Morgunblaðið - 18.03.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.03.2019, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MARS 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Arvada flísjakki • 100% prjónað pólýester • Einstaklega þægilegir og flottir flísjakkar með hettu og vösum • Til í gulum og bláum lit • Stærðir: XS - 3XL Vnr: 1899 312 Verð: 8.900 kr. Hættur í föstu starfi hef ég aldrei meira að gera en einmitt nú.Tækifærin eru alveg endalaus,“ segir Halldór Árnason hag-fræðingur sem er 66 ára í dag. „Fyrir nokkrum misserum fluttum við hjónin lögheimili okkar á heimaslóðir mínar vestur í Stykkishólmi og erum þar mikið. Þar kem ég með systkinum mínum og fleirum að rekstri gistiheimilis, sem er mjög áhugavert. Er einnig að vinna fyrir bæjarfélagið að verkefnum á sviði atvinnumála, það er hvernig nýta megi sjávarþangið sem auðlind.“ Halldór starfaði lengi í stjórnsýslunni; það er í fjármála-, mennta- og forsætisráðuneytinu. Vann síðast hjá Samtökum atvinnulífsins og sinnti þar ýmsum alþjóðaverkefnum. „Núna í vikunni fer ég til Bruss- el vegna verkefna fyrir SA sem ég hef enn með höndum. Flýg þangað héðan frá Kaupmannahöfn þar sem við hjónin höfum verið síðustu daga að njóta lífsins. Höfum farið víða um borgina, meðal annars í leikhús að sjá Fröken Júlíu, hið fræga leikrit August Strindberg í danskri uppfærslu. Það var virkilega gaman,“ segir Halldór. Um langa hríð hefur Halldór sinnt ýmsum verkefnum er lúta að Vestur-Íslendingum og gagnkvæmum samskiptum þeirra við gamla landið. Er formaður Snorrasjóðs en á hans vegum hafa á sl. tuttugu árum um 300 ungmenni af ættum Vesturfara komið til Íslandsdvalar í nokkrar vikur. Þá hefur ungt fólk héðan frá Íslandi farið vestur. „Ég hef farið ótal sinnum vestur með hópa og áhuginn á Íslendingaslóðum vestra er mikill. Þar á ég líka sjálfur fjölda ættmenna sem hefur verið dýrmætt að kynnast,“ segir Halldór sem er kvæntur Önnu Björgu Eyjólfsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau fjögur uppkomin börn. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferðalangar Halldór og Anna Björg Eyjólfsdóttir á góðri stundu. Endalaus tækifæri Halldór Árnason er 66 ára í dag Þ órdís Filipsdóttir fæddist 18. mars 1979 á Fæðing- arheimilinu í Reykjavík. „Ég fæddist á methraða eða nánar tiltekið á tutt- ugu mínútum. Þar kalla ljósurnar mig litla gráhærða Kínverjann sem er dálítið skondið miðað við það sem ég tek mér fyrir hendur sem full- orðin manneskja. Lengi býr að fyrstu gerð, ef svo má segja.“ Þórdís ólst upp í Reykjavík, í Álf- heimunum og Árbænum, en mestan part á Njálsgötunni. „Ég fór þó fimm ára til Kaupmannahafnar þar sem ég dvaldi með foreldrum mín- um um árabil, en pabbi var þá í myndlistarnámi á meðan mamma þreif Den Danske Bank á nóttunni og skrifaði á daginn. Ég var í sveit í tvö sumur, fyrra sumarið á Hólum í Hjaltadal og seinna sumarið í Öxarfirði, en Þórdís Filipsdóttir, kennari, kjarnþjálfari og frkvstj. – 40 ára Tai chi-teygja Þórdís stödd í Tai chi-akademíunni í Shandong í Kína þar sem hún var í námi. Þróaði kjarnþjálfun og rekur eigin heilsumiðstöð Málverk Þórdís áformar að halda málverkasýningu á árinu. „Kindurnar eru mennirnir og horfa upp í himininn og fylgja hjartanu,“ segir hún um verkið. Kópavogur Alice Hafdís Laufdal Traustadóttir fæddist 22. ágúst 2018 kl. 20.00. Hún vó 3.196 g og var 49 cm löng. For- eldrar hennar eru Esther Spragge og Trausti Laufdal Aðalsteinsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.