Morgunblaðið - 30.03.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
Voltaren Gel er bæði verkjastilland
og bólgueyðandi
Vöðva eða liðverkir?
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
i
va dlega upplýsingar á umbúðum .
15%
afslátturaf 100g og 150gVoltaren Gel
GRÆNT ALLA LEIÐ
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Íbúar í Eyjum eru alveg hoppandi
kátir yfir þessu framtaki og bíða eft-
ir því vikulega að Tígull komi í hús.
Það myndaðist gat á markaðnum
þegar Eyjafréttir hættu sem viku-
blað eftir 45 ára útgáfu en þær koma
nú út einu sinni í mánuði. Við stukk-
um á tækifærið,“ segir Katrín Lauf-
ey Rúnarsdóttir, sem ásamt Lind
Hrafnsdóttur hóf nýverið útgáfu á
vikublaði í Vestmannaeyjum. Tígull
er fríblað sem gefið er út í 1.650 ein-
tökum, borið í öll hús og fyrirtæki í
Eyjum og birtist á tigull.is.
„Lind fékk þessa hugmynd og ég
var ekki lengi að samþykkja hana.
Við höfum bara fengið jákvæð við-
brögð. Eldra fólk sem notar netið lít-
ið hefur verið mjög þakklát. Tígull
er borinn út á miðvikudögum og
fimmtudögum vegna hverfaskipt-
inga hjá póstinum. Við höfum haft
spurnir af því að fólk sem ekki hefur
viljað fjölpóst hafi dregið það til
baka til þess eins að fá Tígul inn um
bréfalúguna,“ segir Katrín og bætir
við að Tígull sé viðburða- og upplýs-
ingablað fyrir Vestmannaeyinga og
gesti. Katrín Laufey og Lind reka
Leturstofuna, sem býður upp á
hönnun og umbrot á alls konar verk-
um auk auglýsingasöfnunar. Let-
urstofan selur ýmsa prentgripi og
vörur frá samstarfsaðilum og nú hef-
ur útgáfa vef- og vikublaðs bæst við.
„Við erum ekki að flytja fréttir af
því sem búið er heldur verðum í
núinu og næstu framtíð. Ef atburðir
gerast milli blaða segjum við frá því
á netinu. Við ætlum að vera jákvæð-
ar og uppbyggjandi og einfalda lífið
fyrir fólki með upplýsingagjöf og alls
kyns afþreyingu,“ segir Katrín sem
heldur utan um auglýsingar og skrif
í blaðið en Lind sér um hönnun og
uppsetningu. Ómar Garðarsson,
fyrrverandi ritstjóri Eyja-
frétta, verður útgefendum
Tíguls til halds og trausts.
Katrín segir að þær Lind séu
opnar fyrir öllum hugmyndum
og sjái fyrir sér að standa fyrir við-
burðum sjálfar og í samstarfi við
aðra.
„Við verðum með opnunar- og út-
gáfupartí 4. apríl þar sem við fáum
kynningar frá ýmsum samstarfsfyr-
irækjum. Við fórum af stað með
brjálaða áætlun í
miðjum loðnubresti
en hún hefur geng-
ið upp og gott bet-
ur,“ segir Katrín
og bætir við að það
sé hugmynd hjá blaðinu að
fjalla um öll fyrirtæki sem starfa í
Eyjum en þau séu ótrúlega mörg.
Katrín segir að Leturgerðin leigi út
þrjú skrifborð í húsnæði fyrir-
tækisins á Strandvegi þar sem Eyja-
fréttir voru áður til húsa og Tígull
hafi átt að vera aukaafurð en taki nú
mestan tíma þeirra.
Tígull nýtt vikublað í Eyjum
Nýttu tækifærið þegar gat myndaðist á markaðnum
Borið frítt í öll hús Viðburða- og upplýsingablað
Eyjafréttir, héraðsfréttablað í
áskrift, kemur út einu sinni í
mánuði. Reka einnig vefmiðil
eyjafréttir.is
Tígull, fríblað kemur út viku-
lega sem upplýsinga- og við-
burðablað, rekur vefsíðuna tig-
ull.is
Eyjar.net reka veffréttamiðil-
inn, eyjar.net
Sjónvarpsvísir kemur
út einu sinni í viku
með sjónvarps-
dagskrá og auglýs-
ingum.
Allar teg-
undir blaða
ÚTGÁFA Í EYJUM
Framkvæmdakonur Laufey Rúnarsdóttir og Lind Hrafnsdóttir eru
bjartsýnir útgefendur vikublaðsins Tíguls í Vestmannaeyjum.
Svandís Svav-
arsdóttir heil-
brigðisráðherra
hefur ákveðið að
skipa Óskar
Reykdalsson for-
stjóra Heilsu-
gæslu höfuð-
borgarsvæðisins
til fimm ára.
Óskar er sér-
fræðingur í
heimilislækningum og hefur lokið
meistaragráðu í stjórnun heilbrigð-
isþjónustu. Hann hefur starfað sem
læknir og stjórnandi í heilbrigð-
isþjónustunni á landsbyggðinni,
Landspítalanum, Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins og í velferð-
arráðuneytinu.
Svandís skipar Ósk-
ar í starf forstjóra
Óskar
Reykdalsson
Hagnaður RARIK-samstæðunnar á
síðasta ári var 2,7 milljarðar króna
sem er um 11% meiri hagnaður en á
árinu 2017 þegar hann nam 2,5
milljörðum. Þetta kom fram á aðal-
fundi félagsins í gær en þar var
ákveðið að greiða 310 milljónir
króna í arð til ríkisins.
Rekstrartekjur jukust um 12%
frá árinu 2017 og voru um 16,6
milljarðar króna en rekstrargjöld
hækkuðu um 10% og námu 13 millj-
örðum. Heildareignir í árslok 2018
voru 66 milljarðar króna og jukust
um 7,5 milljarða á milli ára. Eigið fé
samstæðunnar í árslok 2018 nam
41,1 milljarði króna og er eiginfjár-
hlutfallið 62,4%.
RARIK greiðir 310
milljónir króna í arð
„Veggjöld hafa í
sjálfu sér aldrei
verið markmið
mitt heldur að
byggja upp vega-
kerfið. Æskilegt
er að nýta arð-
greiðslur Lands-
virkjunar og
bankanna til að
fjármagna sam-
göngufram-
kvæmdir enda er sú leið hagkvæm-
ari fyrir ríkið en annað vegna lægri
fjármagnskostnaðar.“ Þetta sagði
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra í
ávarpi sínu á ársþingi Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sem haldið var
í gær. Samvinnuverkefni geti hentað
vel í stórum skilgreindum nýfram-
kvæmdum.
„Það er verkefni stjórnmálanna að
finna leiðir að markmiði,“ sagði Sig-
urður Ingi. Hann tiltók að fjárveit-
ingar til vegamála yrðu auknar mik-
ið á næstu árum. Leiðarstefið væri
samgönguáætlun og svo fjármála-
áætlun sú sem gildir 2020-2024 sem
kynnt var um sl. helgi. Fjárfestingar
í samgöngumálum á því tímabili yrðu
um 120 milljarðar króna.
Meðal framkvæmda sem unnið
verður að á tímabilinu eru Vest-
fjarðavegur um Gufudalssveit og
breikkun Reykjanesbrautar og Suð-
urlandsvegar. „Þessi fjárfesting
kemur á góðum tíma, þegar svo kann
að vera að eitthvað sé að hægjast um
í hagkerfinu,“ sagði ráðherrann.
Veggjöld eru ekki
sjálfstætt markmið
120 ma. kr. í vegina næstu fimm ár
Sigurður Ingi
Jóhannsson