Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Page 29
1. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Gott betra BEST
Hlöllabátar eru órjúfanlegur hluti af þjóðarsálinni enda er um að ræða einn elsta íslenska skyndibitastað landsins. „Þetta byrjaði allt fyrir um 30 árum í litlum skúr á Steindórsplani, en í dag er Hlöllabáta að
finna víðs vegar um landið,“ segir Elín Guðný Hlöðversdóttir, rekstrarstjóri
Hlöllabáta. „Við rekum fjóra Hlöllabátastaði á höfuðborgarsvæðinu.“ Þá eru
einnig Hlöllabátar á Akureyri og Selfossi.
Algert leyndarmál!
Hlöllabátar voru stofnaðir árið 1986 og var New York-bátur fyrsti báturinn og
í kjölfarið komu þrír aðrir bátar; Línubátur, Rifjabátur og Pinnabátur. Þetta
eru klassískir bátar sem bragð er að! „Allir okkar bátar eru með okkar eigin
Hlöllasósu og Hlöllakryddi. Þessi tvö hráefni; sósan og kryddið, eru hluti af því
sem gerir Hlöllabáta einstaka.“
36 bátar á matseðlinum
„Þessir fjórir bátar voru upphafið og síðan hefur bæst við fjöldi annarra á
matseðilinn. Í dag telur matseðillinn þrjátíu og sex báta með hinum ýmsu
áleggjum. Við höfum verið dugleg að bæta við listann en höfum ekki tek-
ið af honum. Þó svo það séu alltaf um tíu til fimmtán bátar sem eru hvað
vinsælastir, þá gætu einhverjir orðið svekktir ef uppáhaldsbáturinn þeirra yrði
tekinn af matseðlinum.“
Vinsæll skyndibiti
Á síðasta ári tók nýr eigendahópur við rekstrinum á fjórum Hlöllabátastöðum
á höfuðborgarsvæðinu. „Við erum í samstarfi við hina staðina. Reksturinn
hefur gengið vonum framar enda er stór hópur tryggra viðskiptavina og hefur
sá hópur farið stækkandi undanfarið ár. Við leggjum mikið upp úr gæðum,
hraða og góðu viðmóti starfsfólks sem er duglegt og ávallt tilbúið að gera vel.“
Með leyniuppskrift að vopni!
„Það eru ekki bara Íslendingar sem borða Hlöllabáta heldur hafa erlendir
ferðamenn einnig verið að komast á bragðið og margir sem koma hingað
aftur og aftur á meðan þeir eru á landinu, sem hefur verið okkur mikil
hvatning. Við erum ákaflega spennt með framhaldið og hvað varðar
framtíðina og viljum ávallt reyna að nýta reynslu dagsins í dag til að geta gert
betur á morgun,“ segir Elín.
Staðirnir okkar fjórir:
Smáralind, Hagasmári 1–3, 201 Kópavogur.
Atlantsolíuplanið, Sunnukrika 3, 270 Mosfellsbær.
Faxafen 9, 108 Reykjavík.
Bíldshöfði 5a, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar á Facebook:
Hlöllabátar, hinn eini sanni
Klassískur skyndibiti sem bragð er að!
Bíldshöfða 5a, 110 Reykjavík.Faxafen 9, 108 Reykjavík.
Smáralind, Hagasmára 1-3, 201 Kópavogur.
Atlantsolíuplaninu, Sunnukrika 3, 270
Mosfellsbæ.
Pinnabátur.
New York bátur. Sá upprunalegi!
Línubátur með skinku.
Netabátur.
HLÖLLABÁTAR: