Morgunblaðið - 30.03.2019, Blaðsíða 43
ýmsum áttum, sem höfðu verið tekin
upp 1985 og 1993. Undirleikarar á
þeirri plötu voru þeir Jónas Ingi-
mundarson og Kjartan Sigurjónsson
en Siguður Rúnar Jónsson stjórnaði
upptökum.
Björgvin flutti til Reykjavíkur
1996 og gerðist húsvörður í Hæðar-
garði 33-35 þar sem hann starfaði til
ársins 2016. Björgvin hóf að syngja
með Karlakór Reykjavíkur um leið
og hann flutti suður og söng með
kórnum uns hann flutti sig í kór eldri
félaga Karlakórs Reykjavíkur þar
sem hann syngur enn fyrsta tenór.
Þá er Björgvin í Frímúrarakórnum
og hefur farið í fjölda söngferðalaga
með báðum þessum kórum bæði inn-
anlands og erlendis. Fyrir dyrum
stendur að fara í söngferðalag með
eldri félögum í Karlakór Reykjavík-
ur til Noregs nú í vor.
Fjölskylda
Eiginkona Björgvins var Jónína
Ásbjarnardóttir, f. 17. september
1935, d. 14. nóvember 2014, póst-
meistari. Foreldrar hennar voru Ás-
björn Bjarnason, f. 9.9. 1861, d. 21.5.
1938, og Þuríður Jónsdóttir, f. 21.5.
1901, d. 31.6. 1960. Fósturforeldrar
Jónínu voru Guðmundur Ólafur Ein-
ar Albertsson, f. 16.10. 1905, d. 11.4.
1966, og Ragnheiður Kristjánsdóttir,
f. 29.8. 1912, d. 20.7. 1986. Núverandi
sambýliskona Björgvins er Dagrún
Kristjánsdóttir frá Suðureyri.
Börn Björgvins og Jónínu eru: 1)
Ásbjörn Þórir, f. 1957, ferðamála-
frömuður, búsettur í Kópavogi, eig-
inkona hans er Hildur Guðnadóttir
kaupmaður í Ömmu mús handa-
vinnuhúsi; 2) Guðmundur Ragnar, f.
1959, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni
á Ísafirði, eiginkona hans er Evelyn
Margrét Calderon verslunarkona; 3)
Grétar Þór, f. 1964, aðstoðarmaður
flugvirkja Landhelgisgæslunnar,
eiginkona hans er Sigríður María
Gísladóttir móttökuritari hjá
Reitum.
Barnabörn Jónínu og Björgvins
eru Arnar Logi Grétarsson, Ragn-
heiður Ásbjarnardóttir, Elín Ás-
bjarnardóttir Strandberg, Hjörtur
Ásbjarnarson, Linda Björg Guð-
mundsdóttir, Gísli Friðrik Magnús
Grétarsson, Anna Anika Jónína Guð-
mundsdóttir og Bjarki Geir Grét-
arsson. Barnabarnabörnin eru tví-
burarnir Freyja Marí og Birkir
Hrafn Hjartarbörn og þríburarnir
Sif, Jónas og Felix Ragnheiðarbörn,
Sofia Irene og Bjartur Þór Arnars-
börn og Elvar Þór Gíslason Holm.
Systkini Björgvins voru Páll Jan-
us, f. 1925, d. 1.4. 2010, yfirverkstjóri
hjá Freyju á Suðureyri og verkstjóri
hjá Umbúðamiðstöð S.H.; Marías
Kristján, f. 1930, d. 23.11. 2017,
sparisjóðsstjóri á Suðureyri; Elísa-
bet, f. 1932, d. 16.8. 2016, húsmóðir
og matráðskona á Suðureyri og í
Reykjavík, og Guðrún, f. 1942, d.
17.5. 2013, húsmóðir og verkakona á
Ísafirði.
Foreldrar Björgvins voru hjónin
Þórður Maríasson, f. 1896, d. 1992,
fiskmatsmaður, og Guðmundína
Margrét Sveinbjörnsdóttir, f. 1901,
d. 1987, húsmóðir. Þau voru búsett á
Suðureyri.
Úr frændgarði Björgvins Þórðarsonar
Björgvin Þórðarson
Jón Halldórsson
bóndi á Kirkjubóli
Rannveig Ólafsdóttir
húsmóðir á Kirkjubóli í Skutulsfirði
Guðmundína Jónsdóttir
húsmóðir á Laugum
G. Margrét Sveinbjörnsdóttir
fiskverkakona og húsmóðir á Suðureyri
Sveinbjörn Pálsson
bóndi á Laugum í Súgandafirði
Rósinkransa Guðmundsdóttir
húsmóðir á Kvíanesi
Páll Guðmundsson
bóndi á Kvíanesi í
Súgandafirði
Jófríður
Péturs-
dóttir húsfr.
á Stað í
Súgandaf.
Pétur
Svein
björnsson
bóndi á
Laugum og
í Botni
Sigríður Pétursdóttir
húsfreyja á Suðureyri
og í Rvík
Kjartan Ólafsson
fv. ritstjóri og
alþm.
Þóra
Þórðar-
dóttir
kennari á
Suðureyri
Lilja
Rafney
Magnús-
dóttir
alþingis-
maður
Ólafur Þ. Þórðarson
alþingismaður
Salóme
Sveinbjörns
dóttir húsfreyja
á Ísafirði
Helga Elísabet
Kristjánsdóttir
úsfr. á Ísafirðih
Kristján Rafn
Guðmundsson
ökukennari á Ísafirði
Pálína Ó.
Svein
jörnsdóttir
húsfreyja á
Suðureyri
Friðbert
Páll
Njálsson
erslunar
maður
b
Ásdís Frið-
bertsdóttir
verka og
saumakona
á Suðureyri
v
Njáll Trausti
Friðbertsson
alþingis-
maður
Guðrún Þórðardóttir húsfreyja
á Suðureyri, fósturmóðir
Þórðar, föður Björgvins
Þórður Þórðarson
bóndi á Tannanesi
Helga Sigurðardóttir
húsmóðir áTannanesi í Önundarfirði
Ástríður Guðmundsdóttir húsfreyja í
EfraSeli í Hrunamannahreppi
Páll Janus Pálsson
lögreglumaður á
Patreksfirði
Páll Janus
Guðmundsson
stýrimaður á Suðureyri
Herdís Þórðardóttir
bóndi og húsmóðir í Vatnadal
Marías Þórðarson
bóndi í Vatnadal
María Sigurðardóttir
húsmóðir í Botni
Þórður Jónsson
bóndi í Botni í
Súgandafirði
Þórður Maríasson
fiskmatsmaður og verkstjóri á
Suðureyri, fósturfor.: Kristján
Kristjánsson og Guðrún Þórðardóttir
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
Þór Eyjólfur Sandholt fæddist30. mars 1913 í Reykjavík.Foreldrar hans voru hjónin
Egill Villads Sandholt, f. 1883 í
Fremri-Arnardal í Skutulsfirði, d.
1919, prentari í Reykjavík, og Þór-
hildur Eiríksdóttir, f. 1882 á Blöndu-
dalshólum í Blöndudal, A-Hún., d.
1950, húsmóðir. Stjúpfaðir Þórs var
Maggi Júl. Magnús yfirlæknir,
seinni eiginmaður Þórhildar.
Þór lauk gagnfræðaprófi í
Reykjavík 1931, var í stærðfræði-
námi hjá dr. Ólafi Daníelssyni og
teikninámi í Iðnskólanum í Reykja-
vík 1931-32 og húsgagnasmíðanámi.
Hann fór síðan 1932 í nám í arkitekt-
úr í Háskólanum í Liverpool, lauk
lokaprófi (Dipl.arch.) 1937 og lauk
framhaldsnámi í skipulagsfræðum
við sama skóla 1938.
Þór rak eigin teiknistofu í Reykja-
vík 1938-42, var aðstoðarmaður
byggingafulltrúans í Reykjavík
1942-46, starfaði hjá Húsameistara
Reykjavíkur 1944-49 og var jafn-
framt kennari við Iðnskólann í
Reykjavík 1944-50, var aðstoðar-
skólastjóri þar 1953-54 og skóla-
stjóri 1954 og til dauðadags. Hann
var einnig forstöðumaður skipulags-
deildar Reykjavíkur 1949-54.
Meðal bygginga sem Þór teiknaði
var Iðnskólinn í Reykjavík en hann
hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni
um skólann 1944. Hann sá síðan um
að teikna stækkanir á Iðnskólanum.
Þór gegndi ýmsum félagsstörfum,
hann var varaborgarfulltrúi 1958-62
og borgarfulltrúi 1962-66. Hann var
formaður þjóðhátíðarnefndar 1951-
57, sat í byggingarnefnd Reykjavík-
ur 1948-54, umferðarmálanefnd
1950-78 og listaverkanefnd Reykja-
víkur 1954-79. Þór var félagsforingi
Skátafélags Reykjavíkur 1961 til
dánardags. Hann hlaut riddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu 1968.
Eiginkona Þórs var Guðbjörg
Sandholt, f. 27.8. 1907, d. 8.3. 1987,
húsmóðir. Dóttir þeirra er Þórhildur
Maggí, f. 1942.
Þór lést 29. ágúst 1979.
Merkir Íslendingar
Þór
Sandholt
Laugardagur
90 ára
Gréta Ástráðsdóttir
Lillian Simson
Salóme Fjóla
Guðmundsdóttir
85 ára
Björgvin Þórðarson
Gerða Eiríksdóttir
Hulda Vilhjálmsdóttir
Sigrún Gísladóttir
Sonja Ida Kristinsdóttir
Valdimar Haukur Gíslason
80 ára
Pétur Elvar Aðalsteinsson
75 ára
Agnar Jónsson
Ásgeir Guðbjörn Överby
Helga Tómasdóttir
Jón Jerzy Bikielec
Ragnheiður Magnúsdóttir
Sigurdís Sigurðardóttir
70 ára
Árni Björn Stefánsson
Halla Soffía Einarsdóttir
Jóhanna Einarsdóttir
Óli Höskuldsson
60 ára
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Guðrún Steinþórsdóttir
Gunnar Guðmundsson
Hlynur Jörundsson
Karen Lynn Thorsteinsson
Kristleifur Andrésson
Rúnar Magnús Magnússon
Sigrún Linda
Hafsteinsdóttir
Virgilijus Jakutis
50 ára
Anna Björg Sigurðardóttir
Bragi Sigþórsson
Erla María Markúsdóttir
Hafdís Brynja
Guðmundsdóttir
Svavar Sigurðsson
Wirach Yodsurang
Þórólfur Beck
40 ára
Anna Sigríður Hilmarsdóttir
Benedikt Egils Sævarsson
Birta Ósk Gunnarsdóttir
Dýrleif Björk Pálsdóttir
Gunnhildur Inga
Þráinsdóttir
Jose Albano Dos Santos
Teixeira
Júlíana Viðarsdóttir
Kathrine Högild Pedersen
Rögnvaldur Skúlason
Sigríður Ólafsdóttir
Sveinn Bjarki Þórarinsson
Theódór Þór Theódórsson
30 ára
Adrian Kamil Troska
Alma Björk Ragnarsdóttir
Ásdís Eva Lárusdóttir
Catherine Rachael
Gallagher
Friðrik Sindri Wilde
Hubert Bednarowicz
Jón Kristinn Sigurðsson
Katrín Þrastardóttir
Maciej Jerzy Juziuczuk
Mihails Kulikovskis
Mohamed El Har
Sigurður Pálsson
Sveinbjörn Finnsson
Telma Þöll Victorsdóttir
Örn Brynþór Arnarsson
Sunnudagur
95 ára
Jóna Kr Eiríksdóttir
Ólöf Ingunn Ingólfsdóttir
90 ára
Eva Sigurjónsdóttir
85 ára
Hulda Sigurjónsdóttir
75 ára
Anna Helga Hilmarsdóttir
Bragi S. Heiðberg
Gunnar Randver
Ingvarsson
Ingibjörg Helga Júlíusdóttir
Ingigerður Benediktsdóttir
Kolbrún Ingimarsdóttir
Sigurður Ragnarsson
Sigurjón Arnar Bjarnason
Valborg E. Baldvinsdóttir
70 ára
Elsa Benjamínsdóttir
Guðmundur Hjaltason
Magnús þór Tryggvason
María Kristín Lund
Jörgensen
Rúnar Vernharðsson
60 ára
Alan Raymond Brown
Elías Baldur Eiríksson
Friðgeir Sigtryggsson
Halla Sólveig
Sigurgeirsdóttir
Hjördís Sigrún Pálsdóttir
Rafn Svanur Oddsson
Sigurður M. Daníelsson
Smári Bjarni Ólafsson
Þorvaldur Þ. Eyjólfsson
50 ára
Artis Rieksts
Axel Karlsson
Benedikt Bjarnason
Heiðar Birnir Kristjánsson
Lúðvík Kristinsson
Rut Ásgeirsdóttir
40 ára
Ástþór Eydal Ísleifsson
Björg Kristín Ragnarsdóttir
Eyrún Steinsson
Helgi Hjörleifsson
Ingþór Sigurður Ísleifsson
Jacek Beniamin Kozlowski
Jóhannes Pétur Héðinsson
Jóhannes Þór Ágústarson
María Halldóra Jónsdóttir
Ólafur Pétur Ágústsson
Sigríður Bjarney
Sigmundsdóttir
Símon Geir Sveinbjörnsson
Steinar Björnsson
Valdimar Hjaltason
30 ára
Elmar Logi Heiðarsson
Elsa Petra Björnsdóttir
Hannah Antwi
Jófríður Eva Wium
Ragnarsdóttir
Kristinn Gísli Sigurjónsson
Kristinn Steinar Kristinsson
Krzysztof Andrzej Misiek
Magni Ómarsson
Magnús Sigurbjörnsson
Marlena Orzechowska
Máni Maríus Viðarsson
Megan Alyssa Matich
Pawel Tomasz Krokosz
Sesselja Björg Elvarsdóttir
Sigurður Sigurbjörnsson
Steinunn Björg Ólafsdóttir
Unnur Ósk Eggertsdóttir
William Thomas Möller
Þórarinn Magnússon
Til hamingju með daginn
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is
Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af
slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is