Morgunblaðið - 18.03.2019, Page 17

Morgunblaðið - 18.03.2019, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MARS 2019 Hugað að framtíðinni Rebekka Líf Guðjónsdóttir var sérlega áhugasöm þegar hún skoðaði gæru á bás Bændaskólans á Hvanneyri á kynningu iðn- og verkgreina í Laugardalshöll um helgina. Rebekka er að spá í að verða bóndi í framtíðinni og Linda Margrét Gunnarsdóttir sýndi henni dýrðina og fræddi hana um námið í bændaskólanum. Yfir 30 framhaldsskólar voru með kynningu. Eggert Það fer ekki fram hjá neinum að mikil ólga og óvissa einkenn- ir samfélag okkar nú um stundir og á það raunar við um flest vestræn ríki. Slík staða hefur vissulega verið uppi fyrr á tíð en það sem er nýtt er hraði breytinganna í um- hverfi okkar og hversu djúptækar þær eru í smáu og stóru. Gagnvart ein- staklingum og í atvinnulífi er mest áberandi gjörbreytt tækni jafnt í samskiptum og vinnuumhverfi og krafa um aðlögun sem henni fylgir jafnt til sjós og lands. Hér er horft til um átta áratuga sem svarar til meðalaldurs manna nú um stundir. Fyrir undirritaðan sem í barnæsku hafði þann starfa að handmjólka kýr, moka flór, reka búpening í haga og standa svo við slátt með orfi og ljá eru nútímastörf á sveitabæjum ósambærileg. Litið til sjávarsíð- unnar eru umskiptin síst minni og raunar stórtækari miðað við inngrip í auðlindina. Þrennt hefur valdið mestum umskiptum litið til baka: Sí- vaxandi orkuframleiðsla með kol og olíu sem meginorkugjafa, tilkoma tölvu og nettenginga og flutningur fjármagns og varnings að heita má heimshorna á milli. Það fyrstnefnda veldur háskalegum loftslagsbreyt- ingum, tölvan hefur gjörbreytir mannlegum samskipt- um og uppsöfnun fjár- magns á æ færri hend- ur aukið á misskiptingu í áður óþekktum mæli. Ófullnægjandi þekking á íslenskri náttúru Höfuðatvinnuvegir okkar byggjast nú sem fyrr meira á náttúru- gæðum en almennt gerist í iðnvæddum ríkjum. Það á einnig við um ferðaþjón- ustuna sem vaxtarsprota þar sem ís- lensk náttúra er meginaðdráttar- aflið. Því skiptir góð grunnþekking á íslenskri náttúru höfuðmáli og sjálf- bær nýting auðlinda lands og hafs. Rannsóknir á íslenskri náttúru voru lengi hornreka samanborið við önn- ur Norðurlönd. Þótt smám saman hafi verið úr því bætt vantar enn mikið á að viðunandi undirstaða sé til staðar. Þetta á m.a. við um land- grunn og hafsbotn þar sem veiðar með botnvörpu og fleiri veiðar- færum hafa valdið miklum breyt- ingum í tímans rás. Á landi hefur of- beit búfjár, jafnt sauðfjár og hrossa, reynst afdrifarík, að ekki sé talað um stórfellda þurrkun votlendis á seinni hluta síðustu aldar. Endur- heimt þessara náttúrugæða er enn að mestu einskorðuð við hátíðar- ræður. – Takmörkuð þekking á nátt- úrunni kemur niður á skipulagi um ráðstöfun lands þar sem handahóf hefur alltof víða ráðið för. Þetta birt- ist okkur m.a. í virkjun vatnsafls þar sem verkfræðileg hagkvæmni hefur ráðið för, oft á kostnað verðmætra náttúrugæða. Enn er þetta sérstakt áhyggjuefni þegar um er að ræða virkjanir undir 10 megavöttum í afli, sem ekki falla undir ákvæði laga um verndar- og orkunýtingaráætlanir, þ.e. svonefnda rammaáætlun. Fallvaltur ferðamannaiðnaður Vöxtur í komu erlendra ferða- manna til Íslands undanfarinn ára- tug er meiri en annars staðar þekk- ist og langt umfram það sem hóflegt getur talist. Gjaldeyristekjurnar hafa vissulega komið sér vel í kjölfar hrunsins en áhrifin á náttúru vin- sælla ferðamannastaða eru víða far- in að valda verulegu tjóni. Þótt nú sé reynt að bregðast við, m.a. með lagningu göngustíga og friðlýsing- um, kemur það ekki í veg fyrir stækkandi vistspor af vaxandi fjölda, einkum sunnan- og vestanlands. Vegna útleigu til ferðamanna hefur framboð á almennu leiguhúsnæði dregist verulega saman og leitt til mikilla verðhækkana, ekki síst á höf- uðborgarsvæðinu. Stefnumarkandi ákvarðanir af hálfu stjórnvalda um gjaldtöku af ferðaþjónustunni, m.a. til að fjármagna mótvægisaðgerðir, hefur dregist úr hömlu og við það bætist óhjákvæmileg endurnýjun vegakerfisins á allra næstu árum. Þótt við höfum upplifað margföldun í fjölda ferðamanna á örfáum árum, getur samdráttur verið á næsta leiti af ýmsum ástæðum, þar á meðal vegna brýnna aðgerða gegn lofts- lagsbreytingum af flugumferð. Evrópumet í losun gróðurhúsalofts Við höfum lengi talið okkur í fremstu röð þjóða varðandi raforku- framleiðslu frá endurnýjanlegum orkulindum, vatnsafli og jarðvarma. Það kemur því mörgum í opna skjöldu þegar fyrir liggur að Ísland eigi ótvírætt Evrópumet þegar kem- ur að losun gróðurhúslofts á hvern íbúa. Talan hérlendis á árinu 2016 var um 17 tonn á mann skv. Hag- stofu Íslands en aðeins rúm 7 tonn að meðaltali í löndum Evrópusam- bandsins. Er þá losun frá íslenskum flugfélögum innan Evrópu meðtalin (ETS-kerfið), en færi alls upp í um 20 tonn á mann ef allt alþjóðaflug, þ.e. til og frá Ameríku og víðar, væri tekið með í reikninginn. Nú er unnið að því að fella allt flug undir svo- nefnt CORSICA-kerfi með gjald- töku á alla losun, fyrst valfrjálst frá árinu 1921 en bindandi fyrir flest ríki eftir 2027. – Við innleiðslu Kyoto-samkomulagsins 1997 fékk Ísland heimild til 10% aukningar í losun miðað við árið 1990. Það dugði hins vegar ekki þáverandi stjórn- völdum sem tóku upp betlistafinn og náðu árið 2001 fram sérákvæði sem rúmaði álver Alcoa ofl. Nú er hins vegar Parísarsamkomulagið að taka við af Kyoto og þá blasir dapurleg staða Íslands við með tilheyrandi skuldadögum. Nú keppa stóriðja og ferðamannaiðnaður um hvor greinin losi meira af gróðurhúsalofti! Erfið glíma framundan Fátt er brýnna en að upplýsa al- menning um þá erfiðu glímu sem er framundan vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum. Í því efni á sjón- varp RÚV lof skilið fyrir þá þáttaröð sem hófst fyrir viku. Afar brýnt er að skólakerfið verði búið undir stað- góða fræðslu um þetta flókna sam- spil, ekki síst grunnskólastigið. Þar skiptir miklu að kennsla í náttúru- fræði og vistfræði verði traust og beinist ekki síst að íslenskum að- stæðum. Boðað átak menntamála- ráðherra til að lyfta skólastarfi er mikilvægt í þessu samhengi, með áherslu sérstaklega á kennara- starfið. Mikill samdráttur í losun gróðurhúsalofts er óhjákvæmilegur hér sem annars staðar og honum verða að fylgja breytingar í atvinnu- og viðskiptalífi sem og í heimilishaldi og neyslu. Sem tegund er mann- kynið komið í miklar ógöngur og verður héðan í frá að virða takmörk plánetunnar til að eiga hér trygga framtíð. Við Íslendingar erum þar hluti af heild og verðum að leggjast á árar með ungu kynslóðina í stafni reiðubúna að moka flórinn. Eftir Hjörleif Guttormsson » Fátt er brýnna en að upplýsa almenning um þá erfiðu glímu sem er framundan. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Treysta þarf undirstöður í íslensku samfélagi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.