Morgunblaðið - 30.03.2019, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
✝ Bergljót Lofts-dóttir fæddist á
Böggvisstöðum 17.
apríl 1922. Hún lést
15. mars 2019 á
Dalbæ, heimili aldr-
aðra, Dalvík.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Loft-
ur Baldvinsson út-
vegsbóndi, f. 7. júlí
1881, d. 20. apríl
1940, og Guðrún
Friðfinnsdóttir húsfreyja, f. 14.
nóvember 1886, d. 26. júlí 1984.
Systkini Bergljótar voru
Sveinn Helgi, látinn, Sveinína
Helga, látin, Sigríður Lovísa, lát-
in, Baldvin Gunnlaugur, látinn,
Þórgunnur, látin, Guðjón, látinn,
Aðalsteinn Friðrik, látinn, Björg-
ólfur, látinn, Sveinn Haukur, lát-
inn, Garðar, látinn, Lára, látin, á
lífi eru Hildur Björk og Sigríður.
Bergljót giftist Sigvalda
Stefánssyni, f. 12. september
1914, d. 9. apríl 1963, hinn 30.
júní 1951 og eignuðust þau þrjú
börn:
1) Loftur Gunnar, f. 1951,
kona hans Guðrún Sigurð-
ardóttir, f. 1954. Þeirra börn eru:
a) Eva Berglind, f. 1972, hennar
maður Steinar M. Björnsson, f.
stöðum, stóru heimili þar sem
útgerð var samhliða almennum
sveitastörfum. Hún tók snemma
þátt í þeim störfum sem til féllu
á heimilinu. Skólagöngu lauk
hún á Dalvík og þaðan lá leið í
Húsmæðraskólann á Lauga-
landi.
Bergljót fluttist frá Böggvis-
stöðum 1947 og á Bjarkarbraut
7 árið 1951 þar sem hún og Sig-
valdi héldu heimili ásamt systk-
inum Bergljótar, Hildi Björk,
Guðjóni og Björgúlfi. Einnig var
Guðrún móðir þeirra þar til
heimilis þar til hún lést í hárri
elli og naut umönnunar þeirra.
Bergljót naut stuðnings systkina
sinna við ótímabært fráfall Sig-
valda frá þremur ungum börn-
um.
Saumaskap lærði Bergljót í
Reykjavík á stríðsárunum, vann
við kjólasaum og einnig saumaði
hún hermannafrakka. Hún vann
um tíma við útgerð Aðalsteins
bróður síns og saltaði síld o.fl.
Seinna á lífsleiðinni vann hún í
frystihúsi KEA og endaði starfs-
ævina á Dalbæ, heimili aldraðra,
á Dalvík.
Útför Bergljótar fer fram frá
Dalvíkurkirkju í dag, 30. mars
2019, klukkan 11.
1972. Þeirra börn
eru: 1) Stefanía Eir
Steinarsdóttir,
maki Hafsteinn
Gröndal, þeirra
barn Jökull Máni.
2) Viktoría Ósk
Steinarsdóttir. 3)
Emilía Rún Stein-
arsdóttir. b) Sig-
valdi Þór, f. 1983. c)
Stefán Guðjón, f.
1983, hans kona
Saga Sigurðardóttir, þeirra
börn eru: Thelma Rakel Stef-
ánsdóttir og Freyja Karen Stef-
ánsdóttir.
2) Helga Björk, f. 1954, henn-
ar maður Sigurður Ásgeirsson.
Hans börn eru: a) Ásgeir Sig-
urðsson og hans börn eru Krist-
ín Petrea, Sigurður og Vala Sif.
b) Sunneva Sigurðardóttir og
hennar börn eru Stefán, Auður
Lilja og Guðmundur Sævar.
3) Sveinn Haukur Sigvalda-
son, f. 1958, hans kona Ágústa
Markrún Óskarsdóttir, f. 1951.
Hennar dóttir og fósturdóttir
Hauks er Linda, hennar börn
eru Matthías Knútur Matthías-
son, Ólafur Haukur Matthíasson
og Markús Mar Matthíasson.
Bergljót ólst upp á Böggvis-
Móðir mín Bergljót Loftsdóttir
frá Böggvisstöðum er látin, södd
lífdaga. Við þessi tímamót hellast
yfir mig minningar um þessa
sterku, hugprúðu, blíðu og sjálf-
stæðu konu sem fæddi mig og
kom mér til manns. Mín sterkasta
æskuminning tengist fráfalli
pabba og þeim viðbrögðum sem
því voru samfara. Ég var fimm
ára, Helga systir átta ára og Loft-
ur bróðir ellefu ára og mamma
fertug þegar hún varð ekkja. Þeg-
ar ég fullorðnaðist spurði ég
mömmu út í þetta tímabil í lífi
hennar og hún deildi því með okk-
ur að einhverju leyti í heimildar-
myndinni Brotinu sem fjallar um
sjóslysin hinn 9. apríl 1963.
Á Bjarkarbraut 7 var gott að
alast upp, mamma og við börnin á
neðri hæðinni, uppi voru systkini
mömmu, Hildur Björk, Guðjón og
Björgúlfur, einnig mamma þeirra,
ættmóðirin Guðrún Friðfinnsdótt-
ir. Þessi samsetning á búsetu
hafði þann kost að ef mér leist bet-
ur á matinn á efri hæðinni borðaði
ég þar. Árin liðu og ég stækkaði
svolítið en meira fór þó fyrir uppá-
tækjum ýmiss konar sem reyndu
alloft á þolrif móður minnar.
Skammirnar voru yfirleitt mildar
og hún hækkaði ekki oft röddina
þó að ærin ástæða væri til. Mörg
aukaverkin bjó ég til handa henni,
sullaði í drullu, reif eða hjó í sund-
ur buxur, dró hitt og þetta drasl
heim að húsi og skemmdi úlpu eða
peysu við þá iðju. Mömmu var illa
við að ég væri að þvælast á
bryggjunum en það var mest
spennandi staðurinn fyrir okkur
strákana. Stundum skilaði ég mér
seint heim og mamma fór oft að
leita að guttanum sínum. Ég átti
það til að fela mig þegar ég sá til
ferða mömmu en á endanum rak
hungrið mig heim. Samviskan var
stundum ekki góð.
Einhverju sinni að vori átti ég
að vera við próflestur en hund-
leiddist og datt í hug að smíða mér
bát og lagði kjöl að honum á eld-
húsgólfinu. Mamma kom heim úr
vinnu og heyrði ég til hennar þeg-
ar hún opnaði gangdyrnar. Þetta
var eitt af fáum skiptum sem ég
fékk duglegt orð í eyra og var sagt
að snauta með þetta spýtnarusl út
úr húsi og ekki láta mér detta í
hug að smíða bát. Bátinn kláraði
ég og sigldi á honum um Stórhól-
stjörn. Svona liðu árin og alltaf gat
ég stólað á hana móður mína sama
hvað á gekk. Um tíma átti ég
heima í Noregi ásamt Lofti og
komu mamma og Helga í heim-
sókn. Mamma í fyrstu og einu ut-
anlandsferð sinni. Við höfðum sett
niður kartöflur og þótti mömmu
lítið hirt um og snaraði sér í að
reyta arfa og tína fleira rusl en
hún þekkti ekki brenninetluna og
varð að hætta snögglega vegna af-
leiðinga hennar.
Næm var móðir mín á líðan
mína. Á mínum verstu stundum
hringdi hún í mig og spurði um líð-
anina. Þakkir áttu skilið fyrir allt
það sem þú lagðir mér til sem
nesti í mína göngu um lífsveginn
og þakkir fyrir höfðinglegar mót-
tökur þegar við Markrún fórum
norður og nutum gestrisni ykkar á
Bjarkarbrautinni. Þakkir,
mamma mín, fyrir það sem þú inn-
rættir og kenndir mér, bæði með
orðum og fasi. Ég trúi því að pabbi
sé tilbúinn að taka á móti þér,
mamma. Góða ferð í sumarlandið.
Haukur Sigvaldason.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast yndislegrar tengdamóður
minnar. Það var ótrúlegt hvað það
bjó mikill kraftur í henni Beggu,
þessari fínlegu og lágvöxnu konu.
Hún var alltaf svo falleg og með
rödd eins og í unglingsstúlku fram
á síðustu stund. Dóttir mín hafði
oft orð á því þegar hún talaði við
hana: „Hún Begga hefur svo
stelpulega rödd.“ Begga vildi alltaf
vera að og var í essinu sínu, þegar
hún var að elda og baka. Hún gerði
svo ljúffengan mat og bestu og fal-
legustu kökur í heimi. Það var ekki
amalegt að koma norður og oftast
tekið á móti okkur með læris-
sneiðum og kótelettum og aldrei
hefur mér tekist að hafa þær eins
góðar og hjá henni. Begga var líka
svo lagin í höndunum og saumaði
og prjónaði listavel, þótt viðkvæð-
ið hjá henni hafi alltaf verið að allt
væri ómögulegt hjá henni. En það
var aldeilis ekki, það var allt
hundrað og fimmtíu prósent. Hún
vildi líka alltaf vera að þvo og
strauja af öllum í kringum sig og
ef gat var á flík, þá kom hún við-
gerð úr þvottinum. Eitt sinn var
þó Steinar ekki alveg ánægður,
þegar hún þvoði götóttu tísku-
gallabuxurnar hans og þær komu
allar „kúnstbródereðar“ úr þvott-
inum og hún sagði við Steinar:
„Ég veit ekki hvað hefur komið
fyrir buxurnar þínar, Steinar
minn, það er eins og þú hafir lent í
tætara.“
Ó já, svona var Begga. Það var
svo gott að hún gat að mestu sinnt
sínum heimilisstörfum þar til hún
fór á Dalbæ á Dalvík fyrir einu og
hálfu ári þar sem heilsan var farin
að gefa sig og orkan að þverra.
Mér fannst það að koma til Beggu
vera margt um líkt eins og að
koma til foreldra minna heima á
Patró þegar þau voru á lífi, svo
margt líkt og leið mér vel hjá
Beggu og Hildi systur hennar, en
þær bjuggu saman á Bjarkar-
brautinni. Einar bestu stundirnar
með Beggu voru þegar við fengum
okkur kvöldkaffi og sátum góða
stund, spjölluðum og gerðum að
gamni okkar og Begga hló svo
dátt að tárin runnu niður kinnarn-
ar á henni. Það voru góðar stund-
ir.
Þín nótt er með öðrum stjörnum.
Um lognkyrra tjörn
laufvindur fer.
Kallað er á þig og komið
að kveðjustundinni er.
Úr lindunum djúpu leitar
ást guðs til þín
yfir öll höf.
Hún ferjar þig yfir fljótið
og færir þér lífið að gjöf.
Og söngnum sem eyrað ei nemur
þér andar í brjóst.
Dreymi þig rótt,
liljan mín hvíta
sem opnast á ný í nótt.
(Gunnar Dal)
Elsku besta Begga tengda-
mamma, ég þakka þér allt sem þú
hefur gert fyrir mig og mína fjöl-
skyldu. Þín verður sárt saknað.
Guð geymi þig og blessi.
En handan við fjöllin
og handan við áttirnar og nóttina
rís turn ljóssins
þar sem tíminn sefur.
Inn í frið hans og draum
er förinni heitið.
(Snorri Hjartarson)
Þín tengdadóttir
Markrún Óskarsdóttir.
Elsku amma Begga, það er erf-
itt að kveðja en á sömu stundu
þökkum við fyrir tímann sem að
við áttum saman. Við erum svo
þakklát að barnabarnabörnin þín
og barnabarnabarnabarnið þitt
hafi fengið að kynnast þér. Þú
varst alltaf svo góð og blíð við þau
og alla sem í kringum þig voru.
Þú hafðir alltaf tíma fyrir okk-
ur, hlustaðir og gafst okkur ráð,
last fyrir okkur sögur fyrir svefn-
inn og kenndir okkur að fara með
bænirnar okkar.
Við munum svo vel sumrin sem
við áttum á Dalvík, að brasa með
þér og Hildi í garðinum eða í
þvottahúsinu, fara í kaupfélagið
þar sem þú virtist þekkja alla og
koma svo heim og fá bestu pönns-
ur í heimi. Þú passaðir alltaf upp á
að maður færi aldrei svangur frá
Bjarkarbrautinni og það var aldr-
ei komið að tómum kofanum hjá
þér.
Við gleymum aldrei jólunum
sem við eyddum saman, það var
alltaf svo hátíðlegt og notalegt að
vera með þér yfir hátíðarnar.
Í seinni tíð sátum við oft saman
í eldhúsinu á Bjarkarbrautinni og
ræddum um allar þær frábæru
stundir sem að við höfum átt sam-
an í gegnum árin. Þér var svo annt
um alla í kring um þig og gerðir
allt sem í þínu valdi stóð til að fjöl-
skyldunni liði sem best.
Elsku amma, við munum sakna
þín en við vitum að þú munt vaka
yfir okkur og passa fjölskylduna
þína.
Þú ert og verður alltaf verndar-
engill okkar allra.
Eva Berglind Loftsdóttir,
Sigvaldi Þór Loftsson,
Stefán Loftsson
og fjölskyldur.
Bergljót Loftsdóttir HINSTA KVEÐJA
Elsku amma okkar, það
er erfitt að hugsa til þess að
fá aldrei að koma aftur til
þín á Dalvík en nú ertu
komin til afa og líður von-
andi vel. Við erum óendan-
lega þakklátar fyrir þann
tíma sem við áttum hjá þér
á Bjarkarbrautinni.
Guð geymi þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þínar langömmustelpur,
Stefanía Eir, Viktoría Ósk
og Emelía Rún.
Fleiri minningargreinar
um Bergljótu Loftsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
VALGERÐUR BJÖRNSDÓTTIR,
Hólabergi 38,
Reykjavík,
lést á Landakoti mánudaginn 18. mars.
Jarðarför fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn
2. apríl klukkan 13.
Eiríkur Brynjólfsson
Lilja Eiríksdóttir Halldór Laxdal
Björn Eiríksson Ásta Guðrún Guðbrandsd.
Brynjólfur Eiríksson
Anna Eiríksdóttir Páll Pálsson
Örn Eiríksson Bjarnfríður Elín Karlsdóttir
Ingi Eiríksson Hrönn Jónsdóttir
Sigrún Eiríksdóttir Stefán Már Kristinsson
Birgir Eiríksson Berglind Snorradóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN BIRNA GARÐARSDÓTTIR,
Heiðvangi 7, Hellu,
lést á Landspítalanum 16. mars.
Jarðsett verður í kyrrþey.
Jón Helgason
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir Guðmundur Jónsson
Sigurbjörg Kristín Jónsdóttir Axel Wium
Helgi Jónsson Kristbjörg Ingimundardóttir
Garðar Jónsson Silke Waelti
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
HULDA JÓFRÍÐUR ÓSKARSDÓTTIR,
lést föstudaginn 22. mars á líknardeild
Landspítalans.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Guðmundur Örn Ingólfsson
Óskar Ólafsson Svea Soffía Sigurgeirsdóttir
Sigurgeir Óskarsson
Þorsteinn Ólafsson
Ingólfur Arnar Guðmunds.
Ólafur Friðrik Óskarsson Kolbrún Jóhannsdóttir
Árndís Hulda Óskarsdóttir Helgi Freyr Sveinsson
langömmubörn og systkinni hinnar látnu
Okkar ástkæri,
HELGI HARALDSSON
flugvirki,
lést 19. mars. Útförin fór fram í kyrrþey.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Skjóls einlæga elsku og
umönnun.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort Skjóls,
sími 5225600 eða skjol.is
Maja Helgadóttir Henrik Runge
Stella Henriksdóttir Runge
Heidi Helgadóttir Leite Mikael Leite
Annelise H. Jörgensen Rósa Haraldsdóttir
Guðrún Haraldsdóttir Vilhjálmur H. Baldursson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÞORGEIR HJÖRLEIFSSON
frá Hnífsdal,
lést á dvalarheimilinu Grund fimmtudaginn
28. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Elísabet Þorgeirsdóttir Halldór Þorgeirsson
Sjöfn Heiða Steinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
GUNNLAUGUR VALDIMARSSON,
sjómaður,
Skólastíg 14a, Stykkishólmi,
lést á St. Fransiskussjúkrahúsinu
miðvikudaginn 27. mars.
Sigrún Sigurgeirsdóttir
Einar D.G. Gunnlaugsson
Yngvinn V. Gunnlaugsson
og fjölskyldur