Morgunblaðið - 20.02.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019
ALMAR
BAKARI
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari
Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18
SÉRBAKAÐfyrir þig
SALATBAR
ferskur allan
daginn
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
Stefán E. Stefánsson
Hluthafafundur eignarhaldsfélagsins
Klakka, sem áður hét Exista, verður
haldinn hinn 11. mars næstkomandi
eins og auglýst var í Morgunblaðinu í
vikunni. Á dagskrá er meðal annars
fundarefni þar sem tillaga frá tiltekn-
um minnihluthafa félagsins verður til
umfjöllunar um að fram fari sérstök
rannsókn á tilgreindum atriðum varð-
andi starfsemi félagsins.
Þeir hluthafar sem um ræðir eru
bræðurnir Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir, oftast kenndir við
Bakkavör, og nánasti samstarfsmað-
ur þeirra, Sigurður Valtýsson, fyrr-
verandi forstjóri Exista sem átti m.a.
forvera Lykils, félagið Lýsingu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins beinist rannsóknarbeiðnin að
aðkomu starfsmanna Klakka að opnu
söluferli Lindarhvols árið 2016 á sölu
á hlutum í Klakka ehf. og kröfum á
hendur félaginu. Lindarhvoll var fé-
lag sem fjármála- og efnahagsráð-
herra setti á laggirnar 15. apríl 2016
til að annast umsýslu, fullnustu og
sölu á eignum ríkissjóðs sem komust í
eigu hans vegna stöðugleikaframlaga
slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja.
Fyrrnefnd rannsóknarbeiðni mun
einnig skv. heimildum Morgunblaðs-
ins beinast að viðskiptum tengdra að-
ila og samskiptum stjórnenda Klakka
við stærsta eiganda félagsins, vogun-
arsjóðinn Burlington Loan Manage-
ment sem á mikinn meirihluta í félag-
inu.
Lindarhvoll auglýsti í september
2016 til sölu hlut í Klakka og kröfur
sem ríkissjóður hélt á gagnvart félag-
inu. Þrjú tilboð bárust í kröfurnar.
Hið hæsta að fjárhæð ríflega 505
milljónir króna. Næsthæsta tilboðið
hljóðaði upp á 502 milljónir og þriðja
tilboðið upp á tæplega 501 milljón.
Hæsta tilboðið átti BLM fjárfesting-
ar ehf. sem er í eigu Burlintgon Loan
Management. Næsthæsta tilboðið
átti félagið Ásaflöt en það er í eigu
DRC Corporate Services sem aftur
er í eigu Magnúsar Scheving, þáver-
andi forstjóra Klakka, Brynju Dagg-
ar Steinsen, rekstrarstjóra félagsins,
og Jóns Arnar Guðmundssonar, þá-
verandi rekstrarstjóra og núverandi
forstjóra félagsins. Þriðja tilboðið, og
það lægsta, var svo lagt fram í nafni
félagsins Frigusar II, sem er í eigu
Sigurðar Valtýssonar og Bakkavar-
arbræðra.
Í auglýsingu um hluthafafundinn
er vísað til 1. mgr. 72. gr. laga um
einkahlutafélög þar sem tillaga er
gerð um að sérstök rannsókn verði
framkvæmd. Lögum samkvæmt get-
ur hluthafi á aðalfundi eða öðrum
hluthafafundið komið með tillögu um
að fram fari rannsókn á stofnun fé-
lags, tilgreindum atriðum varðandi
starfsemi þess eða að ákveðnum þátt-
um bókhalds eða ársreiknings. Til
þess þarf fylgi tíunda hlutar hluthafa.
Í skriflegu svari Klakka til
Morgunblaðsins kemur fram að það
sé mat stjórnar félagsins að lagaskil-
yrði séu ekki uppfyllt til þess að láta
framkvæma slíka rannsókn. „M.a.
þar sem tillagan snýr mestmegnis að
atriðum sem varða ekki starfsemi fé-
lagsins eða atriðum sem þegar hefur
verið upplýst um.“ Bendir stjórn
Klakka enn fremur á að um sé að
ræða endurteknar umkvartanir sömu
aðila sem áður hafi verið svarað á
hluthafafundum félagsins. Fær
stjórnin að auki ekki séð að tillögurn-
ar varði mikilvæga hagsmuni Klakka
eða hluthafa þess. Þær muni engu að
síður fá umræðu og formlega af-
greiðslu á hluthafafundi félagsins.
Langstærsta eign Klakka er fjár-
málafyrirtækið Lykill, sem áður hét
Lýsing, og Klakki á að fullu leyti.
Tveir starfsmenn starfa hjá Klakka í
dag. Brynja Dögg Steinsen og Jón
Örn Guðmundsson.
Krefjast rannsóknar
Morgunblaðið/Eggert
Lýsing Fjármálafyrirtækið Lykill fjármögnun hf., áður Lýsing hf., er að
stærstum hluta í eigu írska vogunarsjóðsins Burlington Loan Management.
Hluthafar í Klakka ehf. fara fram á sérstaka rannsókn er varðar söluferli
Lindarhvols á hlut og kröfu í Klakka ehf., sem áður hét Exista
Klakki
» Heldur á 100% hlut Lykils
hf., áður Lýsingar, sem sérhæf-
ir sig í fjármögnun á bílum og
tækjum.
» Rannsóknarbeiðni hluthafa
Klakka beinist m.a. að aðkomu
starfsmanna Klakka að sölu-
ferli Lindarhvols á kröfum.
skoðunar og birti álit sitt á nú í jan-
úar, verði sú að „rétt settar reglur
teljist ekki fullnægjandi refsiheimild
þá mun það almennt gilda um þau
fjármagnshöft sem útfærð voru í
slíkum reglum þar til í október
2011“. Þá segir bankinn að enn-
fremur þurfi að taka afstöðu til þess
hvort Seðlabankinn geti „úrskurðað
um stjórnskipulegt gildi reglna um
gjaldeyrismál sem refsiheimild á
grundvelli umfjöllunar ríkis-
saksóknara í máli sem laut að öðrum
reglum um gjaldeyrismál og fellt
var niður þar sem formlegt sam-
þykki ráðherra skorti við setningu
þeirra eða hvort það sé einungis á
færi dómstóla að kveða á um slíkt“.
Seðlabanki Íslands segir að rýna
þurfi nákvæmlega í álit Umboðs-
manns Alþingis, sem birt var 25. jan-
úar síðastliðinn. Álitið sneri að
vinnubrögðum Seðlabankans þar
sem beiðni aðila um afturköllun
stjórnvaldssektar vegna meintra
brota gegn gjaldeyrislögum var
hafnað. Segir bankinn í bréfi sem
gert var opinbert í gær að umfang
málsins sé slíkt að það kunni að
varða „grundvöll fjármagnshafta
sem refsiheimild frá því að þau voru
sett á undir lok árs 2008 og þar til
lögum um gjaldeyrismál var breytt á
árinu 2011“. Heldur bankinn því
fram að ef niðurstaðan í því máli
sem Umboðsmaður Alþingis tók til
Bankinn skoðar enn álit umboðsmanns
Skýra þurfi hvort bankinn geti skor-
ið úr um stjórnskipulegt gildi reglna
Morgunblaðið/RAX
Gjaldeyrismál Umboðsmaður Alþingis beinir því til Seðlabanka að taka aft-
ur til efnislegrar meðferðar beiðni aðila um afturköllun stjórnvaldssektar.
● Icelandair lækkaði mest allra félaga í
Kauphöll Íslands í gær, en bréf félagsins
lækkuðu í verði um 4,08% í 142 milljóna
króna viðskiptum. Rauðar tölur voru ein-
kennandi fyrir daginn í gær í Kauphöllinni,
og flestöll félög á aðallista lækkuðu í
verði. Önnur mesta lækkunin varð á bréf-
um Festar, eða 1,78%, í 122 milljóna
króna viðskiptum. Þriðja mesta lækkunin
varð á bréfum Haga, eða 1,17% í 267
milljóna króna viðskiptum.
Mesta hækkun gærdagsins varð á
bréfum í Marel, en þau hækkuðu um
1,63% í 800 milljóna viðskiptum, og er
gengi bréfanna nú 467,5 krónur á hlut.
Heildarvelta á markaðnum í gær nam
tæpum 1,8 milljörðum króna .
Mest lækkun á hluta-
bréfum Icelandair
20. febrúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 118.62 119.18 118.9
Sterlingspund 153.35 154.09 153.72
Kanadadalur 89.6 90.12 89.86
Dönsk króna 17.999 18.105 18.052
Norsk króna 13.762 13.844 13.803
Sænsk króna 12.825 12.901 12.863
Svissn. franki 118.23 118.89 118.56
Japanskt jen 1.0726 1.0788 1.0757
SDR 164.75 165.73 165.24
Evra 134.32 135.08 134.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.1416
Hrávöruverð
Gull 1323.95 ($/únsa)
Ál 1828.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.39 ($/fatið) Brent
● Berglind Rán
Ólafsdóttir hefur ver-
ið ráðin fram-
kvæmdastjóri Orku
náttúrunnar. Hún
hefur gegnt starfinu
tímabundið frá því í
september í fyrra.
Tók hún við starfinu
af Þórði Ásmunds-
syni sem tók við
starfinu til bráða-
birgða í kjölfar þess að Bjarna Má Júlíus-
syni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, var
vikið frá störfum. Þórður gegndi starfinu
aðeins í fjóra daga frá því að Bjarni hætti en
þá taldi stjórn fyrirtækisins rétt að Berglind
tæki við starfinu. Hún er sameindalíffræð-
ingur að mennt og með MBA-próf frá IESE í
Barselóna. Hún kom til starfa hjá Orku
náttúrunnar árið 2017 sem forstöðumaður
fyrirtækjamarkaða og hafði þá starfað hjá
Landsvirkjun, Medis og Íslenskri erfða-
greiningu áratuginn þar á undan.
Tekur við starfi fram-
kvæmdastjóra ON
Berglind Rán
Ólafsdóttir
STUTT