Morgunblaðið - 04.03.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 04.03.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Frá kr. 209.99529. apríl í 10 nætur Madeira Hin sívinsæla gönguferð á Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kjaradeilur BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Forystumenn í ferðaþjónustunni taka ekki undir orð sumra félags- manna um að rétt væri að svara áformuðum skæruverkföllum Efl- ingar, VR og fleiri félaga með verk- bönnum. Verkbönn eru spegilmynd verkfalla sem vinnuveitendur geta beitt í kjaradeilum. Þeim hefur ekki verið beitt nema í undantekningartil- vikum á undanförnum áratugum. Fulltrúar ferðaþjónustunnar tala varlega þegar þeir eru spurðir hvort verkbönn séu svarið við skærum verkalýðsfélaganna gagnvart ferða- þjónustunni sem sumar miða að því að taka til einstakra verka fólks, sem starfar áfram, eða til hluta úr dögum. Þurfum að sýna ábyrgð „Við erum gestrisnir og þess vegna erum við í þessum rekstri,“ segir Kristófer Oliversson, formaður samtaka fyrirtækja í hótel- og gisti- þjónustu og forstjóri Center hotels. „Við berum ábyrgð á því að gestir sem koma til landsins lendi ekki á götunni. Ég er með 1.200 manns og það myndi muna um þann hóp á göt- um Reykjavíkur. Við þurfum því að sýna ábyrgð og vonum að þeir sýni ábyrgð hinum megin,“ segir Krist- ófer. Þórir Garðarsson, stjórnarfor- maður Gray line, skrifaði á Facebo- ok-síðu sína sl. föstudag að ekki væri hægt að bjóða erlendum gestum upp á skerta þjónustu. Því væri það eina í stöðunni að boða verkbann á móti frá fyrsta degi verkfalls. Björn Ragn- arsson, framkvæmdastjóri Kynnis- ferða, sagði að stöðvun rekstursins yrði skoðuð með lögfræðingum. „Verkbann er eitt af tækjunum í verkfærakistu vinnulöggjafarinnar. Verður að meta það á hverjum tíma hvaða aðferðum er beitt. Mér vitan- lega hafa engar ákvarðanir verið teknar um verkbönn í þessari deilu,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar. „Allar þær aðgerðir sem boðaðar hafa verið valda röskun á starfsemi fyrirtækjanna. Það getur til dæmis valdið töluverðum vandræðum ef einhver tiltekin verkefni eru tekin út. Eðlilegast er að það fari í gegnum greiningu hjá Samtökum atvinnulífs- ins hvernig tekið skuli á því og í sam- hengi við lagarammann sem um þetta gildir,“ segir Jóhannes. Færi þá í „átakafarveg“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur að umræða um hugsanleg- ar mótaðgerðir vinnuveitenda, eins og til dæmis verkbönn, sé innantóm- ar hótanir. „Þá yrðum við komin í átakafarveg sem ekki hefur sést í áratugi,“ segir hann og bætir við: „Annars vil ég ekki ræða um mögu- legar mótaðgerðir. Kæri mig ekki um að koma umræðunni í þann far- veg. Ég hef frekar viljað koma orð- ræðunni í samningsgírinn.“ Ragnar segir að viðsemjendur verkalýðsfélaganna verði að eiga það við sig sjálfa hvernig þeir nálgist málið. Hann segir að gert sé ráð fyrir þessum möguleika í áætlunum félag- anna. Ragnar vill ekki upplýsa um aðgerðir, verði boðað til verkbanna, en segir þó að þeim verði svarað með verkföllum. „Ég tel að þeir ættu frekar að þrýsta SA að samningaborðinu og hjálpa okkur að byggja upp ferða- þjónustu sem ekki byggist á lág- launastörfum, félagslegum undir- boðum og grófum mansalsbrotum. […] Í stað þess að vera með hótanir ættu þeir frekar að hugsa í lausnum og koma að borðinu með meira af- gerandi hætti,“ segir Ragnar Þór. Stefnt að sáttafundi Stefnt er að því að samninga- nefndir samflots Eflingar, VR og Verkalýðsfélaga Akraness og Grindavíkur og Samtaka atvinnulífs- ins komi á sáttafund hjá ríkissátta- semjara næstkomandi fimmtudag. Fundurinn hefur þó ekki verið boð- aður. Á fimmtudag verða liðnir 14 dagar frá síðasta sáttafundi, fundinum þar sem verkalýðsfélögin slitu viðræðum og hófu undirbúning verkfallsað- gerða. Ríkissáttasemjara ber að boða til sáttafunda í deilum á minnst fjórtán daga fresti, nema í undan- tekningartilvikum. Tala varlega um verkbann  Umræða um verkbann virðist ekki langt komin innan ferðaþjónustunnar  „Berum ábyrgð á því að gestir landsins lendi ekki á götunni,“ segir hótelstjóri  Innantómar hótanir, segir formaður VR Morgunblaðið/Eggert Lækjargata Ferðamenn gætu lent í erfiðleikum með að finna sér gistingu og koma sér á milli staða í verkfalli. „Ég held að þetta sé alveg eðlilegt og eitthvað sem mátti búast við að myndi gerast,“ segir Reynir Albert Þórólfsson um boðuð verkföll. Aðspurður segir hann aðgerð- irnar vera nauðsynlegar. „Þetta er allt í lagi eins og búið er að setja þetta upp, að byrja aðeins. Og ef það gerist ekkert þá þarf bara að fara í alvöruaðgerðir.“ Reynir segist auðvitað örlítið stressaður vegna þeirra áhrifa sem verkföll hafa á hagkerfið. „En það er náttúrlega tilgangurinn með þessu. Ef það er ekki hægt að ná neinu samkomulagi þá þarf bara að gera eitthvað.“ Segir verkföll nauð- synlegar aðgerðir Hvað finnst almenningi um boðuð verkföll? Benóný Haraldsson, eldri borgari, segir stjórnvöld fyrst og fremst þurfa að grípa til aðgerða og breyta um leið skattkerfinu meira. „Verkföllin koma til með að hrífa. Eins og launin eru almennt hjá fólki þá er þetta alveg skammarlegt. Það þarf að byrja á að laga skattkerfið. Ég er með ellilífeyri og það er kroppað af þessu hægri vinstri. Það er ekk- ert orðið sem maður fær út. Fólk hélt nú þegar það kaus Kötu að hún myndi gera eitthvað. Enda er mikill urgur og kurr í grasrótinni hjá Vinstri grænum núna.“ Óánægður með að- gerðarleysi Katrínar Anna María Káradóttir og Arnar Birgir Jónsson segja kröfur verkalýðsfélaganna vera meiri en þjóðfélagið ræður við. „Mér finnst þetta frekar galnar upphæðir en maður veit auðvitað að þetta er svona ákveðið leikrit, samn- ingatækni þar sem þú veist að þú nærð ekki þeim kröf- um sem þú setur upp. Svo pirrar mig líka tímasetningin á þessu, þegar hagsveiflan virðist vera á enda og toppnum hefur verið náð og allt er á niðurleið,“ segir Arnar og Anna tekur undir það: „Eins og er vill maður frekar hugsa um stöðugleik- ann. Það er spurning hvort þetta sé tímabært núna.“ Þau taka þó fram að þau séu ekki í þeim verkalýðs- félögum sem áforma nú verkföll. „Það væri kannski annað mál ef maður væri á þess- um launum,“ segir Arnar og Anna bætir því við að hún sé fylgjandi launahækkunum fyrir þá sem virkilega þurfa á því að halda. Aðspurður segist Arnar hafa slæma tilfinningu fyrir komandi verkföllum. „Ef rétt reynist og staðan í ferðamannageiranum er nú þegar eins slæm og sagt er þá getur þetta verið náð- arhöggið ef þetta fer í einhverja tóma vitleysu,“ segir hann. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verkföll gætu orðið náðarhögg ferðaþjónustunnar Það nefnist verkbann þegar einn eða fleiri atvinnurekendur stöðva vinnu að einhverju eða öllu leyti hjá launþegum sem eiga aðild að stéttarfélögum í þeim tilgangi að vinna að framgangi krafna sinna í vinnudeilum og til verndar rétti sínum. Sömu ákvæði gilda um það í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur og verkfall. Verkbönnum er mun sjaldnar beitt en verkföllum. Algengast er að atvinnurekendur samþykki verkbönn sem mótleik við verkfalli verka- lýðsfélags. Dæmi eru um að þau hafi verið notuð til að verja hag fyr- irtækja sem eru lömuð vegna verkfalla og virki þá í raun þannig að aðrir starfsmenn eru losaðir af launaskrá, þótt ekki sé það yfirlýstur tilgangur aðgerðanna. Vinnudeilusjóðum verkalýðsfélaga er heimilt að veita félagsmönnum fjárhagsaðstoð vegna verkbanna, með sama hætti og verkfalla. Oftast sett í deilum sjómanna og útvegsmanna Verkbönn hafa verið sett á 32 sinnum frá því núgildandi vinnulöggjöf var sett, árið 1938. Frá árinu 1980 til 2015 var fjórtán sinnum sett á verkbann, samkvæmt yfirliti í lokaverkefni Rín Samía Raiss til MS- gráðu í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, og sautján verkbönn fyrir þann tíma, frá því fyrsta sem var 1941. Frá árinu 2015 hefur eitt verk- bann verið sett á, eftir því sem næst verður komist, bann Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á samtök sjómanna og vélstjóra í löngu sjó- mannaverkfalli. Flest verkbönnin síðustu fjörutíu árin tengjast útgerðum og sjómönn- um, samtals átta. Á árinu 1982 samþykkti Vinnuveitendasamband Ís- lands að boða til verkbanns gegn öllum stéttarfélögum sem boðað höfðu til verkfalls. Blaðamenn voru sendir heim í löngu prentaraverk- falli 1984 svo nokkur tilvik séu tilgreind. Verkbann sett á 32 sinnum VERKBANN ER SPEGILMYND VERKFALLS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.