Morgunblaðið - 30.03.2019, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
Hártískan snýst í hringi eins og annað í lífinu og nú vilja flestirvera snöggklipptir. Sá stíll er svipaður og var í kringum 1980þegar ég var að byrja í bransanum,“ segir Gauti Torfason, rak-
ari í Kópavogi, sem verður61 árs á morgun, sunnudag. „Á afmælisdag-
inn stendur til að skreppa í fermingarveislu hjá ungum frænda mínum;
hitta ættingja og vini sem ég hef suma ekki hitt lengi. Það verður
skemmtilegt.“
Gauti á allar sínar rætur að rekja í Kópavoginn og ólst þar upp, sonur
Önnu Marín Kristjánsdóttur og Torfa Guðbjörnssonar rakara. „Það
kom eiginlega af sjálfu sér að ég færi í rakaraiðnina og ynni hjá föður
mínum heitnum og síðan eru liðin 40 ár. Herramenn heitir rakarastofan
og var við Neðstutröð fram undir jól 2017, að við fluttum í Hamraborg-
ina. Þar erum við nú í rúmgóðu húsnæði og mikið að gera. Við eigum
fjölda traustra viðskiptavina og hluti af starfi rakarans er að leysa með
þeim lífsgátuna og vandamál dagsins. Mannleg samskipti og sálfræði
eru stór þáttur í starfi rakarans.“
Utan starfsins á Gauti mörg áhugamál. Hann hefur lengi verið virkur
í starfi skátahreyfingarinnar og tekið þátt í óteljandi mótum, útilegum
og ævintýrum. Hefur þó heldur hægara um sig þar nú – en er tekinn við
því hlutverki að safna saman ýmsum munum og myndum úr skátastarfi.
„Svo finnst mér alltaf gaman að taka ljósmyndir, hvort heldur er af
fólki og náttúru landsins. Myndavélin hefur fylgt mér síðan á unglings-
árum, segir Gauti sem er kvæntur Kristínu Angantýsdóttur bókhald-
ara. Þau eiga fjögur börn og yngst þeirra er Andri Týr sem einnig er
rakari og meðeigandi að Herramönnum sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rakari Leysi lífsgátuna með viðskiptavinum, segir Gauti í viðtalinu.
Klippir í Kópavogi
Gauti Torfason verður 61 árs á morgun
B
jörgvin Þórðarson fædd-
ist 30. mars 1934 á Suð-
ureyri við Súganda-
fjörð. Hann var í sveit á
Höfða í Dýrafirði hjá
þeim Sighvati Jónssyni og Sigríði
Jónsdóttur. Einnig var hann í sveit-
ardvöl í Minni-Hattardal í Álftafirði.
Björgvin lauk námi í grunnskóla
Suðureyrar og stundaði svo iðnnám í
Iðnskólanum í Reykjavík þaðan sem
hann lauk námi í rafvirkjun.
Björgvin fluttist ríflega tvítugur til
Flateyrar þar sem hann hóf nám í
rafvirkjun hjá Magnúsi Konráðssyni
rafvirkjameistara. Björgvin bjó og
starfaði lengst af sem rafverktaki á
Flateyri og tók þar þátt í uppbygg-
ingu samfélagsins á miklum upp-
gangstímum. Hann var virkur félagi
í Leikfélagi Flateyrar og söng með
kirkjukórnum um árabil. Hann sat í
stjórn frystihússins Hjálms hf. um
árabil með þeim Einari Oddi Krist-
jánssyni, Jóni Gunnari Stefánssyni,
Lárusi Guðmundssyni, Hirti Jóns-
syni, Gunnlaugi Kristjánssyni og
Jóni Guðbjartarsyni. Björgvin hefur
verið félagi í Frímúrarareglunni frá
árinu 1971 og tekið þátt í ýmsum fé-
lagsstörfum á Flateyri.
Björgvin var áberandi í karlakóra-
menningunni á norðanverðum Vest-
fjörðum og söng oftsinnis einsöng á
tónleikum en hann sendi jafnframt
frá sér eina einsöngslagaplötu.
Björgvin söng með fjölda karlakóra
sem störfuðu á svæðinu, þeirra á
meðal voru Karlakór Ísafjarðar og
Karlakórinn Ægir í Bolungarvík
(sem sameinuðust í karlakórinn
Erni) og Karlakór Þingeyrar. Með
þeim kórum söng hann margsinnis
einsöng á tónleikum og söng-
ferðalögum víða innanlands og er-
lendis, s.s. í Wales, Finnlandi,
Færeyjum og Rússlandi.
Björgvin fór í söngferðalag með
Karlakórnum Þröstum í Hafnarfirði
til Austurríkis, Þýskalands og Ítalíu
árið 1987 en þar söng hann einsöng
með kórnum, en í ferðinni var einnig
Kristinn Sigmundsson sem var aðal-
einsöngvari kórsins.
Í tilefni sextíu ára afmælis Björg-
vins vorið 1994 sendi hann frá sér
plötu sem bar titilinn Björgvin Þórð-
arson tenór en hún hafði að geyma
tuttugu og tvö einsöngslög úr
Björgvin Þórðarson rafvirkjameistari – 85 ára
Í Önundarfirði Björgvin að fara á sjóstöng í ágúst 2017 á bát sem hann á með sonum sínum og heitir Vinur.
Ennþá syngjandi
Sælleg Dagrún og Björgvin.
Akranes Valur Berg
Brekason fæddist 27.
júlí 2018 kl. 0.58. Hann
vó 3.850 g og var 52 cm
langur. Foreldrar hans
eru Rósa María Sig-
urgeirsdóttir og Breki
Berg Guðmundsson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Eplaedik hefur verið notað sem heilsubótarefni í aldaraðir,
bæði sem forvörn sem og vegna læknandi eiginleika.
Auk eplaediks innheldur Apple Cider ætiþistil, túnfífil og
kólín sem getur elft meltinguna, haft góð áhrif á lifrina
og leitt til eðlilegs niðurbrots á fitu.
Svo er króm sem er gott fyrir blóðsykursjafnvægið
og slær þannig á sykurlöngun.
Eplaedik
– lífsins elexír
• Hreinsandi • Vatnslosandi • Gott fyrir meltinguna • Getur lækkað blóðsykur
• Getur dregið úr slímmyndun • Gott fyrir þvagblöðru, lifur og nýru.
Aðeins ein tafla á dag og ekkert bragð! Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.