Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Qupperneq 24
24 FÓKUS 1. mars 2019
Sjáðu úrvalið á goddi.is
Sauna- og gistitunnur GODDI.ISAuðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550
Sauna- og
gistitunnur ásamt
viðarkyntum pottum
Sjáðu úrvalið
á goddi.is
Margar gerðir
Eigum fjórar stærðir af lokum á
lager í gráum og brúnum litum
Verð aðeins 58.500 kr.
þetta þá gæti ég það líka. Af hverju
ekki ég?“
Erlenda keppnistímabilið byrjar
Margrét keppti í Arnold Amateur í
lok febrúar 2012. „Ég var í flokki með
40 öðrum stelpum. Ég ætlaði bara
að gera mitt besta. Ég komst í topp
fimmtán, svo topp tíu og að lokum
topp fimm. Þá ákvað ég að ég ætl
aði að vera í efstu þremur sætunum.
En ég lenti í fjórða sæti sem var svo
mikill skellur. Ég var miður mín en
það var vegna þess að ég hafði sett
mér svo óraunhæf markmið. Auð
vitað er það eina sem maður gert, að
gera sitt besta,“ segir Margrét.
„Það var sagt við mig að mér
myndi ganga betur ef ég væri
skornari. Mér fannst það kveikja
á átröskun minni. Ég fór að fylgja
matarplönum betur, samt var ég
alltaf að passa mig að fara ekki í
öfgarnar. Ég hafði séð matarplön
in hjá öðrum fitnessstelpum og þær
voru að borða miklu minna en ég.
Ég hugsaði að ef þær gætu þetta
þá gæti ég það líka. Með árunum
varð ég sífellt strangari og strangari
á mataræðið og æfingarnar. Ég var
alltaf að fá þau skilaboð að ég þyrfti
að vera skornari.“
Hrædd við stefnuna sem hún
var að taka
Margrét var hrædd við stefnuna
sem hún var að taka og tók sér
pásu eitt sumarið. Hún sneri aftur
í taekwondo og um tíma flakkaði
hún á milli íþróttagreinanna og
náði eftirtektarverðum árangri í
báðum greinum.
Eftir að hafa landað nokkrum
titlum ákvað Margrét að undirbúa
sig af krafti undir heimsmeistara
mótið ásamt þjálfara sínum, Jó
hanni Norðfjörð. „Þetta var örugg
lega þægilegasti niðurskurður sem
ég hef farið í gegnum. Venjulega
tók ég sex til átta vikur í niðurskurð
en í þetta skiptið tók ég tólf vikur
því ég borðaði meira og var með
meira jafnvægi þennan tíma. Æf
ingarnar tóku aðeins klukkutíma
á dag. Líkaminn minn var mjög
hrifinn af þessu. Ég komst í mitt
besta form.“
Það sannaðist heldur betur
þegar Margrét var krýnd
heimsmeistari í greininni. Hún
var þá orðin atvinnumaður og fékk
IFBB Proskírteinið sitt. Draumur
inn hafði ræst.
Stór mistök að taka ekki pásu
Fljótlega fór þó að síga á
ógæfuhliðina. Þjálfarinn vildi að
hún tæki sér hlé frá æfingum en
framundan var eitt stærsta mót
ársins, Arnold Classicmótið, og
Margrét tók það ekki í mál.
Hún fékk boðskort á mótið og
hélt áfram að keppa. Hún segir það
hafa verið stór mistök. Fljótlega fór
hún að breyta um stefnu og hugar
farið breyttist. „Ég fór að verða stíf
ari með mataræðið, borða minna
og taka morgunbrennsluæfingu á
hverjum degi. Þarna bankaði þrá
hyggjan aftur upp á.“
Margrét keppti á Arnold Classic
og tók þátt í annarri keppni. Hún
fann að í óefni stefndi og því tók
hún keppnispásu í eitt og hálft ár
til að huga að heilsunni.
Var alltaf í keppnisformi í
hléinu
Margrét leyfði sér þó ekki að slaka
á. Hún er með mjög vinsælan
Instagramaðgang og hefur lengi
verið virk á samfélagsmiðlum.
„Ég var alltaf að deila myndum
af mér í keppnisformi. Mig lang
aði að vera hvatning fyrir aðra og
mér fannst svo mikil pressa að líta
alltaf geðveikt vel út. Í þetta eina
og hálfa ár var ég alltaf í þessu
sveltisástandi, því ég var alltaf að
reyna að líta út eins nálægt keppn
isforminu mínu og ég gat. Ég leyfði
mér aldrei að sleppa alveg tökun
um og taka mér almennilega pásu.
Ég var kannski í pásu frá keppni en
ekki samfélagsmiðlum. Mig lang
aði að vera fullkomin,“ segir Mar
grét.
„Það sem ég var með kallast
orthorexia. Ég hafði aldrei áður
heyrt um það. Það er þegar þú
ert með rosalega mikla stjórn á
mataræði þínu. Þú ert ekki beint
að borða of lítið eða of mikið. Ég
var að reikna allar hitaeiningarnar
mínar og hlutföll á milli orkugjafa.
Ég hafði mikinn áhuga á vísindun
um á bak við næringarfræði og var
heltekin af því.“
Strax aftur í ruglið
Margrét ákvað að keppa í byrjun
2016 og byrjaði því í niðurskurði í
lok 2015. „Ég fór einhvern veginn
strax aftur í ruglið. Ég byrjaði að
brenna í 80 mínútur í senn og
borða mikið minna,“ segir Margrét.
„Á þessum tíma vann ég fyrsta
atvinnumótið mitt, sem ég er mjög
stolt af en samt var þetta einn erf
iðasti niðurskurður sem ég hef far
ið í gegnum. Ég fékk keppnisrétt á
Mister Olympia sem er stærsta og
virtasta fitnessmótið.“
Næstu ár voru sem rússí
banareið hjá Margréti. Hún vann
sigur á nokkrum atvinnumanna
mótum og var ofarlega í öðrum
mjög sterkum mótum. Hún var
uppgefin á sál og líkama, íhug
aði að taka sér langþráða hvíld en
alltaf var næsta verkefni of heill
andi. Sérstaklega árleg þátttaka í
Mister Olympia. Síðasta mótið sem
hún tók þátt í var Arnold Classic í
Ástralíu árið 2018 en þar lenti hún
í fjórða sæti.
„Eftir mótið var ég algjörlega
búin á því. Ég var gjörsamlega
búin að fá nóg. Ég vissi að ég þyrfti
að leyfa mér að bæta á mig og fá
breik. Ég var aftur komin með kal
íumskort og hjartsláttartruflanir og
var að taka klukkutíma brennslu
æfingar tvisvar á dag. Kalíum
skorturinn var meiri en áður, ég var
byrjuð að fá vöðvakippi og náladofa
við minnsta tilefni,“ segir Margrét.
Stuttu eftir átti Margrét að byrja
í niðurskurði fyrir Mister Olympia.
„Ég þurfti að ákveða hvort ég ætti
að taka enn eitt mótið eða hvíla
mig. Ég ákvað loksins að setja heils
una í fyrsta sæti. Í mörg ár hafði átt
átröskunartímabil og síðan verið í
bata kannski í þrjá mánuði, svo aft
ur átröskunartí abil. Samt, þegar
ég skoða þá mánuði sem ég á að
hafa verið í bata, þá var orthorexi
an við völd. Ég var alltaf að passa að
þyngjast ekki. En í maí í fyrra ákvað
ég að nú væri komið nóg og ég ætl
aði að leyfa mér að ná fullum bata.“
Margrét bætti á sig tíu kílóum
á tveimur mánuðum. „Ég lærði að
samþykkja mig í stærri líkama. Síð
an þá hef ég verið í góðum bata,“
segir Margrét brosandi.
Keppa á næsta ári?
Hún er þó hvergi nærri hætt í
íþróttinni sem hún hefur náð svo
góðum árangri í. Hún segir að það
fari eftir batanum hvenær hún
keppi næst, en stefnan sé sett á
næsta ár. Margréti langar að keppa
í módelfitness á næsta ári og þá á
Arnold Classicmótinu.
„Mér finnst ótrúlega gaman að
keppa. Ég hef alveg sýnt og sannað
að ég geti keppt. En þetta er svo
lítið eins og alkóhólisti sem vill
fara á skemmtistað. Maður þarf að
hafa góðan stuðning í kringum sig.
Ég vil hafa náð fullum bata í eitt og
hálft ár áður en ég mæti aftur til
leiks,“ segir Margrét. n
Hægt er að lesa viðtalið í heild
sinni á DV.is
„Ég fékk þessa hugmynd
um að ef ég myndi líta
öðruvísi út yrði ég samþykkt
MYND: HANNA/DV