Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Qupperneq 44
44 FÓKUS - VIÐTAL 1. mars 2019 Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN alla, en á tímabili var ég kom- in í sprautuneyslu. Ég á því erfitt með að fara í blóðprufur og ég veit að ég mun þurfa að sprauta mig í vöðva. Ég er svo heppinn að ég er með einstakling sem er tilbú- inn til þess að gera þetta með mér. Ég reyni að forðast allt sem minnir mig á neyslu mína. Ég er líka mjög stressaður fyrir skapgerðarbreyting- um sem munu eiga sér stað, en með þeirri vinnu sem ég vinn í dag og þeirri sjálfsþekkingu sem ég hef fengið með því að vinna sporin, þá minnka áhyggjurnar. Það eru alltaf einhverjar áhyggjur, en á meðan ég hlusta á minn æðri mátt, sleppi, trúi, treysti og tek bara einn dag í einu, þá minnkar óttinn.“ Í fyrsta skiptið í lífi Sævars sér hann framtíðina fyrir sér og hlakk- ar til þess að takast á við hana sem hann sjálfur. „Alla mína ævi hef ég þráð að deyja. Ég hef lent í kynferðisáföllum og fleiri slæmum hlutum. Frá átta til níu ára aldri hef ég óskað þess að deyja. Ég hef reynt að svipta mig lífi yfir tuttugu sinnum og einmitt út af minni neyslu og vegna þess að það hefur komið upp sú staða að ég hef verið tæpur á því að lifa af, þá hef ég lífsviljann í dag. Ég sé framtíðina fyr- ir mér. Það er eitthvað sem ég hef aldrei getað séð alla mína ævi. Ég er að verða ég, ég er orðinn edrú og er að takast á við mín vandamál. Það er svo gott. Ég á ennþá mjög erfitt með að fara til Akur eyrar því þar var ég gjörsamlega búinn að brenna all- ar brýr að baki mér. Fara á bak við fólk og svíkja það. En það kemur bara þegar það kemur, þegar ég er tilbúinn. Það sem hefur hjálpað mér í minni edrú mennsku er að geta fyrirgefið sjálfum mér. Það skiptir rosalega miklu máli, við erum bara mennsk og ég geri mistök. Þótt ég hafi verið edrú í eitt ár þá geri ég enn mistök. Það er enginn fullkom- inn. Ég hef oft velt því fyrir mér hvað flokkist undir orðið fullkominn. Hvað er að vera fullkominn? Þetta orð á bara ekki að vera í orðabók.“ Vistaður í fangaklefa aðeins sextán ára gamall Neysla Sævars hófst þegar hann var um 15 ára gamall og fór nán- ast strax úr böndunum. Hann vissi ekki hvernig fara átti með áfengi og þegar hann var aðeins 16 ára gam- all var hann í fyrsta skipti vistaður í fangaklefa vegna þess hve ofurölvi hann var. „Þetta er svona fyrsta minn- ing mín af einhverju hugbreytandi efni. Ef þetta byrjar svona, hvern- ig á maður þá að geta funkerað með einhver önnur efni. Þetta er mín minning af djammi. Ég hef verið sendur á marga staði, dval- ið á mörgum fósturheimilum og mörgum meðferðarheimilum fyrir unglinga. Stuttu eftir að hafa verið vistaður í fangaklefa var ég sendur á langtímameðferðarheimili þar sem ég dvaldi í rúmt ár. Þannig að ég fékk einhvern veginn ekki fleiri tækifæri til að „djamma“. En eftir meðferðina flutti ég inn til föður míns og byrjaði smám saman að drekka aftur. Í eitt skipti fékk fað- ir minn nóg og ég skil hann mjög vel, hann fékk til sín fullan ung- ling, alveg á hausnum. Þetta var á skólakvöldi og ég fór niður í mið- bæ alveg hauslaus, hringdi í ein- hver númer og fór heim til mann- eskju sem var að nota fíkniefni á sínum tíma. Þar prófaði ég fíkni- efni í fyrsta skiptið. Það var rosa- lega skrítið og þetta var mér mjög erfitt. Ég prófaði það sem var í boði og mér fannst þetta allt í lagi. Fyr- ir mér var ekkert eins og himnaríki væri að opnast þar sem vanlíðan- in var orðin svo mikil þarna. Ég var að bregðast pabba mínum, hafði verið með mikið vesen undanfar- in ár og búinn að leggja helvíti á hann. Hann svaf ekki heilu næt- urnar af því að ég gat ekki stað- ið í lappirnar. Þessa nótt gerðust ógeðslegir hlutir. Bara ógeðslegir hlutir sem ég er að vinna í á Stíga- mótum.“ Öfundaði jafnaldra sína en fann enga undankomuleið Daginn eftir þessa afdrifaríku nótt mætti Sævar í skólann þar sem rætt var við hann. Á honum fund- ust fíkniefni og var hann í kjölfar- ið handtekinn og sendur aftur í burtu. Í rúmlega ár notaði hann því engin efni, en fljótlega eftir að hann kom til baka lá leiðin hratt niður á við aftur. „Þá prófaði ég sem sagt róandi efni. Kannabis. Það var eitthvað sem ég fílaði. Mér tókst þó að hætta, en stuttu síðar lést mann- eskja mér nátengd og fljótlega eftir það byrjaði ég að nota aftur. Mér var bannað að mæta í jarðar- förina nema ég væri edrú. Þannig að ég var edrú í rúmar tvær vikur til þess að geta kvatt þessa mann- eskju með sóma og svo byrjaði ég bara aftur. Ég var úti margar nætur og var bara orðinn gjör- samlega háður. Þetta varð bara verra og verra með hverju ein- asta skipti sem ég datt í það. Mín fyrsta meðferð hjá SÁÁ, þar sem ég varð svo fastagestur, hjálp- aði mér rosalega mikið. Ég hef reynt að vera edrú áður, en ein- hvern veginn aldrei tekist, en það var af því að ég fór ekki eftir fyr- irmælum og vildi bara gera þetta á minn hátt. En gallinn er sá að ég veit ekki neitt þegar kemur að þessu, þannig að ég þarf að hlusta á einhvern annan og fara eftir því.“ Þegar Sævar náði botninum man hann eftir því að hafa stað- ið og horft út um stofugluggann heima hjá sér þar sem hann leigði íbúð nálægt Verkmenntaskólan- um á Akureyri. Þar sá hann krakka á svipuðum aldri og hann sjálfur, ganga í skólann til þess að mennta sig. „Ég horfði á þau og ég hugs- aði hvað ég öfundaði þau. Ég vildi að ég gæti verið þau en þarna var ég í mínu greni, búinn að kveikja í heima hjá mér. Ógeðsleg lykt inni hjá mér og þarna var ég bara í mínum eigin skít. Af hverju gat ég ekki verið í þeirra sporum? En ég tel mig vera í þeim í dag og ég myndi ekki vilja breyta neinu fyrir einn skammt af því að síð- ustu skiptin sem ég notaði, núna á síðasta ári, voru hreint helvíti. Ég man ekki eftir fjórum vikum. Þetta var stutt fall, en þetta var djúpt. Það voru margir heima hjá mér, sem ég vissi oft ekkert hverj- ir voru, bara vinafólk vina minna og það var alltaf stanslaust partí. Ég vissi ekki hvað fólk var að gera þarna og það sem var svo ljótt við þetta er að þau voru að nota mig og ég var að nota þau. Þannig að vítahringurinn var orðinn svo stór. Eftir að ég varð edrú og sé hvernig neysluheimurinn er, þá er ekkert sem dregur mig þangað aftur. Það þykir mér svo gott vegna þess að í neyslunni er ég búinn að gera ógeðslega hluti, segja ógeðs- lega hluti og koma ógeðslega illa fram. En í dag get ég fengið tæki- færi til þess að laga það. Laga það sem hægt er að laga. Sumt er ekki hægt að laga en ég fæ að minnsta kosti tækifæri til þess að reyna. Í dag er ég bara að reyna að vera besta útgáfan af sjálfum mér.“ n „Það var ekki alveg tekið mark á mér
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.