Morgunblaðið - 25.02.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.02.2019, Blaðsíða 32
TORMEK Brýnsluvélar t Tormek T-4 Verð 61.200 ormek T-8 Verð 99.800 Allar stýringar fyrirliggjandi Verslunin Brynja er umboðs- aðili TORMEK á Íslandi Laugavegi 29 | sími 552 4320 verslun@brynja.is | brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 t T SVX-150: Skærastýring Verð 6.100 HTK-706: Aukahlutasett fyrir hnífa, skæri o.fl. Verð 21.950 TNT-708: Aukahlutasett fyrir rennismiðinn Verð 38.830 SVD-186: Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn Verð 11.980 SVM-140: Hnífastýring Verð 6.950 SVA-170: Axarstýring Verð 1.980 SVM-00: Stýring fyrir tálguhnífa Verð 4.290 SE-77: Stýring fyrir hefil- tennur og sporjárn Verð 6.980 Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár NOMEX, sam- starfsvettvangur norrænna út- flutnings- skrifstofa tón- listar, birtir árlega lista með 20 manneskjum undir þrítugu sem þykja hafa skarað fram úr í tón- listargeiranum á Norðurlöndum og hljóta þær viðurkenningu fyrir. Að þessu sinni eru þrír Íslendingar á listanum, þau Unnsteinn Manuel Stefánsson, útvarpsstjóri, plötu- útgefandi og forleggjari; Anna Ást- hildur Thorsteinsson, markaðs- stjóri hjá Iceland Airwaves og Senu Live; og Sigríður Ólafsdóttir, stjórn- andi Sónar Reykjavík. Viðurkenning- arnar verða veittar í Osló 28. febr- úar. Hljóta viðurkenningar MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 56. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Haukar tylltu sér á topp Olísdeildar karla í handknattleik með sigri gegn Gróttu í 16. umferð deildar- innar í gær. Haukar eru stigi á und- an Val, sem tekur á móti Selfyss- ingum í kvöld. Fram komst úr fallsæti deildarinnar með sigri gegn Akureyri, KA og Stjarnan skildu jöfn og FH vann öruggan sig- ur gegn ÍR. »4-5 Haukar tylltu sér í toppsætið ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er rosa gaman að sjá hvað dans- menningin er rík á Íslandi núna. Bara nú í ár hafa íslensk danspör unnið sigra á nokkrum mótum úti í heimi og það er margt spennandi fram undan,“ segir Anna Claessen dansfrömuður. Anna er í fullu starfi við að breiða út og boða ástríðu sína fyrir dansi. Hún er framkvæmdastjóri Dans- íþróttasambands Íslands og heldur auk þess úti félaginu Dansi og kúltúr ásamt félaga sínum. Athygli hefur vakið að fjölmörg ís- lensk danspör hafa náð góðum árangri á mótum úti í heimi að undanförnu og dansinn virðist í mikl- um blóma um þessar mundir. Anna segir í samtali við Morgunblaðið að auk móta erlendis hafi tvö stór mót verið haldin hér á landi það sem af er ári og önnur tvö verða haldin á næst- unni, 16.-17. mars og 4.-5. maí. Anna kannast vel við að dansinn sé í blóma en segir að það séu ekki endi- lega ný tíðindi. „Það hefur alltaf ver- ið rosa mikil dansmenning á Íslandi en fólk hefur hins vegar ekki alltaf vitað af því. Auðvitað hefur hjálpað mikið að fá vinsæla sjónvarpsþætti um dans undanfarin ár, eins og Allir geta dansað, sem slógu algerlega í gegn, og Dans dans dans. Svo hafa erlendir þættir eins og So You Think You Can Dance og Dancing with the Stars líka notið mikilla vinsælda. Það er auðvitað mikilvægt að almenn- ingur fái að sjá dans. Ef fólk sér hvað þetta er skemmtilegt vill það auðvit- að vera með!“ Anna tók við starfi framkvæmda- stjóra DSÍ í júní á síðasta ári. Hún var sjálf virk í dansinum þegar hún var yngri en hefur síðustu ár kennt ýmsar tegundir dans í World Class, Kramhúsinu og víðar. Síðustu tvö ár- in hafa hún og besti vinur hennar, Friðrik Agni Árnason, haldið úti fé- laginu Dansi og kúltúr. Undir þeim merkjum hafa þau haldið danskvöld og danssýningar og troðið upp á skemmtunum. Þá hafa þau skipulagt dansferðir til útlanda. „Við viljum bara deila dansgleð- inni,“ segir Anna, sem verður tíðrætt um gleðina sem dansinn veiti þátt- takendum. „Þetta er fyrir fólk á öll- um aldri, það geta allir dansað. Ég hef séð konu á áttræðisaldri sem mætti í hverri viku uppstríluð til að dansa tangó. Þetta er það sem dans- inn gerir; hann veitir fólki gleði. Dansinn er mitt áhugamál og mér finnst yndislegt að geta deilt þessari gleði með öðrum. Ég vil að sem flest- ir fái að uppgötva gleðina.“ Morgunblaðið/Hari Dansgleði Anna Claessen deilir með öðrum gleðinni sem dans veitir henni. Er í fullu starfi við að deila dansgleðinni  Anna Claessen er ánægð með uppganginn í dansinum Íslenskir dansarar hafa náð eftirtektarverðum árangri á mótum erlendis það sem af er ári. Daníel Sverrir Guðbjörnsson og Sóley Ósk Hilm- arsdóttir unnu bæði u21 ballroom og Rising Star ballroom og urðu í 6. sæti í Amateur ballroom í Boston á dögunum. Þau urðu í 2. sæti í U22 ballroom í Champions of Tomorrow-keppninni á Englandi og 7. sæti í Mílanó á Ítalíu. Kristinn Þór Sigurðsson og Lilja Rún Gísla- dóttir unnu einnig bæði Amateur latin og U21 latin í Boston. Axel Kvaran og Darya Kochkina kepptu á Starlight Grand Prix Cup í Kænugarði og unnu Youth I & II Rising star og urðu í 10. sæti í Youth I. Frábær árangur náðst Árangur Daníel Sverrir Guðbjörnsson og Sóley Ósk Hilmarsdóttir í Boston. ÍSLENSKIR DANSARAR Á MÓTUM ERLENDIS Englandsmeistarar Manchester City vörðu titil sinn í ensku deildarbikarkeppninni í knatt- spyrnu á Wembley í gær þegar þeir höfðu betur gegn Chelsea í úrslitaleik. Úrslitin réðust í víta- spyrnukeppni en stað- an eftir venjulegan leiktíma og fram- lengingu var jöfn, 0:0. Í víta- spyrnukeppninni hafði svo Man- chester City betur, 4:3, þar sem enski lands- liðsmaðurinn Raheem Sterling skoraði sigur- markið. »6 City deildarbikarmeist- ari annað árið í röð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.