Morgunblaðið - 30.03.2019, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
Kvenorkan mun
ráða ríkjum í Hörp-
unni nk. föstudag, 5.
apríl þegar FKA
fagnar 20 ára afmæli
sínu með pomp og
prakt. Það verður
sannkölluð gleði-
stund. Á viðburðinn
munu konur mæta í
hundraðatali. Ekki
aðeins FKA-konur
fyrr og nú, heldur einnig aðrar
konur sem geta skráð sig á við-
burðinn í gegnum fka.is. Eins eru
fyrirtæki hvött til að skrá sína
kvenhópa og sýna þannig í verki
að tengslanet kvenna er mikilvægt
afl. Þótt flestir geri sér reyndar
grein fyrir því í dag, hefur það
alls ekki alltaf verið svo. Ég nefni
sem dæmi fréttir um FKA í fjöl-
miðlum. Þær voru fáar fyrstu árin
og þótt sögur segi að um 300 kon-
ur hafi fjölmennt á stofnfund FKA
árið 1999, fann undirrituð engar
fréttir um þann fund, nema til-
kynningu um að fundurinn yrði
haldinn á Hótel Loftleiðum þann
9. apríl. Þessa frétt fann ég í
gagnasafni Morgunblaðsins og tel
reyndar líklegt að hún hafi birst
vegna þess að viðskiptaráðuneytið
sendi fjölmiðlum tilkynningu um
fundinn. Það var vegna þess að
það ráðuneyti var fjárhagslegur
bakhjarl og samstarfsaðili FKA
fyrstu árin. Á vef stjórnarráðsins
má finna ræðu Finns Ingólfssonar,
þáverandi iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, sem hann hélt á
umræddum fundi. Í upphafi ræð-
unnar segir ráðherra:
„Konur reka aðeins
18% íslenskra fyr-
irtækja sem verður að
teljast lágt hlutfall,
sérstaklega með tilliti
til þess að atvinnu-
þátttaka kvenna er
meiri á Íslandi en víð-
ast hvar annars stað-
ar og ekki síður í ljósi
þess að sennilega eru
konur betri stjórn-
endur en karlar.“
Sjálf var ég rétt
innan við þrítugt þegar félagið var
stofnað. Ég var í stjórnunarstarfi
hjá Morgunblaðinu en hefði ekki
fengið inngöngu því fyrstu árin
var FKA aðeins fyrir konur sem
áttu sín eigin fyrirtæki. Þetta
breyttist árið 2005 og þá þannig
að í dag er FKA fyrir konur sem
eru í stjórnendastörfum eða sitja í
stjórnum. Þessi breyting frá árinu
2005 er skýringin á því hvers
vegna félagið heitir í dag Félag
kvenna í atvinnulífinu, en ekki
lengur Félag kvenna í „atvinnu-
rekstri“.
Aðildarkonur í FKA telja nú um
1.200 konur í leiðtogastörfum um
land allt. Þetta eru konur sem
reka sín eigin fyrirtæki og ann-
arra, stór og smá. Þetta eru konur
sem sitja í stjórnum fyrirtækja,
stofnana og fyrir hönd stjórnmála.
Þetta eru konur sem eru mik-
ilvægur hluti verðmætasköpunar
hagkerfisins, taka virkan þátt á
öllum sviðum atvinnulífs, nýsköp-
unar og þróunar. Margar þeirra
eru í forstöðu eða lykilstjórnendur
í fyrirtækjum sem teljast til fram-
úrskarandi fyrirtækja á Íslandi.
Innan félagsins eru starfræktar
nefndir og deildir. Þar á meðal er
starfrækt sérstök atvinnurekenda-
deild fyrir konur sem eru með
sinn eigin rekstur. Félagið Leið-
togaauður sameinaðist FKA árið
2011, en margir muna eftir því fé-
lagi í tengslum við verkefnið
„Auður í krafti kvenna“ sem mikið
fór fyrir í kringum aldamótin.
Landsbyggðardeildir félagsins
reka sig á Suðurlandi, Norður-
landi, Vesturlandi og Vestfjörðum.
Þá höfum við fjárfest í yngri
kvennahópum með öflugu grasrót-
arstarfi FKA Framtíðar, en þar
hljóta ungar konur meðal annars
mentor-þjálfun frá kvenstjórn-
endum í Leiðtogaauði. Til viðbótar
teljast tugir FKA-kvenna sem
halda uppi fjölbreyttu viðburða-
dagatali félagsins allan veturinn,
en þær eru viðskiptanefnd,
fræðslunefnd, alþjóðanefnd, ný-
sköpunarnefnd og auðvitað hin
verðmæta tengslamyndunarnefnd:
golfnefnd FKA! Það er því ekki
nema von að maður finni til stolts
þegar litið er yfir tengslanet FKA.
Sjálf skráði ég mig í félagið árið
2007, þá framkvæmdastjóri Cre-
ditinfo. Frá því þá hefur FKA ver-
ið mikilvægur vettvangur fyrir
mig að vera í. Til samanburðar
nefni ég að um tíma sat ég í
stjórn Viðskiptaráðs, sem án efa
styrkti mitt tengslanet. Tengsl-
anet FKA er hins vegar öðruvísi
því eitt af því sem við konurnar
höfum lært er að með því að efl-
ast innbyrðis, eflumst við um leið
alls staðar annars staðar. Það
sama hefur reyndar gerst með
starf FKA. Því fleiri sem við verð-
um, því meiri áhrifavaldur verður
félagið í okkar samfélagi. Það er
síðan allur gangur á því hvernig
konur nýta sér FKA. Sumar skrá
sig í félagið til þess að nýta sér
viðburðadagatalið, fundi, nám-
skeið og ferðir. Aðrar til að styðja
við hreyfiaflsverkefni eins og
Jafnvægisvog FKA eða fjölmiðla-
verkefnið. Þá hefur það færst í
aukana að stærri fyrirtæki vilja
að kvenstjórnendur á þeirra veg-
um séu skráðir í FKA. Þetta er
leið fyrirtækja til að styðja við
starf félagsins.
Allt hófst þetta þó á því að
starfshópur iðnaðar- og við-
skiptaráðherra skilaði af sér nið-
urstöðum þar sem meðal annars
sagði „Lagði nefndin m.a. til að
stofnað yrði félag eða „tengsl-
anet“ kvenatvinnurekenda með
stuðningi stjórnvalda sem hefði
það að meginmarkmiði að efla
samvinnu og samstöðu þeirra m.a.
með það fyrir augum að þær verði
áhugaverður markhópur fyrir
banka og lánastofnanir“. Lyk-
ilorðin eru „tengslanet“ og „sam-
staða“. Konur! Sjáumst í Hörp-
unni á föstudag.
Tengslanet FKA fagnar 20 ára afmæli
Eftir Rakel
Sveinsdóttur »Að stofnað yrði félageða „tengslanet“
kvenatvinnurekenda með
stuðningi stjórnvalda sem
hefði það að meginmark-
miði að efla samvinnu og
samstöðu þeirra
Rakel Sveinsdóttir
Höfundur er formaður Félags
kvenna í atvinnulífinu (FKA).
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til að
opna svæðið. Hægt er að senda
greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka
daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
Allt um
sjávarútveg
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Langar þig í ný gleraugu!
Velkomin til okkar