Hugrún


Hugrún - 01.08.1923, Qupperneq 24

Hugrún - 01.08.1923, Qupperneq 24
22 stend ég altaf upp á ný og í mig helii. Annar maður, er oft drakk ákaflega dögum saman, vaknaði einn morgun ódrukkinn og tók að athuga reikninga sina eftir »túrinn.« Kvað hann þá stökur þessar: Ekki er mér í inni rótt eins og gefur skilja. Freistingarnar oft og ótt af mér taka vilja. Syndagjöldin sífelt þó svörum uppi halda. Mér er orðin um og ó allar skuldir gjalda. í stórhríðarbyl leit maður nokkur út um glngga og kvað: Yfir hæð og daladrög dimmir hræðilega. Raula ég kvæða raunalög, rökkrið fæðir trega. Nokkrir menn voru eitt sinn að hallmæla kvenfólki því, er reykult væri í ástamálum. Kváðu sumir, að slikar konur væru eigi hæfar í hjónabandi, þó þær væru bæði íríðar og gáfaðar; væru jafnvel betri ófríðar, gamlar og einfaldar, væru þær aðeins dygðugar. Mælti þá einn, er viðstaddur var: Síst er engill sérhver drós, svallið margar kjósa, en heldur þigg ég þyrna’ í rós, en þyrna utan rósa.

x

Hugrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugrún
https://timarit.is/publication/1335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.