Morgunblaðið - 30.03.2019, Blaðsíða 17
Morgunblaðið/Ómar
Kaupmannahöfn Stór hluti Íslendinga sem búa erlendis er í Danmörku.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Alls voru 47.278 íslenskir ríkisborg-
arar með skráða búsetu erlendis hinn
1. desember síðastliðinn.
Þetta kemur fram í yfirliti sem
Þjóðskrá Íslands gaf út í síðustu
viku.
Flestir Íslendingar voru búsettir í
Danmörku eða alls 10.952 ein-
staklingar, 9.501 var búsettur í Nor-
egi og 8.705 í Svíþjóð. Þar á eftir voru
flestir búsettir í Bandaríkjunum, eða
6.492, og 2.406 í Bretlandi. Í kjölfarið
kemur Þýskaland með 1.665 Íslend-
inga og á Spáni voru 699 Íslendingar
með búsetu.
Pólverjar í miklum meirihluta
Í riti Þjóðskrár er einnig að finna
upplýsingar um erlenda ríkisborgara
búsetta á Íslandi. Pólverjar eru í
miklum meirihluta hér á landi en alls
voru 19.190 Pólverjar skráðir með
búsetu á Íslandi 1. desember sl.
Litháar koma þar á eftir, 4.094. Alls
var 1.851 Letti með búsetu hérlendis,
1.509 Rúmenar og 1.289 Þjóðverjar.
Þótt vel yfir 10 þúsund Íslendingar
búi í Danmörku vekur athygli að ein-
ungis 930 Danir eru með skráða bú-
setu á Íslandi. Það eru ögn fleiri Dan-
ir en Spánverjar hérlendis en alls eru
923 Spánverjar með búsetu hér á
landi.
Tugþúsundir búa erlendis
Flestir í Danmörku Um 19 þúsund Pólverjar á Íslandi
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
Sjálfseignarstofnunin Skógarbær,
sem á og rekur samnefnt hjúkr-
unarheimili við Árskóga í Reykjavík,
hefur undirritað samning við Sjó-
mannadagsráð, eiganda Hrafnistu,
um að Hrafnista taki formlega við
rekstri hjúkrunarheimilisins þann 2.
maí næstkomandi. Rekstur og
skuldbindingar starfseminnar munu
áfram hvíla hjá Skógarbæ, en
Hrafnista tekur yfir stjórn og rekst-
ur hjúkrunarheimilisins.
Haldnir hafa verið kynning-
arfundir fyrir starfsfólk, heimilisfólk
og aðstandendur vegna breyting-
anna þar sem starfsemi og hug-
myndafræði Hrafnistu hefur verið
kynnt, að því er segir í tilkynningu.
„Mannauðsstefna Hrafnistu mun
gilda í Skógarbæ líkt og á öðrum
Hrafnistuheimilum og engin breyt-
ing verður á ráðningarsambandi við
starfsfólk sem áfram verður við
Skógarbæ,“ segir ennfremur í
fréttatilkynningu en á samningstím-
anum, til ársloka 2020, verður
Hrafnista Skógarbæ sjálfstæður
hluti rekstrarsamstæðu Sjó-
mannadagsráðs.
Í samningnum felst einnig nýting
og rekstur á hluta af húsnæði fé-
lagsmiðstöðvarinnar Árskóga sem
samtengd er hjúkrunarheimilinu og
rekin er af Reykjavíkurborg að
hluta. Við lok núgildandi samnings-
tíma endurnýjast samningurinn
sjálfkrafa til tveggja ára í senn þar
til nýr samningur hefur verið und-
irritaður eða honum sagt upp með
samningsbundnum fyrirvara.
Skógarbær Hrafnista hefur tekið við rekstri hjúkrunarheimilisins.
Hrafnista tekur yfir
rekstur í Skógarbæ
Sjálfstæður hluti Sjómannadagsráðs
„Ég bind vonir við að framlag okk-
ar til Matvælaáætlunar Sameinuðu
þjóðanna hafi verulega þýðingu
fyrir þá sem verst hafa orðið úti,“
segir Guðlaugur Þór Þórðarson ut-
anríkisráðherra.
Tilkynnt var í gær að utanrík-
isráðuneytið hefði ákveðið leggja
fram 200 þúsund Bandaríkjadali,
um 25 milljónir króna, til björg-
unarstarfa á hamfarasvæðunum í
Mósambík og Malaví. Verður Mat-
vælaáætlun Sameinuðu þjóðanna
falið að ráðstafa fénu.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu gekk fellibylurinn
Idai yfir sunnanverða Afríku á
dögunum. Ofsaflóð hafa fylgt í
kjölfarið og óttast er að yfir eitt
þúsund íbúar hafi látist. „Eyði-
leggingin af völdum fellibylsins
Idai er meiri en orð fá lýst og íbú-
ar hamfarasvæðanna hafa liðið
ómældar þjáningar. Við getum
ekki staðið aðgerðalaus hjá slíkum
hörmungum heldur ber okkur sið-
ferðisleg skylda til að hjálpa þeim
sem um sárt eiga binda, ekki síst í
ljósi þess að um samstarfsríki Ís-
lands til margra ára er að ræða,“
er haft eftir Guðlaugi Þór í til-
kynningu.
Morgunblaðið ræddi í gær við
Róbert Þorsteinsson sem starfar á
vegum Rauða krossins á Íslandi í
Malaví. Stefnt er að því að fleiri
Íslendingar verði sendir á staðinn.
Sþ hafa óskað eftir 35 milljarða
króna framlagi til uppbyggingar-
starfs í Mósambík næstu þrjú árin.
„Getum ekki staðið
aðgerðalaus hjá“
25 milljónir til
hamfarasvæðanna
AFP
Mósambík Þúsundir hafa glatað
lífsviðurværi sínu vegna hamfara.
Fagurfræði
hinna hversdagslegu hluta
IkonsC
Hönnuður: KnudHolscher
Satínáferð, ryðfrítt stál
16 og 19mm, fyrir þýskar skrár
ogASSA/Boda skrár
d line FF
Hönnuður: KnudHolscher
Satínáferð, ryðfrítt stál
19mm, fyrir þýskar skrár
ogASSA/Boda skrár
d line hurðarhúnarnir
eru sígild dæmi um
glæsilega hönnunþar
semhvergi er gefið eftir
í útliti og efnisvali.
Fagurfræði í fullkominni
sáttviðnotagildi,
óaðskiljanlegur hluti
hversdagsins.
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
Blásalir 22
201 KÓPAVOGUR
LIND fasteignasala og Jón G.
Sandholt jr. kynna í einkasölu glæsi-
lega útsýnisíbúð á tíundu hæð. Mjög
gott útsýni er úr eigninni m.a. að
Esjunni, Snæfellsjökli og Keili.
Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni.
STÆRÐ: 125,2 fm
FJÖLDI HERBERGJA: 3-4
52.900.000
Heyrumst
Jón G. Sandholt jr.
Sölufulltrúi
Í námi til lögg.fasteignasala
777 2288
jon@fastlind.is
Heyrumst
Eva Hlín Guðjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
510 7900
eva@fastlind.is
OPIÐ HÚS 31. mars 13:00 – 13:30
Frítekjumark námsmanna hækkar
um 43% og fer úr 930 þúsund kr. á
ári í 1.330 þúsund samkvæmt nýj-
um úthlutunarreglum Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna fyrir námsárið
2019-2020. Hækkun þessi kemur til
móts við óskir námsmanna sem
bent hafa á að frítekjumarkið hafi
ekki verið hækkað í takt við verð-
lagsbreytingar og launahækkanir
síðan árið 2014, að því er fram kem-
ur á vef menntamálaráðuneytisins.
Umfangsmikil kerfisbreyting á
fyrirkomulagi Lánasjóðs íslenskra
námsmanna er í farvatninu og boð-
ar ráðuneytið að nýtt frumvarp um
sjóðinn verði lagt fram á Alþingi í
haust. Þar verður námsstyrkur rík-
isins gerður gagnsærri og jafnræði
námsmanna aukið. Mun hinu nýja
kerfi þannig svipa meira til nor-
rænna námsstyrkjakerfa. Stefnt er
að því að nýtt stuðningskerfi taki
gildi haustið 2020. Áfram verða
veitt lán á hagstæðum kjörum en til
viðbótar koma beinir styrkir vegna
framfærslu barna og möguleiki á
niðurfellingu hluta lána.
Frítekjumark námsmanna vegna lána
hækkar í 1.330 þúsund krónur í haust