Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Síða 14
14 PRESSAN 1. mars 2019
B
retar hafa í hyggju að nota
Brexit til að opna nýja flota
stöð í Singapúr eða Brúnei.
Þetta á að vera stökkpall
ur þeirra inn á alþjóðavett
vanginn á nýjan leik.
Þetta er að minnsta
kosti sýn og
draumur Gavins
Williamson,
varnarmálaráð
herra Bret
lands, en hann
viðraði þetta
í viðtali við
The Sunday
Telegraph
um ára
mótin. Í við
talinu ræddi
hann um tvær
nýja breskar
flotastöðv
ar sem hann telur að geti orðið
að veruleika. Önnur á að vera í
Karíba hafinu og hin í Suðaustur
Asíu.
Gullkista eða hlægilegir órar?
Í Karíbahafinu koma margir
staðir til greina en í
SuðausturAsíu
stendur valið á
milli Brúnei
og Singapúr.
Mörg
um þyk
ir blasa við
að Singapúr
verði fyrir
valinu og
taki við
gömlu
hlutverki
sínu á nýj
an leik, að
vera járnhnefi
breska heims
veldisins í Aust
urlöndum. Hug
myndir Williamson
hafa fengið blendnar
móttökur. Sumir telja þær stuðn
ing við stefnu Donalds Trump
Bandaríkjaforseta gagnvart Kína í
þessum heimshluta, aðrir telja að
hér sé einfaldlega um hlægilega
heimsveldisdrauma Breta að ræða
sjötíu árum eftir endalok heims
veldisstefnu þeirra í Asíu. Enn aðr
ir telja hér um hlægilega draum
óra að ræða sem séu ekki í neinum
takti við raunveruleikann. Enn
aðrir sjá allt annað í þessu og telja
að hér sé hægt að opna einhvers
konar gullkistu fjárhagslega séð.
Williamson sagði að Brexit væri
stærsta stundin í sögu Breta síðan
síðari heimsstyrjöldinni lauk.
„Þetta er augnablikið þar sem
við getum enn á ný orðið áhrifa
valdur á heimsvísu og ég tel her
okkar mjög mikilvægan hluta á því
sviði.“
Hann sagði hugmyndirnar um
flotastöðvarnar vera lið í tilburð
um Breta til að verða „sannur þátt
takandi á alþjóðavettvangi, með
því að styrkja hlutverk landsins á
alþjóðavettvangi eftir útgönguna
úr ESB. Hann sagði einnig að nýju
flotastöðvarnar muni sýna að mik
il stefnubreyting hafi orðið og nú
gildi Austan við Súesstefnan ekki
lengur, en í henni fólst að í lok sjö
unda áratugarins ákváðu Bretar
að loka öllum herstöðvum sínum
í SuðausturAsíu og við Persaflóa.
„Við viljum að það sé alveg skýrt
að sú stefna heyrir sögunni til og
að StóraBretland er á nýjan leik
orðið alþjóðleg þjóð.“
Bretar brugðust sem verndarar
Flotastöðin í Singapúr var mikil
vægasti hlekkur Breska heims
veldisins fram að síðari heims
styrjöldinni. Þegar Japanir
hernámu Singapúr í febrúar 1942
var það ekki aðeins áfall fyrir Breta
heldur einn af mikilvægustu at
burðum stríðsins. Hernámið
markaði einnig endalok Bretlands
sem nýlenduþjóðar í Asíu. Win
ston Churchill forsætisráðherra
sagði hernámið hafa verið mestu
hörmungina í breskri hernaðar
sögu. Traust fólks á Bretlandi sem
verndara Singapúr hvarf ásamt
virðingunni. Tugir þúsunda Kín
verja og hermanna Bandamanna
voru drepnir af Japönum eða
sendir til Búrma. Það var ekki fyrr
en 1959 að Singapúr fékk einhvers
konar sjálfstjórn og landið varð
ekki sjálfstætt ríki fyrr en 1965 eft
ir að hafa gengið í ríkjasambandið
Malasíu um hríð. Þá skall næsta
áfallið á þessu litla landi því Bret
ar tilkynntu um lokun flotastöðv
ar sinnar.
Á þessum tíma var Singapúr
bláfátækt land. Fjórðungur efna
hagslífsins byggðist á flotastöð
inni og umsvifum tengdum henni.
Bretar höfðu lofað Lee Kuan Yew
forsætisráðherra því 1965 að þeir
myndu ekki loka stöðinni. Hann
nýtti sér þessi svik til að tryggja
landinu háar fjárhæðir í bætur
frá Bretum og fékk þá til að skilja
stöðina eftir í heilu lagi en venjan
er sú að herstöðvar séu eyðilagðar
þegar þeim er lokað.
Þessu nýja útspili Breta hefur
verið tekið með ró í Suðaustur
Asíu. Flestir stjórnmálaskýrendur
og stjórnmálamenn eiga erfitt
með að sjá fyrir sér að þetta gangi
upp hjá Bretum þrátt fyrir að her
stöð í Singapúr myndi falla vel inn
í þá keðju breskra herstöðva sem
eru á Kýpur, Falklandseyjum, Gí
braltar og Diego Garcia í Ind
landshafi. Flotastöðvar í Asíu og
Karíbahafinu myndu endurvekja
alþjóðlega uppbyggingu og stað
setningu breska hersins eins og
á heimsvaldatíma hans. En fyrst
þarf að ljúka Brexit og sjá hvernig
útgangan tekst.
Kínverjar láta lítið fyrir sér fara
í þessari umræðu en nokkrir kín
verskir álitsgjafar segja þetta þó
vera ögrun. n
• Bókhald
• Afstemmingar
• Ársreikningar
BÓKHALD
• Launavinnsla
• Árshlutauppgjör
• Virðisaukaskattsskil
3 SKREF
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
ÞARABAKKA 3
S. 578 6800
vakna á nýjan leik hjá Bretum
Hyggjast auka umsvif sín utan Evrópu með nýjum flotastöðvum
„Stóra-Bretland
er á nýjan leik
orðið alþjóðleg þjóð
Breski flotinn Eitt sinn sá voldugasti í heimi.
Gavin Williamson Varnar-
málaráðherra Bretlands.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is