Hugrún - 01.08.1923, Page 14

Hugrún - 01.08.1923, Page 14
12 andi hræ, sundurgrafið af graftrarmeinurn, — flakandi í við- bjóðslegum ýldusárum. — Mér fanst andrúmsloftið eitrað af þvílíku dauðasári á iífinu, — óg allar augnablikstnytidir liðnu tímanna urðu að glottandi djöflutn, er ægðu mér út úr hverjum dimmum krók. — — — Ég Ieit yfir hafið, lygnt, tært, dökt og djúpt í rökkurkyrðinni. — En meðfram skipshliðinni beljaði hvítur hrannafoss og hvað aflstyrkvan hrynjanda. — Raddir hafsins efldu seið í djúpinu tnikia. Mjalihvítur hrannafossinn hló og ærslaðist meðfram kinnungunum.................................. . . . . . Ég sá það voru flokkar af indælum ærslagjörnum haf- meyjurti í hvítum flaksandi klæðum nreð blá-blikandi augu, blárri dekkri og dýpri en djúpið. Hundruðum saman stigu þær úr djúpi blámans — faðmi kyrðarinnar, hióu silfurskærum óminnishlátrum og þutu með tryltum ærslum umhverfis hið stynjandi gufudýr, er brunaði gegnum lygnsævið og raskaði ró gamla sævarkonungs- ins, er genginn var til hvíldar á hafbeði sínum. Svo liðu þær hlæjandi niður í djúpið og nýjar stigu upp. Og Iangt niður í djúpinu sá ég glampa á turna æfintýra- hallanna, þar sem hafmeyjarnar léku í. — En dansinn umhverfis friðrofann varð viltari og viltari. Pær þeyttu úðakossum upp til mín og bláu augun seyddu — komdu! — komdu! . . . . Ég vissi að í faðmi rökkurs og blálygnu fengi ég hvíld. — Mýkri sæng í faðmi tnarardökkvans, en voriarríkustu æfintýri bernskunnar höfðu hvíslandi heitið mér, og litlu hvítu hafmeyj- urnar mundu þeyta yfir mig eilífurn og óteljandi úðakossum,— varpa tárblómum yfir tnig meðan ég svæfi svefninum langa. . . .........Og eg þysfti aðeins að teygja inigút yfir borðstokk- inn og detta, — detta. Langt, — langt niður í djúpinu söng einhver æfintýragyðjan ástaróð sinn: — — Komdu! — Komdu! — —

x

Hugrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugrún
https://timarit.is/publication/1335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.