Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 35
1. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Gott betra BEST
Rakabomba
„Við erum svo að taka inn nýja
maska sem við erum spenntar fyrir.
Þetta eru hyaluronic-sýru maskar
sem eru sérstaklega rakagefandi fyrir
húðina.
Í boði verður Lúxus demantshúð-
slípunarmeðferð með þessum mösk-
um og við höfum vægast sagt verið
mjög ánægðar með þessa samsetn-
ingu. Einnig verða maskarnir til sölu
hér á stofunni hjá okkur.“
20% af Dermapen-meðferð í mars
„Við vorum að fjárfesta í nýjustu
kynslóðinni af Dermapen sem gefur
enn betri árangur en sá gamli, sem er
reyndar bara ársgamall. Önnur nýj-
ung hjá okkur er að bjóða áhrifameiri
Dermapen-meðferð þar sem sér-
hannaðar ávaxtasýrur eru notaðar
samhliða, en þessi samsetning gerir
okkur kleift að vinna vel með bæði
ysta- og miðlag húðarinnar,“ segir
Lára og bætir við: „Það gleður okkur
alltaf að geta gert vel við viðskipta-
vini okkar og því ætlum við að bjóða
þessa eftirsóttu meðferð á 20%
afslætti út mars.“
Fyllt upp í djúpar línur með áhrifa-
ríkum hætti
Notkun á Restylane fylliefniefnum til
að minnka og fjarlægja djúpar línur
í húðinni er ein vinsælasta húð-
meðferðin í dag enda algengt að
heyra hve úthvíldur maður er eða líti
vel út eftir þessa meðferð. Restylane,
sem er gert úr náttúrulegu rakaefni
húðarinnar, er sett rétt undir húðina
og við það sléttist úr húðinni en það
er venjulega skuggaspil andlitslína
sem lætur okkur taka mest eftir þeim.
Þannig hverfa línurnar eða verða
minna sýnilegar.
Varir minnka oft með aldrinum og þá
er hægt að nota Restylane til að gefa
meiri fyllingu í þær.
Húðslípun gegn bólum og fíla-
penslum
Húðslípun (microdermabrasion)
er vinsæl meðferð hjá ungu fólki
enda vinnur hún gegn bólum og
fíla penslum. „Þá notum við dem-
antshúðslípunartæki sem fjarlægir
dauðar húðfrumur og örvar endur-
nýjun ysta lags húðarinnar. Meðferðin
gerir
húðina sléttari auk þess sem hún
virkar á þurra húð og gefur aukinn
ljóma. Auk meðferðanna leggjum við
áherslu á að upplýsa fólk um hvað
það geti gert sjálft til að hlúa vel að
húðinni enda hefur lífsstíll mikið að
segja um hvernig húðin stenst tímans
tönn,“ segir Lára.
Gjafabréf að eigin vali
Gjafabréf í húðmeðferð hafa notið
gífurlegra vinsælda undanfarið. „Það
er kannski vegna þess að fólki líkar
orðið betur að gefa ástvinum sínum
upplifun eða vellíðan frekar en að
auka á hið sístækkandi safn hluta
sem fólk sankar að sér.
Á vandaðri heimasíðu Húðar-
innar, hudin.is, er að finna ítarlegar
upplýsingar um allar meðferðir.
Einnig eru veittar upplýsingar í
síma 783-2233.
HÚÐIN skin clinic er í Hátúni 6b,
105 Reykjavík.
Nýjungar í húðmeðferð
HÚÐIN SKIN CLINIC:
Húðmeðferðarstöðin HÚÐIN skin clinic býður upp á fjöl-breyttar húðmeðferðir og
faglega þjónustu. Þar starfa dr. Lára
G. Sigurðardóttir læknir, Sigríður
Arna Sigurðardóttir, hjúkrunar- og
förðunarfræðingur, Drífa Ísabella
Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur og
Esther Helga Ólafsdóttir, móttöku-
ritari og snyrtifræðingur.
„Hjá HÚÐIN skin clinic fögnum við
fjölbreytileika og leggjum áherslu á
að bæta en ekki breyta náttúrulegu
útliti. Undanfarinn áratug hefur orðið
mikil vakning um hversu margt er
hægt að gera til að hugsa betur um
húðina, bæði með því sem maður
getur gert sjálfur og meðferðum sem
bæta ástand húðarinnar, eins og að
draga úr öldrunareinkennum. Við
erum sífellt að auka þekkingu okkar
og taka inn nýjar vörur og með ferðir,
því ástríða okkar er að gefa fólki
kost á að halda húðinni heilbrigðri
og fallegri. Auk fjölda húðmeðferða
bjóðum við upp á einstaklingsmiðaða
ráðgjöf,“ segir Sigríður Arna.
Undraefnið kollagen
„Við vorum að taka inn glænýja vöru
sem hefur verið að slá í gegn undan-
farið. Þetta eru kollagendrykkir sem
maður innbyrðir í morgunsárið en
þetta hefur stinnandi áhrif á húðina.
Kollagen fæst einnig í duft- og töflu-
formi en drykkirnir eru sérstaklega
hentugir og hafa reynst vel. Einnig
erum við með til sölu sérstaka
varasalva með kollagenpeptíð-
um sem auka raka í vörum og gera
þær þrýstnari og mýkri. Fyrir mér er
kollagen undraefni fyrir húðina.“
Dermapen-meðferð, fyrir og eftir.
1. mars 2019