@mbl.is 35 klst. vinnuvika og jöfnun launa  Sameyki birtir borginni kröfugerð félagsins Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stjórnendur hjúkrunar- og dvalar- heimilisins Brákarhlíðar í Borgar- nesi hafa ekki fengið formleg svör frá heilbrigðisráðuneyti við ítrek- uðum óskum um fjölgun hjúk- runarrýma sem þeir telja unnt að útbúa innan núverandi húsnæðis. Björn Bjarki Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Bjarkarhlíðar, segir að jákvæð samskipti séu við ráðu- neytið og kveðst vona að ráðherra átti sig á þeim möguleikum sem þarna eru og hafi svigrúm til að mæta þeim. Stjórnendur Brákarhlíðar hafa vakið athygli stjórnvalda á þeim möguleikum sem eru á fjölgun hjúkrunarrýma í Brákarhlíð. Ann- ars vegar með því að breyta dval- arrýmum í hjúkrunarrými en í mörgum tilvikum er fólk í þessum dvalarrýmum sem þarf fulla þjón- ustu. Hinsvegar að nýta svigrúm sem er innan nýrrar álmu bygging- arinnar, vegna nýrra viðmiða Sjúkratrygginga, og fjölga um fjögur hjúkrunarrými. Hægt að fjölga um 10-14 rými Í grein Jóns G. Guðjónssonar, formanns stjórnar, í Morgun- blaðinu á dögunum kom fram að hægt væri að fjölga hjúkrunar- rýmum um 10-14 með skjótum hætti og litlum stofnkostnaði. Jafn- framt hefur komið fram að fólk bíður eftir þessum rýmum. Ráð- stafanir sem þessar kalla á auknar fjárveitingar og ríkið hefur ekki verið tilbúið til að samþykkja þær. Bjarki segir að stjórnendur heimilisins hafi farið á fund heil- brigðisráðherra og embættismanna ráðuneytisins og samskipti séu enn við ráðuneytið, á jákvæðum nótum. Enn hafi ekki komið endanleg svör við óskum stjórnar heimilisins. „Ég vona svo sannarlega að ráð- herra hafi svigrúm til að líta á þetta erindi og koma með jákvæð viðbrögð,“ segir Bjarki. Ljósmynd/Theodór Kr. Þórðarson Brákarhlíð Mögulegt er að fjölga hjúkrunarrýmum á skjótan hátt og með litlum tilkostnaði. Málið strandar á fjárveitingum ríkisins. Hafa ekki fengið svör frá ráðuneyti Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, gæddi sér í gærmorgun á fyrstu „köku ársins“ í húsnæði síns ráðuneytis, en sá sem setti saman uppskriftina að kökunni er Sigurður Már Guðjónsson, bak- arameistari og eigandi Bernhöfts- bakarís við Klapparstíg í Reykjavík. „Kakan er æðisleg, falleg, létt og góð, svo ég held að hún muni falla mjög vel í kramið hjá landanum,“ segir Jóhannes Felixson, betur þekktur sem Jói Fel, formaður Landssambands bakarameistara, eft- ir að hafa fengið sér vænan bita. Mörg „M“ komu eftir bitann Keppnin um köku ársins fer þann- ig fram að keppendur skila tilbúnum kökum sem dómarar meta í kjöfarið og velja úr þær sem þykja sameina þá kosti að vera bragðgóðar, fallegar og líklegar til að falla sem flestum í geð, en dómarar að þessu sinni voru þau Berglind Ester Guðjónsdóttir, frá Samtökum iðnaðarins, Gunnar Örn Gunnarsson og Ingibjörg Ólafs- dóttir, frá Ölgerðinni. Keppnin var haldin í samstarfi við Ölgerðina og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi beiskt marsipan og appelsínutröffel frá Odense. Ráðherra féll kakan vel í geð ef marka má mynd Morgunblaðsins og orð Jóa Fel: „Það komu alla vega mörg „M“ eftir fyrsta bitann.“ Fyrsti biti rann ljúft niður Morgunblaðið/Árni Sæberg  Kaka ársins var á borði í mennta- og menningarmálaráðu- neytinu  Ráðherra og Jói Fel fengu sér bita og líkaði vel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.