Morgunblaðið - 04.03.2019, Side 15
Verslunarsamn-
ingur í augsýn
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Bandaríkin og Kína eru nú að ljúka
við gerð nýs verslunarsáttmála sem
felur í sér að Kínverjar lækki inn-
flutningstolla á bandarískar vörur í
skiptum fyrir að Bandaríkjamenn af-
létti flestum eða jafnvel öllum tollum
sem settir voru á kínverskar vörur í
fyrra. Frá þessu var sagt í frétt The
Wall Street Journal.
Að sögn heimildarmanna WSJ er
líklegt að forsetar landanna tveggja,
Donald Trump og Xi Jinping, muni
undirrita verslunarsamninginn á
fundi í kringum 27. mars næstkom-
andi. Þó er varað við því að enn
kunni að vera þrándur í götu sam-
komulagsins þar sem hvorugt ríkið
er líklegt til að vilja undirrita samn-
ing sem virðist of hagstæður hinu.
Samkvæmt samningnum munu
Kínverjar flýtaniðurfellingu laga
sem banna erlent eignarhald á bíla-
framleiðslu í Kína og auka kaup á
bandarískum innflutningsvörum. Þá
hyggjast Kínverjar kaupa eldsneyti
frá orkufyrirtækinu Cheniere að
andvirði 2.150 milljarða íslenskra
króna.
Bandarískir og kínverskir emb-
ættismenn vinna nú einnig að ferli til
þess að gera Kínverjum kleift að
bregðast við kvörtunum bandarískra
fyrirtækja. Samkvæmt ferlinu eiga
embættismenn ríkjanna að eiga
reglulega fundi svo hægt sé að leysa
úr deilumálum áður en gripið er til
efnahagsþvingana.
Steve Bannon, fyrrverandi ráð-
gjafi Trumps, hefur hvatt forsetann
til að hækka tolla enn frekar til þess
að knýja Kínverja til að samþykkja
hagstæðara samkomulag.
Tollastríð Kína og BNA senn á enda?
AFP
Verslun Trump og Xi, forsetar
Bandaríkjanna og Kína
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2019
Juan Guaidó,
leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar
og sjálfskipaður
forseti í Vene-
súela, snýr aftur
til heimalands
síns frá Ekvador
í dag. Guaídó
hefur kallað til
endurnýjaðra
fjöldamótmæla gegn stjórn Nicolás-
ar Maduro, sitjandi forseta lands-
ins, sem nýtur enn stuðnings ven-
esúelska hersins. Maduro hefur
hótað Guaidó handtöku snúi hann
aftur til landsins.
„Ég kalla á venesúelsku þjóðina
að safnast saman um allt land á
morgun klukkan 11,“ skrifaði
Guaidó í Twitter-færslu.
VENESÚELA
Guaidó kallar til
frekari mótmæla
Juan Guaidó
Að minnsta kosti 33 hermenn sem
börðust fyrir ríkisstjórn Bashars al-
Assad Sýrlandsforseta létu lífið í
héraðinu Idlib í gær eftir sprengju-
árás vígahópsins Ansar al-Tawhid.
Vígahópurinn er í bandalagi við
hryðjuverkasamtökin Al-Kaída.
Þetta er mesta mannfall sýrlenska
ríkisstjórnarhersins á einum degi í
sex mánuði. Samkvæmt frétt AFP
um málið létust fimm meðlimir
vígahópsins einnig. Idlib er að
mestu undir stjórn vígahópsins
Hurras al-Deen, sem er ein af und-
irdeildum Al-Kaída í Sýrlandi.
SÝRLAND
33 sýrlenskir ríkis-
hermenn drepnir
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Alsíringar bæði í Alsír og Frakk-
landi fjölmenntu í gær til þess að
mótmæla framboði sitjandi forseta
landsins, Abdelaziz Bouteflika, til
endurkjörs í kosningunum sem fara
fram 19. apríl næstkomandi. Hinn
82 ára gamli Bouteflika hefur verið
forseti Alsírs frá árinu 1999 og
hyggst nú bjóða sig fram í fimmta
sinn.
Bouteflika lýsti því yfir í febrúar
að hann hygðist sækjast eftir endur-
kjöri þrátt fyrir mjög bága heilsu
sína. Yfirlýsing hans vakti strax
hörð viðbrögð meðal Alsíringa og
tugir þúsunda mættu á fyrstu mót-
mælin gegn framboði hans þann 22.
febrúar síðastliðinn.
Hrumur og sjaldséður forseti
Bouteflika hefur sjaldan sést op-
inberlega frá því að hann fékk heila-
blóðfall árið 2013 og hefur upp frá
því jafnan notast við hjólastól til að
komast milli staða. Bouteflika hefur
síðustu vikuna dvalið á sjúkrahúsi í
Sviss og gat því ekki sjálfur mætt á
skrifstofu stjórnlagaráðsins í Al-
geirsborg til þess að skrá forseta-
framboð sitt. Í hans stað kom Ab-
delghani Zaalane, samgöngumála-
ráðherra Alsírs, með framboðs-
tilkynningu forsetans. Fresturinn til
þess að staðfesta forsetaframboð
rann út í gær, en engin lög kveða á
um að frambjóðandinn verði sjálfur
að vera viðstaddur.
Bouteflika rak kosningastjóra
sinn, Abdelmalek Sellal, á laugar-
daginn, án nokkurra skýringa.
Vegna fjarveru Bouteflika sjálfs
hafði Sellal verið nokkurs konar
andlit kosningaherferðar hans. Til
þess að sefa mótmælendurna lýsti-
Bouteflika því enn fremur yfir að
hann muni ekki sitja kjörtímabil sitt
til enda nái hann endurkjöri, heldur
segja af sér innan árs.
Rúmlega 100 háskólanemendur
komu saman nærri Háskólanum í
Algeirsborg og kyrjuðu orðin „Burt
með þig, Bouteflika!“ Samkvæmt
upplýsingasíðunni Tout sur Algérie
(TSA) kom fólk einnig saman í borg-
unum Konstantín og Oran, annarri
og þriðju stærstu borg Alsírs. Mót-
mælin náðu einnig út fyrir Alsír og
til Frakklands, þar sem um 465.000
Alsíringar eru búsettir. Að minnsta
kosti 6.000 manns komu saman í
París, Lyon, Marseille og öðrum
frönskum borgum til þess að mót-
mæla framboði forsetans.
„Það er tími kominn til þess að
Alsír finni aftur lýðræði sitt og rétt-
læti og verði land þar sem er gott að
búa, þar sem er pláss fyrir ungt fólk
og þar sem fólkið getur vitjað rétt-
inda sinna,“sagði Fatah Bendali,
einn af skipuleggjendum mótmæl-
anna í Frakklandi, í viðtali við
fréttamiðilinn franceinfo.
Lögreglan beitti táragasi gegn
mótmælendum í Algeirsborg á
föstudaginn og skaut úr vatnsbyssu
á mannfjöldann til að sundra mót-
mælasamkomu í gær.
Auk Bouteflika eru sex manns
búnir að staðfesta framboð sitt til
forseta, meðal annars uppgjafahers-
höfðinginn Ali Ghediri og viðskipta-
jöfurinn Rachid Nekkaz. Fyrri
kosningar í nútímasögu Alsírs hafa
einkennst af lítilli kjörsókn og ásök-
unum um kosningasvindl þar sem
flokkur Bouteflika hefur jafnan unn-
ið afburðasigra með um 90 prósent-
um atkvæða. Því má heita víst að
keppinautar forsetans eigi á bratt-
ann að sækja.
Stuðningsmenn Bouteflika segja
hann hafa tryggt stöðugleika í Alsír
og líkja mótmælunum við óeirðirnar
sem hrundu af stað borgarastyrjöld-
inni í Sýrlandi.
„Burt með þig, Bouteflika!“
hrópa mótmælendur í Alsír
Alsíringar mótmæla framboði þaulsætins forseta beggja vegna Miðjarðarhafs
AFP
Alsír Alsíringar með þjóðfána og mótmælaskilti mótmæla endurframboði
Abdelaziz Bouteflika. Bouteflika hefur verið forseti frá árinu 1999.
Stillanleg
HEILSURÚM
Ertu örugglega í besta
rúminu fyrir þínar þarfir?
Verð frá 264.056
Með einni snertingu geturðu komið rúminu
í þá stellingu sem hentar þér best hverju sinni.
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.