Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 14
14 PRESSAN 1. mars 2019 B retar hafa í hyggju að nota Brexit til að opna nýja flota­ stöð í Singapúr eða Brúnei. Þetta á að vera stökkpall­ ur þeirra inn á alþjóðavett­ vanginn á nýjan leik. Þetta er að minnsta kosti sýn og draumur Gavins Williamson, varnarmálaráð­ herra Bret­ lands, en hann viðraði þetta í viðtali við The Sunday Telegraph um ára­ mótin. Í við­ talinu ræddi hann um tvær nýja breskar flotastöðv­ ar sem hann telur að geti orðið að veruleika. Önnur á að vera í Karíba hafinu og hin í Suðaustur­ Asíu. Gullkista eða hlægilegir órar? Í Karíbahafinu koma margir staðir til greina en í Suðaustur­Asíu stendur valið á milli Brúnei og Singapúr. Mörg­ um þyk­ ir blasa við að Singapúr verði fyrir valinu og taki við gömlu hlutverki sínu á nýj­ an leik, að vera járnhnefi breska heims­ veldisins í Aust­ urlöndum. Hug­ myndir Williamson hafa fengið blendnar móttökur. Sumir telja þær stuðn­ ing við stefnu Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart Kína í þessum heimshluta, aðrir telja að hér sé einfaldlega um hlægilega heimsveldisdrauma Breta að ræða sjötíu árum eftir endalok heims­ veldisstefnu þeirra í Asíu. Enn aðr­ ir telja hér um hlægilega draum­ óra að ræða sem séu ekki í neinum takti við raunveruleikann. Enn aðrir sjá allt annað í þessu og telja að hér sé hægt að opna einhvers konar gullkistu fjárhagslega séð. Williamson sagði að Brexit væri stærsta stundin í sögu Breta síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk. „Þetta er augnablikið þar sem við getum enn á ný orðið áhrifa­ valdur á heimsvísu og ég tel her okkar mjög mikilvægan hluta á því sviði.“ Hann sagði hugmyndirnar um flotastöðvarnar vera lið í tilburð­ um Breta til að verða „sannur þátt­ takandi á alþjóðavettvangi, með því að styrkja hlutverk landsins á alþjóðavettvangi eftir útgönguna úr ESB. Hann sagði einnig að nýju flotastöðvarnar muni sýna að mik­ il stefnubreyting hafi orðið og nú gildi Austan við Súes­stefnan ekki lengur, en í henni fólst að í lok sjö­ unda áratugarins ákváðu Bretar að loka öllum herstöðvum sínum í Suðaustur­Asíu og við Persaflóa. „Við viljum að það sé alveg skýrt að sú stefna heyrir sögunni til og að Stóra­Bretland er á nýjan leik orðið alþjóðleg þjóð.“ Bretar brugðust sem verndarar Flotastöðin í Singapúr var mikil­ vægasti hlekkur Breska heims­ veldisins fram að síðari heims­ styrjöldinni. Þegar Japanir hernámu Singapúr í febrúar 1942 var það ekki aðeins áfall fyrir Breta heldur einn af mikilvægustu at­ burðum stríðsins. Hernámið markaði einnig endalok Bretlands sem nýlenduþjóðar í Asíu. Win­ ston Churchill forsætisráðherra sagði hernámið hafa verið mestu hörmungina í breskri hernaðar­ sögu. Traust fólks á Bretlandi sem verndara Singapúr hvarf ásamt virðingunni. Tugir þúsunda Kín­ verja og hermanna Bandamanna voru drepnir af Japönum eða sendir til Búrma. Það var ekki fyrr en 1959 að Singapúr fékk einhvers konar sjálfstjórn og landið varð ekki sjálfstætt ríki fyrr en 1965 eft­ ir að hafa gengið í ríkjasambandið Malasíu um hríð. Þá skall næsta áfallið á þessu litla landi því Bret­ ar tilkynntu um lokun flotastöðv­ ar sinnar. Á þessum tíma var Singapúr bláfátækt land. Fjórðungur efna­ hagslífsins byggðist á flotastöð­ inni og umsvifum tengdum henni. Bretar höfðu lofað Lee Kuan Yew forsætisráðherra því 1965 að þeir myndu ekki loka stöðinni. Hann nýtti sér þessi svik til að tryggja landinu háar fjárhæðir í bætur frá Bretum og fékk þá til að skilja stöðina eftir í heilu lagi en venjan er sú að herstöðvar séu eyðilagðar þegar þeim er lokað. Þessu nýja útspili Breta hefur verið tekið með ró í Suðaustur­ Asíu. Flestir stjórnmálaskýrendur og stjórnmálamenn eiga erfitt með að sjá fyrir sér að þetta gangi upp hjá Bretum þrátt fyrir að her­ stöð í Singapúr myndi falla vel inn í þá keðju breskra herstöðva sem eru á Kýpur, Falklandseyjum, Gí­ braltar og Diego Garcia í Ind­ landshafi. Flotastöðvar í Asíu og Karíbahafinu myndu endurvekja alþjóðlega uppbyggingu og stað­ setningu breska hersins eins og á heimsvaldatíma hans. En fyrst þarf að ljúka Brexit og sjá hvernig útgangan tekst. Kínverjar láta lítið fyrir sér fara í þessari umræðu en nokkrir kín­ verskir álitsgjafar segja þetta þó vera ögrun. n • Bókhald • Afstemmingar • Ársreikningar BÓKHALD • Launavinnsla • Árshlutauppgjör • Virðisaukaskattsskil 3 SKREF BÓKHALDSÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR ÞARABAKKA 3 S. 578 6800 vakna á nýjan leik hjá Bretum Hyggjast auka umsvif sín utan Evrópu með nýjum flotastöðvum „Stóra-Bretland er á nýjan leik orðið alþjóðleg þjóð Breski flotinn Eitt sinn sá voldugasti í heimi. Gavin Williamson Varnar- málaráðherra Bretlands. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.