Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Síða 38
 1. mars 2019KYNNINGARBLAÐGott betra BEST Eitt vinsælasta kaffihús landsins Cafe Adesso í Smáralind hef-ur um árabil verið geysilega vinsælt kaffihús og veitinga- staður en staðurinn var opnaður 7. apríl 2002. Cafe Adesso er vel sóttur af viðskiptavinum Smáralindar en auk þess venur stór hópur fastagesta komur sínar á staðinn, meðal annars fólk sem vinnur í nágrenninu. Cafe Adesso býður upp á hið rómaða og bragðmikla Piazza doro- -kaffi. Piazza doro inniheldur Arabica kaffibaunir frá Ástralíu og er leiðandi kaffiframleiðandi þar í landi. Með kaffinu er gott að snæða franska súkkulaðiköku með rjóma. Mikið úrval er af alls konar góm- sætum kökum. Einnig eru smurbrauð með roastbeef, laxi, hangikjöti og fleiru gerð alla daga. Fjölbreytt úrval af gómsætum mat og hádegistilboð alla daga Sem fyrr segir er Cafe Adesso í senn kaffihús og veitingastaður. Geysilegt úrval af tertum og smástykkjum er í boði alla daga en matseðla má skoða á heimasíðu staðarins, adesso.is. Meðal annars eru crepes hádegis- tilboð alla virka daga milli kl. 11.30 og 14.00 á 1.890 krónur, súpa dagsins með brauði á 1.190 krónur, svo má ekki gleyma Mexikókjúklingasalatinu okkar á 1.890 krónur alla daga. Börnin geta valið sér crepes eða þá panini, já eða bara kleinuhring. Megináherslan er lögð á fjölbreytni í starfsemi Cafe Adesso þannig að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að ógleymdu kaffinu sem nýtur ómældra vinsælda. Nánari upplýsingar má nálgast á adesso.is Cafe Adesso er opið mánudaga– miðvikudaga frá kl. 11.00 til 19.00, fimmtudaga frá 11.00 til 21.00, föstu- daga og laugardaga frá kl. 11.00 til 19.00 og sunnudaga frá kl. 12.00 til 18.00. CAFÉ ADESSO: Ljúffengt crepes. Girnilegt Mexíkósalat. 1. mars 2019

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.