Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Page 38
1. mars 2019KYNNINGARBLAÐGott betra BEST
Eitt vinsælasta kaffihús landsins
Cafe Adesso í Smáralind hef-ur um árabil verið geysilega vinsælt kaffihús og veitinga-
staður en staðurinn var opnaður 7.
apríl 2002. Cafe Adesso er vel sóttur
af viðskiptavinum Smáralindar en
auk þess venur stór hópur fastagesta
komur sínar á staðinn, meðal annars
fólk sem vinnur í nágrenninu.
Cafe Adesso býður upp á hið
rómaða og bragðmikla Piazza doro-
-kaffi. Piazza doro inniheldur Arabica
kaffibaunir frá Ástralíu og er leiðandi
kaffiframleiðandi þar í landi.
Með kaffinu er gott að snæða
franska súkkulaðiköku með rjóma.
Mikið úrval er af alls konar góm-
sætum kökum. Einnig eru smurbrauð
með roastbeef, laxi, hangikjöti og
fleiru gerð alla daga.
Fjölbreytt úrval af gómsætum mat
og hádegistilboð alla daga
Sem fyrr segir er Cafe Adesso í senn
kaffihús og veitingastaður. Geysilegt
úrval af tertum og smástykkjum er í
boði alla daga en matseðla má skoða
á heimasíðu staðarins, adesso.is.
Meðal annars eru crepes hádegis-
tilboð alla virka daga milli kl. 11.30 og
14.00 á 1.890 krónur, súpa dagsins
með brauði á 1.190 krónur, svo má
ekki gleyma Mexikókjúklingasalatinu
okkar á 1.890 krónur alla daga.
Börnin geta valið sér crepes eða
þá panini, já eða bara kleinuhring.
Megináherslan er lögð á fjölbreytni
í starfsemi Cafe Adesso þannig að
allir geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Að ógleymdu kaffinu sem nýtur
ómældra vinsælda.
Nánari upplýsingar má nálgast á
adesso.is
Cafe Adesso er opið mánudaga–
miðvikudaga frá kl. 11.00 til 19.00,
fimmtudaga frá 11.00 til 21.00, föstu-
daga og laugardaga frá kl. 11.00 til
19.00 og sunnudaga frá kl. 12.00 til
18.00.
CAFÉ ADESSO:
Ljúffengt crepes.
Girnilegt Mexíkósalat.
1. mars 2019